Síða 1 af 1

Jetway Radeon HD 2900XT review

Sent: Fös 20. Júl 2007 14:30
af Yank
Ný umfjöllun Radeon HD 2900XT en tölvubúnaður skapar sjaldan eins mikla eftirvæntingu og þetta skjakort hefur gert meðal áhugamanna um slíka hluti.

Í þessa umfjöllun hefur farið mikil vinna. T.d. tekur hvert Supreme Commander test run 7 mínútur. Öll próf voru framkvæmd þrisvar og meðaltal takið af þeim niðurstöðum.

Þrátt fyrir mikla vinnu þá er þetta ekki tæmandi umfjöllun á kostum þessa skjákorts því enginn DX10 próf voru framkvæmd. Það er þó enfaldlega vegna þess að ég tel að eins og staðan er í dag þá séu slíkar niðurstöður vart marktækar sökum þess hve reklar, og leikjaþróun í þá átt er skammt á veg komin. Það er því ekki tímans virði að svo stöddu að standa í slíku.

Þessa umfjöllun má finna hér http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=15064

Þar sem umræður varðandi AMD/ATI vs Nvidia eru oft meira tengdar trúarbrögðum þá forðaðist ég fullyrðingar og skrautlegar lýsingar og vona að þetta sé hlutlaus umfjöllun. Sér í lagi þar sem ég telst til ATI fanboys fremur en Nvidia.

Njótið kveðja Yank

Sent: Fös 20. Júl 2007 14:46
af DoRi-
gott framtak

mér sýndist 8800gtx hafa yfirburði í hraða í all flestum tilvika

en kortið er greinilega ekki jafnmikið rusl og ég hélt að það væri

Sent: Fös 20. Júl 2007 17:44
af fr0sty
hmmm...ég held að 8800 kortið hafi verið stillt á performance frekar en quality þegar þið sýnduð myndgæðina, þar sem flestir áhugamenn um vélbúnað eru sammála að myndgæðin hjá 8800 seríuni er betri en hjá 2900..sjá td: http://www.bit-tech.net/hardware/2007/0 ... 2900_xt/11 Annars flott umsögn...

Sent: Fös 20. Júl 2007 23:00
af Yank
fr0sty skrifaði:hmmm...ég held að 8800 kortið hafi verið stillt á performance frekar en quality þegar þið sýnduð myndgæðina, þar sem flestir áhugamenn um vélbúnað eru sammála að myndgæðin hjá 8800 seríuni er betri en hjá 2900..sjá td: http://www.bit-tech.net/hardware/2007/0 ... 2900_xt/11 Annars flott umsögn...


Fyrsta skiptið sem talað er um mig í fleirtölu :wink:

Sú grein sem þú gefur link á máli þínu til stuðnings að Nvidia 8800 hafi yfirburði fram yfir HD 2900XT notast við eldri driver en Catalyst 7,4 en ég notaði Catalyst 7,5. Einnig er aðalega verið að fjalla um kosti AF hjá Nvidia, en forðast að nefna HDR eða AA.

Þetta eru því ekki sambærileg próf þar sem ég er bæði að keyra HDR, AFx16 og AAx8. Ég er ekki alveg að kaupa þetta hrátt eftir eiginn reynslu, eins og svo margt annað sem hægt er að lesa í þessum efnum.

Í Far Cry er HD 2900XT með yfirhöndina varðandi myndgæði, eins og þú sjálfur í raun viðurkennir. Hvort það staðfesti að HD 2900XT gefi alltaf betri myndgæði er óvíst.

Þessi mynd kemur í þessum gæðum hér að neðan ef notast er við Performance stillinguna sem þú varst að hafa áhyggur af að hefði verið notuð. Prófið síðan keyrt í þeim stillingum sem ég notaði. Nei!! það var ekki keyrt þannig enda hefði það vægast sagt komið illa út fyrir Nvidia :lol:

Sent: Lau 21. Júl 2007 20:26
af fr0sty
Ok það virðist sem 2900xt kortin séu að verða bara nokkuð mögnuð...Hefuru prófað catalyst 7.7? Væri gjarnan til í að sjá muninn á 8800 og 2900 þegar notast er við cat 7.7.

Sent: Lau 21. Júl 2007 20:47
af Yank
fr0sty skrifaði:Ok það virðist sem 2900xt kortin séu að verða bara nokkuð mögnuð...Hefuru prófað catalyst 7.7? Væri gjarnan til í að sjá muninn á 8800 og 2900 þegar notast er við cat 7.7.


Nei því hefur verið skilað....

Hafði ekki hugsað mér að uppfæra þetta í bráð, enda kemur nýr catalyst nánast mánaðarlega.

Sent: Sun 22. Júl 2007 11:40
af halldorjonsson
Er einhver hérna með X2900 kortið eða ??
Ef svo er hvernig er það að virka, er það hávært? tekur það mikið afl? og síðan ekki síst, er það gott? og þessir driverar sem eru alltaf að koma, láta þeir skjákortið vinna betur og mun það kannski verða betra en 8800gtx með driverum eða :) ?

Sent: Sun 22. Júl 2007 12:07
af beatmaster
halldorjonsson skrifaði:mun það kannski verða betra en 8800gtx með driverum eða :) ?

Finnst þér það líklegt miðað við performance muninn á þeim í öllum þessum bench-um?

Sent: Sun 22. Júl 2007 12:09
af halldorjonsson
beatmaster skrifaði:
halldorjonsson skrifaði:mun það kannski verða betra en 8800gtx með driverum eða :) ?

Finnst þér það líklegt miðað við performance muninn á þeim í öllum þessum bench-um?


nú veit ég ekki, segð þú mér :)