Síða 1 af 1

tölva startar ekki

Sent: Fös 09. Nóv 2007 21:49
af ZPUD
Sælir, eg er nýbúinn að kaupa mér tölvu og fékk hana senda áðan. Svo þegar ég ætlaði að kveikja á henni þá gerðist ekkert, bara nákvæmlega ekki neitt, ekkert power á neinu. Er þetta power supplyið að klikka eða getur þetta verið eitthvað annað? tölvan -> http://www.kisildalur.is/?p=2&id=407

Sent: Fös 09. Nóv 2007 21:57
af zedro
Hljómar eins og pósturinn hafi ekki farið nógu vel með tölvuna þína.
Ertu út á landi?

Veit fyrir víst að Kísildalur væri ekki búinn að senda frá sér vélina án þess
að stilla biosinn svo hún hefur verið gangfær þegar hún fór í póst.

Pottþétt að allar snúrur séu tengdar? Hljómar einsog einhver snúra sé laus.
Ertu ekki pottþétt búinn að kveikja á aflgjafanum (lítill on/off takki aftan á aflgjafanum)?

Sent: Fös 09. Nóv 2007 22:13
af ZPUD
Já, er úti á landi. Er búinn að tékka á öllum snúrum held ég alveg örugglega og búinn að kveika á aflgjafanum.

Sent: Fös 09. Nóv 2007 22:24
af zedro
Þekkiru einhver tölvuvæddan sem gæti kíkt á þetta fyrir þig?

Sent: Fös 09. Nóv 2007 23:25
af Yank
ROFL

Tekið af Kísildalur.is

"Ofurturninn (Quad-Core)
Q6600, 4GB minni, 1TB diskpláss, DVD-RW, 2x 8800GT SLI
Turn fyrir þá sem vilja tryllingslega öfluga tölvu í leikina og bókhaldið. Þessi mun bryðja sig í gegnum excel-skjölin eins og það sé enginn morgundagur og spilar tetris með þvílíkum rammafjölda að annað eins hefur ekki sést! Rannsóknir sýna jafnframt að fólk sem á svona tölvu er hamingjusamara en annað fólk og hegðar sér líka betur í umferðinni.

Vertu ekki leiðindarpúki, fáðu þér Ofurturninn strax í dag ;)"

Edit. ZPUD afsakaðu skuli stelast í þráðinn, hef ekki lausn á þessu vandamáli þínu.

Sent: Fös 09. Nóv 2007 23:50
af ZPUD
já, fæ einhvern til að líta á þetta á morgun

Sent: Lau 10. Nóv 2007 01:21
af Gúrú
Efast nú um að atvinnu póstmaður fari svo illa með tölvu að hún fari ekki í gang :)

Ef kassinn var merktur brothætt ætti það ekki að vera málið.


Viss um að það sé rafmagn á innstungunni? :)

Sent: Lau 10. Nóv 2007 02:10
af zedro
Gúrú skrifaði:Efast nú um að atvinnu póstmaður fari svo illa með tölvu að hún fari ekki í gang :)

Ef kassinn var merktur brothætt ætti það ekki að vera málið.


Viss um að það sé rafmagn á innstungunni? :)

Veit nú ekki hversu áreiðanlegir „atvinnu póstmenn“ eru en ég get lofað þér
að þessi tölva virkaði þegar hún var send úr búðinni.

Getur ekki annað verið að hún hafi orðið fyrir hnjaski í flutningi eða þá
að það sé ekkert rafmagn á instungunni.

Ein spurning keyptiru Windows með vélinni?

Sent: Lau 10. Nóv 2007 15:06
af ZPUD
nei keypti ekki windows með
og það er rafmagn á innstungunni