Síða 1 af 1
G7 að klikka
Sent: Lau 03. Nóv 2007 18:06
af gunnargolf
Fína Logitech G7 músin mín er virkilega að fara í taugarnar á mér núna. Vandamálið er það, að stundum tekur hún upp á því að tvíklikka við eitt vinstriklikk, marghægriklikka við að halda hægri takkanum og fast niðri, eða marg miðjuklikka þegar maðu ýtir miðjutakkanum inn. Hún jafnvel miðjuklikkar við vinstriklikk.
Hvur fjandinn getur þetta verið?
Sent: Lau 03. Nóv 2007 19:55
af ManiO
Takkinn ónýtur? Gerðist fyrir gamla logitech mús hjá mér eftir Diablo 2.
Sent: Lau 03. Nóv 2007 19:59
af gunnargolf
Eru semsagt allir takkarnig ónýtir?
Sent: Lau 03. Nóv 2007 21:16
af ManiO
Gæti verið ryk og drulla, búinn að tjékka logitech forumin eða google? Gæti verið að einhver hafi lent í svipuðu með aðeins nýrri mús en ég sem gæti lumað á lausn. Bara krossa puttana

Sent: Lau 03. Nóv 2007 21:29
af Gúrú
Gæti þá mjög vel verið drulla eins og 4x0n sagði, en EKKI reyna að taka G7 takkana af, þeir bogna/brotna bara... Þyrftir þá bara að tala vð þá sem að seldu þér músina og láta þá gera við hana ef hún er í ábyrgð.
Hef lent í því að mjög margar mýs sem ég hef átt hafa bara byrjað að tvíklikka og núna eru þær í ruslinu... Trust & Logitech mýs :/
Sent: Sun 04. Nóv 2007 01:06
af Pandemic
Ég lagaði mína mús með því að rífa hana í sundur og spreyja contact spreyji yfir PCB borðið og takkann sjálfan á því.
Annars ef hún er í ábyrgð endilega láttu þann sem seldi þér hana gera við hana eða láta þig fá nýja.
Sent: Sun 04. Nóv 2007 02:17
af gunnargolf
Ég keypti hana notaða, veit ekkert hvort hún er í ábyrgð.
Sent: Þri 27. Nóv 2007 21:24
af Weekend