Síða 1 af 1
Dell Dimension
Sent: Sun 16. Des 2007 05:44
af dickler
Sælir / Sælar
Hef hugsað mér að uppfæra gömlu Dell tölvuna mína. Ég myndi vilja hafa hana aðeins hljóðlátari en það er farið að heyrast meira í henni núna en gerði. Það er s.s kveikt á henni 24/7. Hún er 1.7ghz með 768mb innraminni og 2x 80gb hdd.
Mér er samt farin að finnast hún vinna fullhægt miðað við þessar tölur og langaði að spyrja ykkur hvað best væri að uppfæra.
Ætla nota þessa vinnu í nokkur þung forrit sem og keyrslu 24/7 og vil hafa hana hljóðláta. Vil ekki hafa hana sem leikjavél.
Hverju mælið þið með?
Re: Dell Dimension
Sent: Sun 16. Des 2007 10:16
af Halli25
Veistu hvaða socket móðurborðið er með?
hræddur um að þú þurfir að eyða í aðeins meira en uppfærslu ef þetta er gamall sökkull.
2GB minni og stærri örri annars. jafnvel að harðdiskanir séu byrjaðir að slappast ef þetta er mjög gömul vél svo nýir gætu flickað uppá hana.
Sent: Mán 17. Des 2007 02:37
af dickler
Pentium 4-1700 CPU
256MB of PC133 SDRAM,
256KB L2 cache,
Windows Me,
80 GB hard drive,
Þetta eru speccarnir þegar ég keypti hana, DELL Dimension 4300
síðan fann ég þetta
he 4300 is one of the first systems we've seen with Intel's new 845 chip set, which pairs a Pentium 4 processor with PC133 SDRAM, instead of the costlier 800-MHz RDRAM.
Socket 478b Motherboard 7H373
Hjalpar þetta eitthvað?
Með fyrirfram þökk
Kveðja
Dell
Sent: Mán 17. Des 2007 04:18
af Gets
Sæll dickler.
Móðurborðið í þessai vél styður 400 Mhz fsb örgjörfa en þeir örgjörfar fást ekki lengur fyrir utan það að þeir voru ekki framleiddir stærri en 2.0 Mhz.
Þú getur fengið 2.0 Mhz örgjörfa á Ebay með 400 Fsb eða prófað að auglýsa eftir honum hérna en aflaukningin er sáralítil og eiginlega ekki fyrirhafnarinnar virði.
Hámarksminni sem þetta móðurborð tekur er 1.024 GB þannig að þú getur bætt við 256 Mhz af minni en þá ertu komin í botn.
Ég segi að það borgi sig ekki.
Ef að þér finnst vélin performa minna en hún gerði upphaflega þá er spurning um að formata stýrikerfisdiskinn og setja stýrikerfið upp aftur.
Sent: Mán 17. Des 2007 08:40
af IL2
Ef það er farið heyrast meira í henni þá eru vifturnar örugglega orðnar fullar af ryki. Ég hef yfirleitt tekið þær úr, hreinsað með lofti og sett WD-4 á þær og látið þær þorna aðeins. Þá verða þær eins og nýjar.
Sent: Mán 17. Des 2007 09:36
af einzi
dickler skrifaði:Pentium 4-1700 CPU
256MB of PC133 SDRAM,
256KB L2 cache,
Windows Me,
80 GB hard drive,
Setja kannski upp Windows 98SE, mín persónuleg reynsla að Me ríði ekki feitum hesti.
Er Vista kannski dejavu fyrir ánægða Me notendur?
Sent: Mið 19. Des 2007 04:20
af dickler
Það fyrsta sem ég gerði þegar ég keypti tölvuna var að setja inn Win2000 og síðar XP.
margoft búinn að formata diskinn og þannig... Ætli það sé ekki bara best að kaupa nyjan kassa með nýjustu græjunum?
Sent: Mið 19. Des 2007 11:36
af Gets
Sent: Fös 21. Des 2007 16:22
af wICE_man
Ath bara að vélarnar hjá ATT og TL eru hvorugar með geisladrifi
Sent: Fös 21. Des 2007 18:01
af Halli25
wICE_man skrifaði:Ath bara að vélarnar hjá ATT og TL eru hvorugar með geisladrifi
hver þarf geisladrif ef hann á það fyrir

Sent: Lau 22. Des 2007 11:59
af wICE_man
faraldur skrifaði:wICE_man skrifaði:Ath bara að vélarnar hjá ATT og TL eru hvorugar með geisladrifi
hver þarf geisladrif ef hann á það fyrir

Sá hinn sami þegar að gamla geisladrifið hættir að virka.
Geisladrifið er sennilega bilanagjarnasti hluturinn í tölvum og það getur verið óendanlega leiðinlegt þegar að farið er að slá í þau.
Svo er hægt að sleppa þeim eins og þú segir og þá má draga verðið á þeim frá upphæð turnsins

Sent: Lau 22. Des 2007 17:09
af ÓmarSmith
SAmmála Wise .. ekkert eins leiðinlegt og að láta CD-DVD drifið bila þegar þú loxins þarft virkilega á því að halda .!!
mitt gamla NEC drif stútaði líka C&C generals disknum mínum

braut hann í tvennt með snúning og víbring.