Síða 1 af 1

Afgjafi fyrir nýja tölvu

Sent: Fim 13. Sep 2007 21:08
af McArnar
Sælir

Er að spá í aflgjafa fyrir nýju tölvuna mína

Ætla að kaupa þetta:

Intel Core 2 Quad Q6600 2.4GHz
GeIL 2GB Black Dragon PC2-6400 DC(2x1GB)
PCI-E - NVIDIA - Sparkle Geforce 8800GTS 640 MB GDDR3
500GB Western Digital SE16 - SATA II
150 GB, Western Digital Raptor
GIGABYTE, GA-P35-DS3 Móðurborð

Fór á eXtreme Power Supply Calculator http://www.extreme.outervision.com/

og þar segir að ég þurfi 650W til að keyra þetta allt.....stemmir það?
Og ef það stemmir hvaða aflgjafa mælið þið með?

p.s er líka að spá í að flestir spennugjafar sem ég hef séð eru með ATX2.2 staðal....hvað þýðir það...eru þeir stærri um sig?
Er með 4 ára gamlan turn frá Chieftec og er ekki að finna uppl. um hvaða spennugjafi passar í hann.

Takk fyrir.

Sent: Fim 13. Sep 2007 22:17
af Revenant
ATX2.2 þýðir bara að þeir hafa 20/24 pinna rafmagnstengi plús 4 eða 8 pinna auka rafmagnstengi. Þeir eru annars nákvæmlega eins á hæð og breidd en lengdin getur verið mismunandi (sem getur skapað vandræði í smærri kössum).

Sent: Fös 14. Sep 2007 10:38
af Prags9
Þetta segir að ég þurfi 650w en ég er með corsair 520w, Hefur þetta einhver áhrif á getu tölvuna ? hún virðist virka fínt :/
quad6600,nvidiagtx,1x500gb,dvdrw drif, gigabyteds3 mobo, 2 corsair stikur.

Sent: Fös 14. Sep 2007 12:15
af Daz
Í system type áttu að velja Single processor. Ég fæ undir 400w með þessum vélbúnaði + dvd skrifara og "capacitor ageing" í 15%.

Sent: Fös 14. Sep 2007 12:56
af Revenant
Það er samt betra að vera með aðeins stærra PSU en mælt er með svo að þú sért ekki að svelta hlutina. Þú setur ekki bensín sem jói frændi bjó til útí bílskúr á nýja BMW-inn ;) 520W ætti alveg að duga þótt að ég mundi persónulega taka amk 600/650W.

Sent: Fös 14. Sep 2007 13:36
af Daz
Revenant skrifaði:Það er samt betra að vera með aðeins stærra PSU en mælt er með svo að þú sért ekki að svelta hlutina. Þú setur ekki bensín sem jói frændi bjó til útí bílskúr á nýja BMW-inn ;) 520W ætti alveg að duga þótt að ég mundi persónulega taka amk 600/650W.

Ég skil ekki alveg þetta "svelta hlutina". Annaðhvort fá hlutirnir það afl sem þeir þurfa eða ekki. Tölva sem þarf 400w ætti að vera mjög vel sett með 520w gæða aflgjafa (það er náttúrulega munur á aflgjöfum sem eru uppgefnir með sömu wattatölu, stundum er verið að fara einhverjar svindl leiðir til að fá út hámarkstölurnar).

Sent: Fös 14. Sep 2007 16:21
af McArnar
Ok...fór aftur á síðuna og sá að Quad er merkt sem single processor.

Fékk 378W núna....en þarf samt að skipta um PSU.....

Hverju mælið þið með c.a 500-600W

Sent: Fös 14. Sep 2007 19:27
af Klemmi
http://www.xtremesystems.org/forums/showthread.php?t=108088
Þessi listi er nú kannski ekki til að hengja sig upp á, en má samt alveg taka mið af honum í vali á aflgjafa.

En annars ættirðu ekki að þurfa meira en vandaðan 450W aflgjafa, en skemmtilegra að fara upp í 500-550W ef þú sérð fram á að bæta við vélbúnaðinn seinna meir.