Síða 1 af 1

Hard Disk not readable......

Sent: Fim 30. Ágú 2007 18:59
af Selurinn
Sælir aftur.

Ég ætla að búa til nýjan kork vegna þess að hinn var bara út og suður hjá mér.


Þetta var semsagt 400gb Caviar WD diskur sem að var með 2 partitions og hann bara crashaði.

En allt í einu komu báðir partitionar aftur og heita báðir Local Disk.

Ég get accessað hinn en hann segir að hinn sé ekki formateraður.

Þennan sem ég kemst inná, þá nær hann ekki að flytja gögnin á annan disk.

Búinn að prófa GetDataBack, Ontrack Recovery, Recover my files og Spinrite. Þessi forrit stoppa ÖLL á 2% þegar þeir eru að scanna diskinn. Rekast á einhvern bad sector og bara stoppa þarna. (24 klst allavega) gafst bara upp. Búinn að láta hvert einasta forrit reyna á þetta, allavega þessi sem ég nefndi og það nær enginn að klára að scanna.


Veit einhver hvernig hægt er að ná þessi gögn úr disknum.

Sent: Fim 30. Ágú 2007 19:26
af Viktor
chkdsk e: /r /f í cmd?

Sent: Fim 30. Ágú 2007 22:30
af Selurinn
Viktor skrifaði:chkdsk e: /r /f í cmd?


Hann hjálpar ekkert :(

Sent: Fös 07. Sep 2007 04:55
af Minuz1
Farðu með diskinn til fagmanna ef þú þarft gögnin nauðsynlega.

Getur prófað að kaupa nákvæmlega eins disk og skipta um platter-a á milli....reyndu bara að vera viss um að vera jarðtengdur og lítið sem ekkert ryk nálægt.

Er þetta annars ekki SMART diskur? á hann ekki að gefa upp einhver villuboð?
Heyrast skrítin hljóð í disknum við vinnslu? hvernig þá?

Sent: Fös 07. Sep 2007 07:59
af Selurinn
Minuz1 skrifaði:Farðu með diskinn til fagmanna ef þú þarft gögnin nauðsynlega.

Getur prófað að kaupa nákvæmlega eins disk og skipta um platter-a á milli....reyndu bara að vera viss um að vera jarðtengdur og lítið sem ekkert ryk nálægt.

Er þetta annars ekki SMART diskur? á hann ekki að gefa upp einhver villuboð?
Heyrast skrítin hljóð í disknum við vinnslu? hvernig þá?



Hann vill alltaf skanna diskinn með chfdsk eitthvað þegar ég kveiki á tölvunni með diskinn kveiktan.
Svo verður tölvan mjög hæg með diskinn.
Fór með hann í viðgerð og gæjarnir sögðu að þessi diskur væri bara fucked beyond reasons. En ég gefst þó ekki upp, ég ætla að ná þessu.