Ég er að setja saman eina gamla tölvu með íhlutum úr mörgum öðrum vélum og þegar kom að hljóðkortinu þá lenti ég í smá veseni

Málið er að ég er með 3 hljóðkort, öll Aztech kort, og ég ákvað að byrja að finna rekla fyrir þau og líka kannski athuga í leiðinni hvert þeirra væri best. Ég var ekki lengi að finna
þessa síðu sem ætti að hafa rekla fyrir öll kortin og það kort sem ég ákvað að nota heitir Aztech SC 128-3D og það var frekar auðvelt að finna reklana fyrir það á þessari síðu sem eiga víst að virka í Windows 9x en Windows 98 neitar samt að leyfa mér að nota reklana og segir mér bara að þeir innihaldi engar upplýsingar um þetta kort sem er bara fáránlegt
Einhver sem veit hvað ég get gert?
Edit: ég er búinn að leysa þetta vandamál

reklaskrárnar höfðu víst ekki alveg unzippast rétt

Er með ZipGenius og það er ekki alveg að standa sig. Notaði dos útgáfu af rar og þá var þetta ekkert mál

Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]