Kaupa ad utan
Sent: Mið 08. Ágú 2007 21:18
af Arkidas
Ef eg kaupi skjakort her i Danmorku a 52.000, tharf eg tha ad borga toll eda vsk?
Sent: Mið 08. Ágú 2007 21:35
af dadik
Ef þú kemur með það heim í ferðatöskunni og tollurinn finnur það ekki er svarið nei. Annars þarftu að borga (52.000 - 23.000) * 24,5% = 7.250 krónur í virðisauka.
En ef þú ert sniðugur þá færðu þetta tax-free hjá söluaðilanum og færð svo skattinn endurgreiddan þegar þú kemur á Kastrup. Í því tilfelli kemurðu nánast út á sléttu því að virðisaukinn er nánast sá sami hér og í danaveldi.
Og ef þú ert verulega heppinn og færð skattinn endurgreiddan í DK og tollurinn tekur þig ekki í tékk þá græðirðu á öllusaman því að þú færð jú kortið virðisaukalaust í Danmörku og borgar engan virðisauka hérna heima. Sniðugt, ekki satt?
Já og að lokum, ef þú tekur þetta með pósti þarftu að borga virðisauka af allri upphæðinni því það er jú ekkert tollfrjálst limit þegar þú fær hluti senda með pósti ólíkt því þegar þú kemur með þá sjálfur til landsins.
Núna þarftu bara að velja ..
Sent: Fim 09. Ágú 2007 09:10
af Arkidas
Ef eg vill fa tax tee, verd eg ekki ad fara i budina? Odyrari budirnar eru flest allar utan KBH, hef allavegana ekki fundid neina sem selur 8800 ULTRA undir 5000DKK innan KBH.
