Síða 1 af 1

skiptir minnið máli?

Sent: Lau 27. Okt 2007 20:27
af tonycool9
Dæmi. Leikurinn Crysis. á System requirements lab stóð að maður þyrfti að vera með 512 mb skjákort til að hafa hann ''stöðugann'' í svona háum gæðum, ég er að nota 8800gts 320mb og fps-ið droppar jafnvel niður í 20 á köflum. ég er með 4 gíg í minni og yfirklukkaðann quadcore örgjörva þannig að það er ekkert vesen með það. en spurningin mín er, myndi það bæta eitthvað að fara úr 320mb kortinu í 640mb?.. breyta þessi 320 mb miklu ? :)

Sent: Lau 27. Okt 2007 22:51
af Orri
Ég held að það sé þá bara best að selja 320MB kortið og kaupa bara GTX.

Sent: Lau 27. Okt 2007 22:55
af tonycool9
er einhver voðalegur munur þar á milli? og eins og ég spurði skiptir minnið máli ?

Sent: Lau 27. Okt 2007 23:26
af Gúrú
Það er voðalega mikill munur þarna á milli, 2x betra minni er mun betra en 2x minna minni :)

SÉRSTAKLEGA ef það stendur í requirements að þú þurfir betra minni en þú ert með.

Sent: Lau 27. Okt 2007 23:39
af Yank
tonycool9 skrifaði:er einhver voðalegur munur þar á milli? og eins og ég spurði skiptir minnið máli ?


Það hefur hingað til ekki verið stórkostlega mikill munur á afli á Nvidia 8800GTS 320MB og 8800GTS 640MB. Svo er rétt að hafa í huga að þessi leikur er rétt í demo útgáfu. Bæði leikurinn og sérstaklega reklar fyrir skjákortin eiga eftir að batna.

Sent: Mán 29. Okt 2007 10:05
af Halli25
8800GT er líka að koma út og það er að fá verulega góða dóma hjá tomma.

http://www.tomshardware.com/2007/10/29/geforce_8800_gt/