Síða 1 af 1
Hækkun á örgjövum??
Sent: Mið 15. Ágú 2007 12:56
af sibbsibb
Getur eitthver sagt mér afhverju örgjavar eru að hækka þessa dagana í staðinn fyrir að lækka?
Ég var að pæla í E6600 sem kostaði 13.900 fyrir nokkrum vikum en er núna kominn upp í 16.500?
Sent: Mið 15. Ágú 2007 14:20
af TestType
Góð spurning. Hugsanlega vegna dræmrar sölu vegna nýrri og vinsælli örgjörva? Þætti gaman að vita hvað veldur þessu nákvæmlega.
Sent: Mið 15. Ágú 2007 14:31
af corflame
Er það ekki bara vegna hækkunar á US$ ?
Sent: Mið 15. Ágú 2007 15:11
af Yank
Það voru sumar vörur eins og CPU á undir kostnaðarverði til sölu hjá sumum búðum. Það endist ekki til lengdar.
Sent: Mið 15. Ágú 2007 16:37
af sibbsibb
Mér var ráðlagt að hinkra aðeins með kaup á cpu því það væru að koma nýjir á markaðinn. Sú ráðlegging hefur líklega ekki verið ekkert alltof góð kannski? Teljið þið að örgjörvarnir muni eitthvað lækka eða fara áfram hækkandi?