Síða 1 af 1

ASUS P5N-E SLI

Sent: Mið 29. Ágú 2007 13:28
af Daz
Er að leita mér að móðurborði í nýja tölvu og er svolítið hrifinn af þessu
Kostir:
viftulaust
ATX
Viftustýringarmöguleikar í software
virðist fá sæmileg review

Getur einhver stungið upp á áhugaverðara borði fyrir það sem ég er að velta fyrir mér (Core 2 Duo leikjavél, sem þarf ekki að vera bleeding edge, viftustýringarmöguleikar vinsælir sem og engar viftur á borðinu sjálfu til að eiga auðveldara með að láta hana verða hljóðlausa/litla).

Sent: Mið 29. Ágú 2007 17:25
af Yank
Ég er að vinna að stóru móðurborðs review og hef testað þetta tiltekna móðurborð.

Ekki búinn að taka saman endanlegar niðurstöður en þetta borð er að performa á mjög svipuðu róli og intel 975, 965 borð. Klukkaðist líka ágætlega, og með mörgun sniðugum fídusum. Mjög gott borð bara.

Sent: Mið 29. Ágú 2007 22:25
af Taxi
Yank skrifaði:Ég er að vinna að stóru móðurborðs review og hef prófað þetta tiltekna móðurborð.

Ekki búinn að taka saman endanlegar niðurstöður en þetta borð er að performa á mjög svipuðu róli og intel 975, 965 borð. Klukkaðist líka ágætlega, og með mörgun sniðugum fídusum. Mjög gott borð bara.

"Klukkaðist ágætlega"
Ég er með E6300@3,4GHZ,486FSB og DDR800@1185 MHz,CL5-5-5-15. :D
Ég hef náð 1229MHz á minnunum en það var ekki stable.

Það er ekki hægt að fá mikið stöðugra móðurborð í yfirklukk finnst mér.

Það gerist ekki mikið betra á þessu verði,finnst mér allavega. :wink: