Síða 1 af 1
19" skjáir
Sent: Þri 09. Sep 2003 17:24
af END
Nú er ég með tvær spurningar í sambandi við tölvuskjái:
Hvaða 19" skjá mynduði mæla með á verðbilinu 20-30þús?
og
Er hægt að fá Mitshubishi skjái einhversstaðar á Íslandi?
Með fyrirfram þökk.
f
Sent: Þri 09. Sep 2003 18:05
af ICM
þeim dýrara þeim betra. ekki kaupa rusl merki. 75Hz er varla ásættanlegt. mæli með amk 1600x12000 annars sérðu í "netið"
Sent: Þri 09. Sep 2003 20:31
af kemiztry
Viewsonic virkar... Sony.. já og Mitsubishi
Sent: Þri 09. Sep 2003 22:27
af gumol
CTX
Sent: Sun 12. Okt 2003 22:04
af Buddy
Sýnist ódýrasta 19' Diamondtron vera á um 40k.
Sent: Mán 13. Okt 2003 20:35
af RadoN
hvað segja menn um
19" Mainstream FST skjár með flatri túbu (M992) - Midnight Grey,1600x1200@75Hz, 0,26mm á 29.900 kr. ?

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:54
af Voffinn
RadoN skrifaði:hvað segja menn um
19" Mainstream FST skjár með flatri túbu (M992) - Midnight Grey,1600x1200@75Hz, 0,26mm á 29.900 kr. ?

Ég á einn svona bjútí úr tölvulistanum, var að kaupa hann.
Það er bara kúl að vera með 1600*1200 í 75hz og kahakai sem wm
Ég er mjög hrifinn af honum og hann fékk meðal annars 81/100 á pcworld.
Þetta er auðvitað enginn Triniton skjár sem tekur 1600*1200 í 100hz og er ódauðlegur. Þetta er Amd skjánna, fast, good, cheap.
Sent: Mán 13. Okt 2003 21:00
af RadoN
frábært, ég ætlaði að kaup'ann núna í dag en klukkan var rétt orðin 18 þegar ég ætlaði að labba útí tölvulistann..
kaup'ann á morgun þá
vinur minn á 17" Sony Trinitron og hann er ekki alveg nógu ánægður með hann, er orðinn eitthvað blury og þannig
ekki vegna þess að hann sé með neina hátalara eða neitt segulmagnað nálægt honum!
Sent: Mán 13. Okt 2003 22:01
af Voffinn
Þegar þú minnst á það, þá er minn pínu blurry rétt vinstra megin
Veit ekkert hvort það sé galli eða ekki, fullt af hátölurum í kringum hann og svona.
Sent: Mán 13. Okt 2003 22:08
af RadoN
hahha, það eru hátalarnir, segull eyðileggur skjáinn!
taktu þá strax í burtu, annars verður þinn eins og minn (blurry as hell).. á mjög skömmum tíma!
Sent: Mán 13. Okt 2003 22:09
af Voffinn
... Þú hefir ekki átt að segja þetta, núna þarfég að rífa allt skipulagið sem er á tölvudraslinu mínu og endurraða

, hvað er recommended fjarlægð ?
Sent: Mán 13. Okt 2003 22:13
af Daz
Tölvuhátalarar eiga að vera "magnetically shielded" og valda þar með engum truflunum á skjáum.
Truflanir frá venjulegum hátölurum eiga ekki að valda neinum varanlegum skaða (eða það hélt ég ekki). Prófaðu að "degaussa" skjáinn.
Sent: Mán 13. Okt 2003 22:25
af RadoN
langvarandi segulmögnum skemmir þá..
lengdin fer alveg eftir hvað hátalararnir eru sterkir
margir hátalarar (ekki tölvu-) eru ekki með "magnetic shielded" og ég veit um fleir en minn skjá sem hefur eyðilagst alveg vegna hátalara.. skjáir sem voru verri en minn
Sent: Mið 15. Okt 2003 10:36
af Hlynzi
Yfirleitt eru nú ekki góðar vörur á ódýru verði. Ég myndi fá mér CTX, með diamondtron (eða trinitron) túbu, og PR (professional) línuna frá þeim.
Ég er með CTX pr705f, algjör geðveiki þessi skjár.. hann er ekkert rosalegur kannski í 1600x1200 upplausninni, en nær allavegana 85hz á þeim upplausnum sem ég nota hann á, ég er með default stillinguna á 1152x864 (minnir það) og á 85hz, 32 bita lit... og það virkar bara rosalega vel og hann hefur aldrei slegið feilpúst, að vísu er ég búinn að rústa snúrunni á honum svo ég þarf að fara að opna hann og setja bara venjulegt tengi í staðinn, þegar ég rek mig í snúruna verður skjárinn bleikur... já bleiklitaður, soldið böggandi. En ég redda því.
Ég mæli þessvegna eindregið með CTX, eins og þú lest, þá er eina vandamálið í honum er mér að kenna.
Sent: Mið 15. Okt 2003 13:32
af gumol
Sammála síðasta ræðumanni
Sent: Mið 15. Okt 2003 14:05
af ICM
sammála? þið eruð ekki að nota neina almennilega upplausn, ég er að verða þreyttur á að hafa bara 1600x1200 og 1280x1024 bæði í einu, vantar meira vinnupláss

Sent: Mið 15. Okt 2003 14:07
af gumol
það er ekkert betra að hafa meiri upplausn, þá er þetta orðið svo lítið að maður sér þetta ekki.
Sent: Mið 15. Okt 2003 14:09
af ICM
gumol skrifaði:það er ekkert betra að hafa meiri upplausn, þá er þetta orðið svo lítið að maður sér þetta ekki.
Ekki ef maður hefur sjón eins og ég

Sent: Mið 15. Okt 2003 18:14
af Voffinn
Ég verð að vera ósammála þessu, mér finnst fínt að hafa 1600*1200

Sent: Mið 15. Okt 2003 18:15
af gumol
en allt yfir það er of mikið á 17' skjá
Sent: Mið 15. Okt 2003 19:08
af RadoN
erum við ekki að tala um 19" skjái hérna?
en allt yfir það er of mikið á 17' skjá
17' (17 fet), hafa mælieiningar rétta

er með 19 sony triniton skjá
Sent: Mán 20. Okt 2003 01:29
af Pesinn
þið segið nokkuð eg er búinn að vera lika í veseni með minn skjá hann verður lika svona blury vinstra meginn. er með creative hátalara við hliðina á honum en ég trúi ekki að það se það sem er að. stundum kemur þetta og stundum ekki
gæti þetta verið galli hja sony. er búinn að fara með minn í viðgerð en það fannst ekkert að honum ???? prófa að fjarlægja hátalana í smá tíma og gá hvað skeður. látið mig vita hvernig gengur hjá ykkur
Sent: Mán 20. Okt 2003 08:25
af Pandemic
Gleraugu eru verk djöfullsins
i have one of them

Sent: Mán 20. Okt 2003 11:24
af Drizzt
jaa ég er með einhvern 19" fujitsu skjá hérna í 100hertzum í 1600x1200 og hefur virkað vel svona í ca 2 ár
