Síða 1 af 1
Q6600 yfirklukkun?
Sent: Fim 19. Júl 2007 12:07
af stjanij
Sælir vaktarar,
ég er með Q6600 og er ekki ánægður með hvað ég er að ná honum í yfirklukkun, um 2.9 Ghz.
hvað eru þið að ná að yfirklukka Q6600 í?
Sent: Fim 19. Júl 2007 13:18
af ManiO
http://www.hwbot.org/quickSearch.do?hardwareId=CPU_919
Samkvæmt þessu er meðal yfirklukkið 3.5 GHz en hámark sem hefur náðst 4.789 GHz.
Sent: Fös 20. Júl 2007 23:08
af Zorba
Meðal yfirklukkið 3.5 ghz!?!?..Verður að hafa vatnskælingu eða betra fyrir þannig yfirklukk

Sent: Lau 21. Júl 2007 20:33
af stjanij
ég er nú að forvitnast hvernig fólki hérna á vaktinni hefur gengið að yfirklukka?
Sent: Sun 22. Júl 2007 12:42
af Tappi
stjanii. Ertu þá með default volt stillingar eða?
Sent: Mán 23. Júl 2007 19:38
af Zorba
Hvernig ertu með stillingarnar?..Voltin á örranum, minnis timings/hraða o.s.f.v.
Sent: Mán 23. Júl 2007 20:06
af GuðjónR
Hvernig er þessi örri í almennri vinnslu?
Ég tek eftir því með E6700 að oft þegar ég er að keyra forrit þá er bara annar kjarninn að vinna.
Er þá bara einn kjarni af fjórum að virka í venjulegri vinnslu með svona Q6600 örgjörva?
Sent: Mán 23. Júl 2007 20:34
af Zorba
..Forritið verður að vera multi threaded til að geta nýtt sér alla kjarnana
Sent: Mán 23. Júl 2007 21:41
af GuðjónR
DMT skrifaði:..Forritið verður að vera multi threaded til að geta nýtt sér alla kjarnana
Ef forritið er ekki multi-threaded þá væntanlega tapast 75% af aflinu...right ?
Sent: Mán 23. Júl 2007 22:13
af Zorba
Ef forritið væri multi threaded væri það mun hraðvirkara.
Málið er að það er svo mikið bögg að brjóta niður forritið í 4 symmetríska þræði
Sent: Þri 24. Júl 2007 15:47
af GuðjónR
Þá er maður kannski að tapa afli á þessu eftir allt saman, allaveganna sé ég að þegar ég unzippa með winzip þá er er annar kjarninn í 100% load en hinn er Idle...
Það verður gaman að sjá framförina þegar zip forritin nýta sér fjöl-kjarnana.
Sent: Þri 24. Júl 2007 17:15
af fr0sty
Ég var eimmit að panta svona örgjörva ásamt zalman 9700 og ég vonast til að ná honum í 3.0GHz. Vonandi fékk ég örran með G0 stepping þar sem hann á að keyra kaldari og nota minna afl. Hef reyndar heyrt að G0 klukki ekki jafnvel og gamla steppingið, B3, en ætti samt að ná 3.0 léttilega. Kanski eru það voltstillingarnar hjá þér? Hverning er Q6600 að hitna hjá þér? Idle og load?. Gætir líka prófað að halda minninu á stock hraða og sjá hversu hátt en mögulega kemst.
Sent: Þri 24. Júl 2007 19:13
af stjanij
örrinn er að keyra um 38 gráður idle, ég er með minnið í 5-5-5-18 á stock volt 1,85.
örrinn er á stock volt 1,32. ég var að lesa á erlendu spjallsíðunum að q6600 klukkast ekki mikið á loftkælingu

enn þetta er súper örri fyrir það.
get ekki beðið eftir multi threating leikjunum, þá fyrst fer örrinn að njóta sín
hvað eru menn hérna að ná q6600 uppí?
Sent: Þri 24. Júl 2007 19:17
af Zorba
Þú verður að hækka voltin til að komast hærra
Sent: Mið 25. Júl 2007 10:46
af stjanij
ég veit það, ég er að forvitnast um hvað q6600 hefur náðst í hérna á vaktinni

Sent: Mið 25. Júl 2007 17:39
af TechHead
...Reyndar ekki á vaktinni en samt áhugavert
Q6600 Yfirklukkun
Sent: Mið 25. Júl 2007 19:19
af stjanij
góður þetta er það sem ég var að pæla, takk
