Síða 1 af 1

Tölva fer allt í einu að hiksta

Sent: Þri 04. Sep 2007 20:23
af gunnargolf
Það hefur komið nokkru sinnum uppá hjá mér að undanförnu að tölvan hefur allt í einu farið að hiksta svakalega, eins og maður sé að spila rosa þungan leik sem hún ræður ekki við.

Það er hins vegar ekki ástæðan, vegna þess að þetta er að gerast bara hvenær sem er.

Það er reyndar eitt sem mér dettur í hug. Gæti nokkuð verið að harði diskurinn sé að klikka?

Hvað gæti þetta hugsanlega verið?

Sent: Mið 05. Sep 2007 18:29
af Zorba
Tjékkaðu hvort að diskurinn sé í PIO mode fyrst. Ef ekki prufaðu að defragga diskinn og installa driverum fyrir skjákortið

Sent: Fim 06. Sep 2007 07:23
af gunnargolf
DMT skrifaði:Tjékkaðu hvort að diskurinn sé í PIO mode fyrst. Ef ekki prufaðu að defragga diskinn og installa driverum fyrir skjákortið


Hvað er PIO mode og hvernig kveikir maður á þvi?[/b]

Sent: Fim 06. Sep 2007 10:23
af Snorrmund

Sent: Fim 06. Sep 2007 22:10
af gunnargolf
Það er ekki á PIO. En þetta gerist samt bara allt í einu. Gerðist bæði fyrir og eftir format.

Ég ætla að fara með tölvuna í tölvutek. Er það ekki annars gott verð og góð þjónusta?

Sent: Fös 07. Sep 2007 07:25
af gunnargolf
Eða er kísildalur betri, hvað segið þið?

Sent: Fös 07. Sep 2007 15:05
af Pandemic
geturu gefið okkur aðeins fleirri upplýsingar um tölvuna þína?

t.d kubbasett...
mér dettur í hug GART driver sem ég hef séð gera svipaða hluti.

Sent: Fös 14. Sep 2007 14:43
af gunnargolf
Ég fór með tölvuna í Tölvutek og þeir afgreiddu þetta fyrir mig. Það sem var að var skráarkerfi í ólagi á disknum.

Ég vil hrósa Tölvutek fyrir frábæra þjónustu og gott verð. Þeir gerðu ýtarlega verklýsingu og fullt of prófunum á tölvunni og fleira. Þeir rukkuðu mig einungis um 2.990kr fyrir allt saman.

Reyndar mættu vera betri samskipti milli sölumanna og viðgerðarmanna, en mér var sagt að verkið yrði líklega búið á mánudegi eða þriðjudegi, en kláraðist á föstudegi (semsagt vika). Það var samt allt í lagi og ég er mjög sáttur með þá í Tölvutek. Ég mæli með þeim :)