Síða 1 af 1
Raidsonic ICY BOX MP302 margmiðlunarspilari Review
Sent: Fim 06. Des 2007 00:40
af Yank
Ný umfjöllun
Sjónvarpsflakkarar eða margmiðlunarflakkarar eru til margvíslega hluta nothæfir. Þá er hægt að tengja beint við sjónvarp og horfa á kvikmyndir eða ljósmyndir. Einnig er hægt að spila tónlist úr þeim hvort sem er að tengja þá beint við hátalara eða sjónvarp. Og þegar öllu er á botninn hvolft þá eru þetta ekkert annað en harðdiska hýsingar sem gera það kleyft, að hægt er að taka öryggisafrit af gögnum og geyma á þeim, t.d. tónlistarsafninu, DVD safninu, sumarfrísmyndunum, osfv.
Endilega komið með athugasemdir um þessa umfjöllun eða reynslusögur af öðrum spilurum.
sjá umfjöllun hér
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=16208
Kveðja Yank
Sent: Fim 06. Des 2007 09:02
af GuðjónR
Það er engin smá vifta í þessu...er hann virkilega hljóðlátur?
Sent: Fim 06. Des 2007 12:33
af Yank
Já reyndi að mæla dB styrk en gekk illa því aðrir hlutir voru að yfirgnæfa hljóðið. Þannig hljóðlátur..
Eina hljóðið sem heyrðist einhvern tíman var víbríngur frá snúningi HD þegar hann stóð á viðarborði, færði hann aðeins til og þá hætti það.
Sent: Mán 14. Jan 2008 00:57
af stebbijo
ekki geturu sent mér link á einhvern góðan svona TV flakkara sem spilar flest Video formin og er 500GB og er ekkert alltof dýr? en spilar þessi ICY BOX flakkari ekki .wmv?
Sent: Mán 21. Jan 2008 12:39
af Dazy crazy
Bróðir minn á svona icybox og hann er bara búinn að vera í tómu tjóni síðan eiginlega.
Fyrst skelltum við á hann fullt af bíómyndum og það virkaði í 3 vikur en svo var allt í einu ekki lengur hægt að spila og það stóð bara read usb og stoppaði í 39 prósent og svo var allt tekið af honum og sett inná aftur og þá stoppaði það í 12 prósent.
Þá var farið í tölvulistann og þeir létu hann bara hafa annan flakkara aðeins nýrri týpu og nýjan harðan disk og síðan hefur hann virkað.
Sent: Mán 21. Jan 2008 13:16
af Halli25
dagur90 skrifaði:Bróðir minn á svona icybox og hann er bara búinn að vera í tómu tjóni síðan eiginlega.
Fyrst skelltum við á hann fullt af bíómyndum og það virkaði í 3 vikur en svo var allt í einu ekki lengur hægt að spila og það stóð bara read usb og stoppaði í 39 prósent og svo var allt tekið af honum og sett inná aftur og þá stoppaði það í 12 prósent.
Þá var farið í tölvulistann og þeir létu hann bara hafa annan flakkara aðeins nýrri týpu og nýjan harðan disk og síðan hefur hann virkað.
Varstu ekki með MP301? 302 er miklu miklu betri og 303 er víst stórt stökk uppávið frá 302 líka.... Yank hvar er review um 303?

Sent: Mán 21. Jan 2008 13:49
af Dazy crazy
þetta var 301b held ég, leiðinlegt viðmót líka, allar möppur í chaos
Sent: Mán 21. Jan 2008 19:54
af Yank
faraldur skrifaði:dagur90 skrifaði:Bróðir minn á svona icybox og hann er bara búinn að vera í tómu tjóni síðan eiginlega.
Fyrst skelltum við á hann fullt af bíómyndum og það virkaði í 3 vikur en svo var allt í einu ekki lengur hægt að spila og það stóð bara read usb og stoppaði í 39 prósent og svo var allt tekið af honum og sett inná aftur og þá stoppaði það í 12 prósent.
Þá var farið í tölvulistann og þeir létu hann bara hafa annan flakkara aðeins nýrri týpu og nýjan harðan disk og síðan hefur hann virkað.
Varstu ekki með MP301? 302 er miklu miklu betri og 303 er víst stórt stökk uppávið frá 302 líka.... Yank hvar er review um 303?

Ja það veit ég ekki hef ekkert heyrt frá þeim

Sent: Mán 10. Mar 2008 23:06
af Yank
Ein eigandi svona flakkara vakti athygli mína á því að hann skildi ekki sér íslenska stafi eins og t.d. Í og myndi birta ? merki í staðinn. Er einhver hér sem hefur lent í þessu? Þ.e. þessi gerð af Raidsonic 302.
Man ekki eftir að hafa tekið eftir þessu sjálfur, og er ekki með þennan flakkara undir höndum lengur.
Sent: Mán 10. Mar 2008 23:16
af Dazy crazy
já þetta er svoleiðis í flakkaranum heima. En hann er nú bara held ég í rugli vegna þess að hann sleppir út köflum en já hann skilur ekki íslenska stafi. koma 3 eða 5 spurningamerki, man ekki hvort.