Síða 1 af 1
Beyglaður socket pinni, eða nokkrir.
Sent: Sun 11. Nóv 2007 15:00
af Arkidas
Er hér með EVGA 680i borð sem varð fyrir því óhappi að örfáir pinnar beygluðust. Ég hafði ekki tíma til þess að reyna að laga þetta þar sem ég var búinn að vera án tölvu í 2 mánuði og þurfti hana sem fyrst og því keypti ég nýtt móðurborð af annarri gerð ( x38 DQ6 ) en er nú að íhuga það að laga þetta gamla svo ég geti a.m.k. selt það. Er einhver hér sem hefur reynslu af þessu?
Sent: Sun 11. Nóv 2007 15:57
af zedro
Gríptu þér lítið skrúfjarn og stækkunargler og juðaðu þeim í rétta átt

Sent: Sun 11. Nóv 2007 16:49
af appel
Pray to God it doesn't fall off!

Ekki gott að juða mikið í svona.
En, thanks for the heads-up... þegar þú auglýsir gripinn þá vitum við að við eigum ekki að kaupa

Sent: Sun 11. Nóv 2007 17:24
af Gúrú
Og þá getum við líka sagt öllum að pinnarnir séu ekki í fullkomnu ástandi

Sent: Sun 11. Nóv 2007 17:51
af IL2
Einhverstaðar las ég það að það væri best að vera með venjulegan penna, taka úr honum allt og nota húsið til að rétta svona pinna.