Síða 1 af 1

2 Skjákort saman

Sent: Mán 03. Des 2007 22:23
af littel-jake
Ég er mikið að pæla í skjákortkaupum því ég er að fara að fá mér nýja vél.

Ég er eginlega ekki að tíma eða hafa efni á að fá mér 8800 Kort svo ég er að spá hvort það sé ekki bara málið að fá sér 8600 kort fyrst og bæta svo 88öö korti við þegar ég hef efni á því. Móðurborðið sem ég er að spá í bíður upp á 2 kort ef ég er ekki að ruglast illa
http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... _FC_P-35_S

Er eitthvað vit í þessu? Er hægt að hafa 8800 og 8600 kort saman?

Sent: Mán 03. Des 2007 22:25
af zedro
Nei

Sent: Mán 03. Des 2007 23:22
af Pandemic
Það er ekki hægt..
SLI styður bara tvö nákvæmlega eins kort
Crossfire getur hinsvegar notað mismunandi kort úr sömu línu.

Sent: Þri 04. Des 2007 08:42
af Minuz1
a) Þetta móðurborð styður 2x Skjákort í SLI

b) Þú getur notað SLI ef þú hefur 2 kort með sama kjarna en mismunandi minni/klukkuhraða/framleiðanda o.s.frv en þá virka bæði kortin eins og hægara kortið. Mæli samt eindregið með því að það sé notað alveg nákvæmlega eins kort, helst kort sem voru framleidd með 1 mín. mismun.

c) 8600 kort....nei...fáðu þér 8800 GT kort....engin spurning...1 slíkt er örugglega mun öflugara heldur en 2x 8600 kort.

Sent: Þri 04. Des 2007 14:40
af Yank
Minuz1 skrifaði:a) Þetta móðurborð styður 2x Skjákort í SLI


Bara vinsamleg leiðrétting.

Þetta borð styður bara crossfire, enda með P35 kubbasetti. Það er því ekki hægt að keyra 2 nvidia skjákort í sli. Heldur getur keyrt 2 ATI kort í corsfire. Það keyrir einnig að sjálfsögðu nvidia skjákort en ekki tvö í einu.

Sent: Þri 04. Des 2007 18:17
af Selurinn
Fáðu þér bara HD3870 og bættu við öðru seinna when you have the money :)

Sent: Mið 02. Jan 2008 22:52
af EmmDjei
Byrjaðu bara á einu 8800