Síða 1 af 1

Vélin startar ekki

Sent: Mán 08. Okt 2007 22:40
af ÓmarSmith
Sælar elskurnar.

Núna er ég retarded og var að fikta í mólexi í vélinni í dag með þeim afleiðingum að það kom skamhlaup í það ( var í raun bara að færa þau í sundur því þetta var allt í klessu )

Það kom bara oggu ponsu neisti og svo slökkti vélin á sér.

Núna gerist bara akkúrat ekkert :S Fór með PSU ið í Tölvutækni í kvöld og það mælist alveg í lagi og kviknar strax á því þar.

Ég tók allt úr vélinni í kvöld og setti allt í hana aftur en allt virkar ekki. Hún bara einfaldlega kveikir ekki á sér , en það kom nokkkrum sinnum svona hálfstart.. eða öllu heldur vifturnar fóru hálfan hring og svo búið.

Grilllaðist eitthvað í vélinni eða hvað getur verið málið ?


Ég trúi því ekki að smá mólex neisti hafi rústað e-u mikilvægu í vélinni ...

Endilega þið sem meira vitið látið ljós ykkar skína.

Sent: Mán 08. Okt 2007 23:42
af GuðjónR
Sá hlutur sem þú skammhleyptir er væntanlega ónýtur.
Móðurborðið, skjákortið eða master-HDD...
Nota svo útilokunaraðferðina.

Sent: Þri 09. Okt 2007 00:04
af Pink-Shiznit
Ég lenti í því sama :p Móðurborðið var vandinn. Eins fáránlega og það hljómar þá var mér sagt að taka það úr, setja það aftur í og nota 4 skrúfur til að halda því og það virkaði! Merkilegt nokk

Sent: Þri 09. Okt 2007 00:14
af Yank
þú hefur því miður líklega grillað eitthvað. Myndi skjóta á móðurborð eða minni.

Sent: Þri 09. Okt 2007 11:31
af TechHead
12V tengd í móðurborð.

12V+ og Jörð slá saman = dautt móðurborð :-({|=

Sent: Þri 09. Okt 2007 11:42
af CendenZ
TechHead skrifaði:12V tengd í móðurborð.

12V+ og Jörð slá saman = dautt móðurborð :-({|=



Nákvæmlega, ég er búinn að missa mörg móðurborð með custom modding :)

alltaf að passa sig á þessu, algjör rookie mistake [-X

Sent: Þri 09. Okt 2007 12:13
af ÓmarSmith
Móðurborðið er ristað .. fékk það staðfest áðan.


en það gerðist bara með hotplöggi.

Móðurborð eiga ekki að skemmast við það. GLÆTAN.


Það hafa allir gert þetta milljón sinnum. OG svona ný móðurborð eiga að vera með extra góða þétta og fleira..

Jæja, þá er bara að fá sér nýtt.


Tek P35 borð í staðinn bara.