Síða 1 af 1
Hvaða móðurborð fyrir E6750
Sent: Mið 08. Ágú 2007 17:56
af °°gummi°°
Ég var að spá í þennan örgjörva en hef ekki mikið vit á móðurborðum þessa dagana
Hverju mynduð þið mæla með? (Helst með Firewire)
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=792
Er annars helst að pæla í þessu borði hér, nema hvað það vantar firewire sýnist mér.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 906857d922
Sent: Mið 08. Ágú 2007 19:15
af GuðjónR
Sent: Mið 08. Ágú 2007 20:04
af stjanij
hvað ertu að fara nota vélina í?
hvaða skjákort, minni, diska ofl. ertu með? þarftu SLI?
gefa betri uppl.
þarf þetta að kaupast í att.is?
Sent: Fim 09. Ágú 2007 09:45
af °°gummi°°
takk fyrir svörin.
Það sem ég er að leita eftir er vél sem er dugleg við myndvinnslu og video editing. Hún verður ekki notuð í leiki svo að ég hugsa að Crossfire og SLI sé óþarft (ef ég skil hlutina rétt).
Hef hugsað mér að hafa einn 150GB raptor plús einn 500-750GB til að byrja með og ætla að byrja með 2GB hratt minni í henni. Þar sem ég verð mest í 2D vinnslu hef ég ekki haft neinar áhyggjur af skjákortinu.
Borðið má koma hvaðan sem er.
BTW. Stjanij, ég sé að þú ert með 24" Samsung, er það 244T skjárinn?
Sent: Fim 09. Ágú 2007 10:19
af stjanij
já, frábær skjár, get ekki verið sáttari

.
enn, með móðurborð fyrir þig þá er gott að muna að móðurborðið er grunnurinn að góðri tölvu. taka gott broð sem þú hefur möguleika á að skipta út hlutum á þannig að það úreldist ekki á 1 ári eða svo.
ég myndi taka quad core örgjörva, hann nýtist vel í það sem þú ert að hugsa og er framtíðar gripur ( 2 ár ) max
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=669
og
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... ts_id=6206
þetta borð styður framtíðar 45nm framl. á örgjörfum og er með firewire. porti. flott borð.
Sent: Fim 09. Ágú 2007 21:30
af Zorba
Það er nú ekkert mál að fá sér pci firewire kort
Sent: Fös 17. Ágú 2007 14:34
af Harvest
°°gummi°° skrifaði:takk fyrir svörin.
Það sem ég er að leita eftir er vél sem er dugleg við myndvinnslu og video editing. Hún verður ekki notuð í leiki svo að ég hugsa að Crossfire og SLI sé óþarft (ef ég skil hlutina rétt).
Hef hugsað mér að hafa einn 150GB raptor plús einn 500-750GB til að byrja með og ætla að byrja með 2GB hratt minni í henni. Þar sem ég verð mest í 2D vinnslu hef ég ekki haft neinar áhyggjur af skjákortinu.
Borðið má koma hvaðan sem er.
BTW. Stjanij, ég sé að þú ert með 24" Samsung, er það 244T skjárinn?
Mæli með þessum skjá ef að þú ert að pæla í því.
Svo heyrði ég um daginn að 750 diskarnir væru varasamir vegna hita. Viðkomandi sagðist vera búinn að fara í gegnum 4 svona diska sem að allir enduðu á einum stað.