Síða 1 af 1
Álit ykkar á þessari uppfærslu
Sent: Fim 18. Sep 2003 17:20
af mufusus
Þetta móðurborð
http://computer.is/vorur/3135 9.000 MSI 648F NEO
Örri : Intel P-4 2,4Ghz 512K 800Mhz með kæliviftu 19,900,- í expert
Minni:
http://computer.is/vorur/1061 11.970
eða þetta 512MB DDR 400MHz Princeton GPM400X64C25/512/HR Verð: 9.999 kr. í bt
Skjákort :
http://computer.is/vorur/2929
Er svona að reyna að hafa þetta undir 60.000 en endilega segið mér hvað ykkur finnst ekki eiga að vera þarna og hvað eigi að vera. Er byrjandi í þessum hardware málum
Sent: Fim 18. Sep 2003 21:19
af Arnar
Ég myndi allavegana ekki versla við BT

Sent: Fim 18. Sep 2003 22:42
af mufusus
Já ég var einmitt hræddur við það. En ég veit ekkert hvaða merki er á ddr minninu frá computer.is
Sent: Fös 19. Sep 2003 00:40
af Arnar
Hérna er Kingston minni frá computer.is :
http://computer.is/vorur/2051
kostar 14þús
Sent: Fös 19. Sep 2003 10:08
af OverClocker
"Princeton" er ekki merki... þetta er noname junk..
Sent: Fös 19. Sep 2003 11:49
af halanegri
Það er skóli

Sent: Fös 19. Sep 2003 14:35
af mufusus
Hvernig lýst ykkur annars á msi móðurborðið og Albatron Geforce skjákortið ?
Sent: Fös 19. Sep 2003 15:15
af Zaphod
Hvað ætlar þú að gera við þessa vél ? Leikir ( þá er þetta skjákort ekki að meika það ) ........
ég hef átt 2 MSI móðurborð og er planna kaup á því 3ja . þannig að ég er mjög hrifinn af þeim .
Sent: Fös 19. Sep 2003 15:42
af mufusus
Þannig að msi er alveg að standa sig flott, en þarna já ég spila eiginlega ekkert leiki þannig þetta ætti bara að virka vel.
Sent: Fös 19. Sep 2003 22:01
af Tornado
Ég mæli ekki með BT ef þú ert að spá í að versla íhluti, þeir eru alveg ferlegir ef eitthvað kemur uppá (gölluð vara t.d.), þannig að ef ég væri þú þá myndi ég frekar greiða örlitið meira og vera handviss um að þjónustan sé í lagi ef eitthvað kemur uppá. Nú tala ég af eigin reynslu.
Kveðja, Tornado.
Sent: Lau 20. Sep 2003 03:00
af gnarr
síðan hvenar er maður að borga meira fyrir að versla ekki í bt?
Sent: Lau 20. Sep 2003 12:00
af Zaphod
Aldrei Bt eru ekki ódýrir , start.is og Computer.is eru allavega ódýrari ....
Síðan þegar þeir auglýsa einhverja vöru á fínum prís þá er hún bara ekkert til(Ati Radeon 9800 pro )
Sent: Mán 10. Nóv 2003 09:26
af Fox
P4C800 myndi ég velja sem p4 borð.
Sent: Mán 10. Nóv 2003 17:00
af odinnn
en þetta borð sem Fox er að benda á er Asus gerðar og vert er að benda á það þar sem ekki allir vita hvað "P4C800" þýðir.
sem sagt Asus P4C800
Sent: Mán 10. Nóv 2003 18:10
af Fox
Til þess er Google
Sent: Þri 11. Nóv 2003 08:59
af viddi
Sent: Þri 11. Nóv 2003 11:26
af goldfinger
Ef þú ætlar að fá þér FX5200 Kort þá færðu þér eitthvað annað kort en þetta!!! Ég er með FX5200 Ultra frá tölvulistanum..miklu betra, ekkert lagg!
Spila til dæmis með 90-100 í fps í mohaa sem er magnað!!!

Sent: Þri 11. Nóv 2003 18:37
af RadoN
ég ætla mér að mótmæla þessari ráðleggingu..
FX kortin eru bara rusl, eins og hefur komið fram á lagflestum þráðum hérna síðan þau komu út..
ATi Radeon kortin eru að gera miklu betri hluta en FX nokkurntíman.. nVidia Ti kortin eru enþá mikið betri