Síða 1 af 1
8800 ULTRA Kæling
Sent: Fös 10. Ágú 2007 08:30
af Arkidas
Hvernig kælingu mælið þið með fyrir 8800 ULTRA?
Sent: Fös 10. Ágú 2007 09:03
af TechHead
Tja, stock kælingin sem fylgir með Ultra kortunum er nú bara fín.
Annars er vatnskælingin næsta skref þar fyrir ofan, og þá mæli ég eindregið með vatnssökklunum frá Swiftech.
Sent: Fös 10. Ágú 2007 15:33
af stjanij
stock kælingin er nógu góð hitt er bara auka kosnaður og vesen, svo er ábyrðin í veseni er þú ert að taka kortið í sundur.
varstu að pæla að yfirklukka kortið til helvítis ?
Sent: Fös 10. Ágú 2007 19:53
af ÓmarSmith
Algjer óþarfi nr1 að KLUKKA þetta kort. Það er bara hlægilegt.
Stock kælingin á öllum 8800 Nvidia kortunum er mjög fín og hljóðlát í þokkabót.
Myndi ekki fórna ábyrgð fyrir svona silly hlut.
Sent: Fös 10. Ágú 2007 20:11
af Arkidas
Var að hugsa um hljóðlausa vatnskælingu en það er tæpast til hérlendis.
Sent: Lau 11. Ágú 2007 19:06
af ÓmarSmith
Arkidas skrifaði:Var að hugsa um hljóðlausa vatnskælingu en það er tæpast til hérlendis.
Uhh.. Kælingin sem er stock er alveg við það að vera 100% Silent.
Ég amk heyri ekki rassgat í minni. Einu vifturnar sem heyrist í úr mínum Antec P180 eru kassavifturnar og í HDD unum en það er mjööög lágt og smooth hljóð.
Sent: Mið 22. Ágú 2007 12:44
af Klesh
Ef þú lest betur póstinn hans þá sagði hann hljóðláta vatnskælingu, er hún svo hávær?
Sent: Mið 22. Ágú 2007 20:29
af ManiO
Vatnskælingar þurfa ekki að vera dead silent... Getur sett 2 Deltur á radiatorinn t.d.
Og svo eru sennilega "flestir" sem fá sér Ultra kortin meira í að bencha heldur en að spila leiki, og þá að sjálfsögðu yfirklukkar maður þau. En þá er maður sennilega líka með þurrís "pot" eða LN2.