Síða 1 af 1

móðurborðið msi k7tpro2

Sent: Mán 26. Nóv 2007 14:28
af tomas52
ég er með móðurborðið k7tpro2 ég veit að það er nokkuð gamalt en ég tími ekki að kaupa nýtt og ég er að spá að fá mér 500gb harðan disk western digital sata2 og nýtt minni en með það þá veit ég ekki hvað ég þarf marga pinna ég er með 512 mb corsair valueselect eða eikkað þannig og svo 252mb pci eikkað en er bara að spá að fá mér 2x1gb þannuig getiði sagt mér hvað ég þarf margra pinna minni og hvort að móðurborðið gangi ekki með harða disknum

Sent: Mán 26. Nóv 2007 15:06
af einzi
Já þetta er svolítið gamalt borð :P

MSI skrifaði:Main Memory

• Supports three 168-pin unbuffered DIMM using six memory banks.
• Supports a maximum memory size of 1.5GB (32M x 8).
• Supports 3.3v SDRAM DIMM


MSI skrifaði:
- Dual bus Master IDE Ultra DMA33/66


Sýnist þú nú ekki hafa mikla möguleika á stækkun. Sata gengur nú ekki á þetta borð nema þú fáir þér sata controller, veit svo ekki hvað IDE segir við 500gb, fyrir utan það að getur verið erfitt að fá minnið.


http://global.msi.com.tw/index.php?func=proddesc&prod_no=325&maincat_no=1

Svo er nú ekki mjög dýrt að fá sér bara nýja tölvu í dag, færð góða vél fyrir 100k

Gamalt / Nýtt

Sent: Mán 26. Nóv 2007 17:43
af Gets
Þar sem þú virðist vera nokkuð nægjusamur á tölvubúnað og ert kannski ekki með stórar fjárhæðir til að eyða í slíka hluti þá myndi ég frekar mæla með ódýrri turnuppfærslu í stað þess að leggja pening í svona gamla vél því munurinn er glettilega lítill en færð margfalt öflugri vél en þú ert með núna.

Dæmi.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2275

daginn

Sent: Þri 27. Nóv 2007 13:28
af tomas52
mér finnst persónulega svo dýrt í att þannig að ég var að spá hvort að það væri einhver ódýrari en tolvutek sem mér finnst ódýrir eins og getiði bent mér á eikkað af þessu http://www.tolvutek.is/index.php?cPath=173_174 eða er eitthver önnur tölvubúð sem er með ódýrari en þeir

Sent: Þri 27. Nóv 2007 14:00
af urban
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... ts_id=9950

vs.

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2275

hvort tveggja á rétt tæplega 30 þús.

att tilboðið miklu miklu betra

þannig að þú mátt alveg segja til um hvort þér finnst dýrari verslun :)

Re: daginn

Sent: Þri 27. Nóv 2007 14:14
af Halli25
tomas52 skrifaði:mér finnst persónulega svo dýrt í att þannig að ég var að spá hvort að það væri einhver ódýrari en tolvutek sem mér finnst ódýrir eins og getiði bent mér á eikkað af þessu http://www.tolvutek.is/index.php?cPath=173_174 eða er eitthver önnur tölvubúð sem er með ódýrari en þeir

HAHAHAHAHA góður!

Sent: Þri 27. Nóv 2007 14:55
af einzi
fyrst að þér finnst allt þetta dýrt þá langar mér að benda þér á Góða Hirðirinn .. örugglega eitthvað við þitt hæfi þar :P Gætir meira að segja fundið minni þar

daginn

Sent: Þri 27. Nóv 2007 15:44
af tomas52
en mér vantar ekkert nýjan tölvukassa ég var að búa til þennan fína tölvukassa með plexigleri og neonljósum og öðru þanni ég var nú líka að meina linkinn sem ég sendi inn sem eru bara uppfærslur




p.s ég kíki í góða hirðirinn á morgun:D