Síða 1 af 1

Álit ykkar á Mvix MV-6000R sjónvarpsflakkara

Sent: Þri 04. Des 2007 16:33
af gunnargolf
Ég rakst á auglýsingu frá ELKO þar sem verið er að auglýsa sjónvarpsflakkara af gerðinni Mvix MV-6000R. Hann er mjög ódýr miða við flesta sjónvarpsflakkara með háskerpuafspilun sem ég hef séð.

En ég er enginn sérfræðingur um sjónvarpsflakkara og álit ykkar á þessum grip væri þess vegna vel þegið.

Er þetta góður flakkari, sem styður helstu öll video formöt? Eða ætti ég kannski frekar að fá mér einhvern annan? Má helst ekki kosta yfir 20.000kr án harðs disks.

Linkur á Elko: http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=813

Betri upplýsingar hjá task:
http://www.task.is/?prodid=2586

Sent: Þri 04. Des 2007 17:36
af Yank
Þessi spilari spilar ekki HD formöt af skrám þannig ekki true HD spilari.

Ef þú ert með LCD sjónvarp þá sér það að öllum líkundum um Upscaling fyrir þig, þannig....
Nokkuð sniðugt markaðs trikk sko.

Sent: Þri 04. Des 2007 17:41
af TechHead
Akkurat, ef þú vilt true HD þá þarftu að fara í græju eins og þessa:
Tvix M4100

Sent: Þri 04. Des 2007 17:57
af gunnargolf
Ok, takk fyrir. Þá líst mér ekkert á þetta.

Sent: Fim 06. Des 2007 23:45
af Harvest
Þetta er bara sölutrix eins og þeir segja hérna fyrir ofan. Eiginlega verið að ljúga að fólki. Svipað og "HD ready" dæmið þarna var.

Sent: Fös 07. Des 2007 08:12
af gunnargolf
Já, ég skil. En getið þið þá bent mér á einhvern góðan sjónvarpsflakkara, ekki HD, bara venjulegan.

Sent: Fös 07. Des 2007 12:46
af Harvest
Hvað villtu hafa á flakkaranum? ég er t.d. með mediagate 350 og hann er með þráðlausu neti. Get ss. accessað draslið af vélinni gegnum ráterinn - þráðlaust.

Ég elska hann... búinn að eiga hann í svona hálft ár og er ekkert að fara skipta.

Svo eru tvixarnir (att.is ofl) mjög góðir en ég mundi láta sarotech eiga sig.

Sent: Fös 07. Des 2007 17:38
af gunnargolf
Mér finnst tiltöllulega lítið mál að tengja flakkarann við tölvuna og flytja gögn á hann þannig að ég helda að nettenging sé óþörf. Hann þarf bara að geta spilað helstu video formöt, og vera með sæmilega codeca. Ég hef ekki áhyggjur af stuðningi við hljóðskrár.

Sent: Fös 07. Des 2007 20:17
af GuðjónR
Harvest skrifaði:ég er t.d. með mediagate 350 og Ég elska hann...

Sammála...

Sent: Mið 09. Jan 2008 22:29
af gunnargolf
Í staðin fyrir að búa til nýjan þráð svara ég bara þessum.

Eru til sjónvarpsflakkarar þar sem hægt er að taka upp útsendingu í sjónvarpi?

Sent: Fim 10. Jan 2008 09:24
af Halli25
gunnargolf skrifaði:Í staðin fyrir að búa til nýjan þráð svara ég bara þessum.

Eru til sjónvarpsflakkarar þar sem hægt er að taka upp útsendingu í sjónvarpi?

Það er hægt að fá sjónvarpskort í Tvix 4000 og 5000 línunar en þau koma víst á einhverju brjáluðu verði og eru bara digital svo þá eru fáar sjónvarpsrásir eftir til að taka upp :roll:

Sent: Fim 10. Jan 2008 15:47
af gunnargolf
Ok, þá fæ ég mér bara DVD upptökutæki: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=162463#162463