Síða 1 af 1

Allt nema 1

Sent: Mán 25. Jún 2007 02:06
af halldorjonsson


Ég er búinn að gera saman tölvu, ALLT saman í tölvuvirkni.is
fyrir turnkassan, ég ætla kaupa mér þennan hérna turnkassa:
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=502
haldiði að þeir hjá tölvuvirkni myndu setja allt klassið upp frítt fyrir mig í
tölvukassann, þar sem ég er nú að kaupa allt hjá þeim uppá 130 þúsund nema 1 hlut?

kv. halldór

Sent: Mán 25. Jún 2007 02:11
af appel
Þurfti að lesa þetta tvisvar til að átta mig á því að þetta væri spurning, en ekki auglýsing! :)

Ég held að svona tölvuverslanir taki fast gjald fyrir að setja saman svona "custom" tölvur, síðast þegar ég vissi var þetta gjald um 5 þús kall (per tíma). Samkvæmt gjaldskránni hjá Tölvuvirkni er þetta 4.900 kr per klst.

Sent: Mán 25. Jún 2007 12:25
af DoRi-
ég veit að þeir myndu ekki setja þetta saman fyrir þig án gjalds
þekki þá of vel, og ég veit að þeiur munu alltaf vilja rukka þig meira

má samt alltaf reyna..

Sent: Mán 25. Jún 2007 21:46
af TechHead
Samsetningargjald hjá Tölvuvirkni: Linkur

Það er ekki verið að rukka meir en það :)

Sent: Lau 30. Jún 2007 14:08
af Harvest
átt bara að gera eitthverskonar samning við þá... t.d.ég kaupi allt hjá ykkur og þið setjið þetta saman frítt fyrir mig

ég geri það alltaf ef ég nenni ekki að geraþetta sjálfur

Sent: Lau 07. Júl 2007 15:13
af halldorjonsson
En hvað finnst ykkur um þennan turnkassa? er hann góður ?

Sent: Lau 07. Júl 2007 15:21
af ManiO
Hann fær góða dóma á flestum stöðum, en annars má alltaf deila um hve fallegur hann er :lol:

En kíktu bara á sumt hérna: http://www.google.is/search?hl=is&clien ... =Leita&lr=

Sent: Lau 07. Júl 2007 18:25
af Harvest
halldorjonsson skrifaði:En hvað finnst ykkur um þennan turnkassa? er hann góður ?


Eflaust ágætis kassi og allt það en mér finnst hann ekki það flottur.

Samt töff klæling þarna að framan.

Sent: Lau 07. Júl 2007 18:39
af halldorjonsson
já hann er ekki flottur,

en það fylgja 4 ofurviftur með honum sem er nokkuð gott og síðan er hann stór...

hvaða turnkassa mynduð þið fá ykkur? (max verð: 20þús)

Sent: Lau 07. Júl 2007 18:44
af ManiO
Ég persónulega myndi fá mér CM Stacker 830, ásamt nokkrum viftum, en þá er maður kominn yfir 30 þús :roll:

Sent: Lau 07. Júl 2007 18:53
af halldorjonsson
4x0n skrifaði:Ég persónulega myndi fá mér CM Stacker 830, ásamt nokkrum viftum, en þá er maður kominn yfir 30 þús :roll:


hvar er sá turnkassi til sölu?

fann hann, http://task.is/?prodid=2360
ég myndi fá mér hann væri hann með td. 600W aflgjafa á 27þúsund kall!

Sent: Sun 08. Júl 2007 09:40
af ManiO
Ég ætlaði reyndar að segja 832, en hann er full tower en Antec kassinn er mid-tower (þó nokkur reviews tala um að hlutirnir verða frekar þétt settir í nine hundred). 832 er úr áli, en Antec kassinn úr stáli. Mörg reviews tala líka um að build quality er ekki jafn mikið á nine hundred og á 832. Tala nú ekki um að ef að menn vilja þá er hægt að hafa 11 120mm viftur.