Síða 1 af 1

8800 GTS 640MB vs. 8800 GTX 768MB

Sent: Fim 11. Okt 2007 00:01
af dezeGno
Er það mikill performance munur á þessum kortum að það sé 7.000 kr. virði?

Ætlaði að fá mér þetta kort: http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_35_77&products_id=665

En ég er að spá í þessu: http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_35_77&products_id=528

Er virkilega svo mikill munur á þessum kortum?

Sent: Fim 11. Okt 2007 13:06
af Selurinn
Ehhh GTX by far.......

Sent: Fös 12. Okt 2007 08:45
af stjanij
ef þú ert með 19" skjá þá er 640 MB kortið nóg, enn ef þú ert með stærri skjá þá GTX klárlega

Sent: Fös 12. Okt 2007 09:13
af ÓmarSmith
320mb og 640mb kortin eru alveg eins. Myndir bara fá þér 320mb kort.

En GTX ið tekur hin alveg í nefið.


Þannig að annaðhvort færðu best bang for buck með 8800GTS 320mb. Eða klárar dæmið bara strax og færð þér besta kortið í dag 8800GTX.


( 8800 ULTRA er ekki fimmkall betra áður en þið farið að fleima, það munar á blaði kannski 2% en er það 20.000 virði... hahaha )


http://www.tomshardware.com
http://www.anandtech.com

Sent: Fös 12. Okt 2007 09:46
af Daz
ÓmarSmith skrifaði:320mb og 640mb kortin eru alveg eins. Myndir bara fá þér 320mb kort.


Nei, það munar 320 mb á þeim :roll:

En annars, meira minni leyfir manni hærri upplausn og þá líklega meiri detail osfrv. Sé ekki alveg hvernig það getur verið "enginn munur" (en endilega uppfræddu mig!).

Sent: Fös 12. Okt 2007 12:05
af ÓmarSmith
Skoðaðu reviews bæði á THG og Anandtech. Virtustu svona síður sem þú finnur og þeirra conclusion er einfaldlega ða það munar engu á þessum kortum.

320mb kortið er meira að segja að skora hærra í mörgum testum en 640mb kortið.

Það er alveg staðreynd að 640mb kortið er flopp.

Sent: Mán 15. Okt 2007 14:04
af Holy Smoke
Eh, nei. 320meg kortin eru alveg á síðasta snúning núorðið. Unreal Tournament 3 demoið er að fylla framebufferinn á 320meg kortinu mínu, og það er ekki að nota nema 'medium' textúrur. Sama gildir um fullt af nýjum leikjum og fer versnandi; 320meg er til dæmis allt of lítið fyrir 'high' textúrur í World in Conflict og ég býst ekki við öðru af Crysis.

Ég er alla vega farinn að finna voooðalega mikið fyrir of litlu minni á kortinu, og þá sérstaklega með AA. Og ég er bara að keyra í 1680x1050. En ef þú sættir þig við 'medium' stillingar þá er það náttúrulega allt annar handleggur.

Sent: Mán 15. Okt 2007 15:11
af ÓmarSmith
Já núna en það er samt bara staðreynd að þessi kort eru alveg eins góð í flestum tilvikum og 640mb kortin.

og ég var ekki að tala um 1680 upplausn.

allt að 1600x1200 þá eru þau alveg eins góð ;)

Sent: Mán 15. Okt 2007 15:59
af Stebet
ÓmarSmith skrifaði:allt að 1600x1200 þá eru þau alveg eins góð ;)


Fyrir þá leiki sem eru komnir út já.

EN um leið og Crysis, UT3, GoW PC og þessir leikir sem byggja alfarið á shaderum og multiple textureum þá verður 320mb kortið fljótt að verða eftirá.

Company of Heroes t.d. maxar texturememoryið á 320mb kortinu nú þegar.