Síða 1 af 1
8800GTX framleiðendur
Sent: Fös 01. Jún 2007 18:51
af machinehead
Hvaðan er best að kaupa GTX skjákortið? Því flestar verslanir á Íslandi selja kort frá mismunandi framleiðendum. Þ.e. er einhver framleiðandi betri en annar? og eru OC kortin mikið betri en hin?
Sent: Fös 01. Jún 2007 20:22
af ÓmarSmith
Basicly eru þetta allt svipuð kort. Persónulega hef ég mjööög góða reynslu af BFG kortunum, solid as a rock og koma yfirklukkuð frá framleiðanda, eru alveg dead silent og hitna ekkert meira en önnur kort.
Sent: Fös 01. Jún 2007 23:30
af gnarr
afhverju segið þið alltaf "yfirklukka kortin" ?

Sent: Fös 01. Jún 2007 23:35
af machinehead
gnarr skrifaði:afhverju segið þið alltaf "yfirklukka kortin" ?

Ég ætlaði nú að segja "yfirklukkuðu kortin", veit ekki með hina
Sent: Fös 01. Jún 2007 23:36
af gnarr
mér líkar mun betur við það

Sent: Lau 02. Jún 2007 00:01
af beatmaster
Er það ekki þannig að ef að maður skrifar O og C saman í einu þá sé útkoman: oc sem að mér finnst óskaplega hvimleitt, svona eins og ttt og bump scripturnar voru
Edit: og Bum p scriptan greinilega lifandi enþá, má ekki slökkva á þessum lame húmor?

Sent: Lau 02. Jún 2007 03:30
af Taxi
það munar nánast engu á þessum framleiðendum.
þeir þurfa allir að fylgja svokallaðri "refrence design" sem þýðir að framleiðendur hafa lítið svigrúm til breytinga,nema á kælingum og yfirklukkun á kortunum.
Ég hef ekki sömu góðu reynslu af BFG og ÓmarSmith,eina skiptið sem ég keypti á Ebay fékk ég BFG 6600GT OC og það dó eftir 7 mán.
Ekki hætta með þennann "lame" húmor,þetta er Vaktin.is-húmor.
Sent: Lau 02. Jún 2007 08:51
af ManiO
Mesti munurinn eru í aukahlutunum og kannski útlitslegar. Sum kortin koma með leikjum "ókeypis" og kosta þar af leiðandi kannski aðeins meir. Stundum eru líka auka snúrur með sumum kortum sem fáir nota.
Sent: Lau 02. Jún 2007 14:18
af Mazi!
Ég er mikill aðdándi XFX og svo er ég svolítið hrifinn af Inno3d merkinu sem er í kísildal.
Sent: Lau 02. Jún 2007 16:54
af Xyron
ég hef verið sáttur við kortinn frá eVGA, hef reyndar ekki reynslu af neinu öðru frá nvidia
Sent: Lau 02. Jún 2007 23:26
af Yank
MSI skjákort hafa reynst mér sérstaklega vel. Annars er yfirleitt sama hjarta- og æðakerfið í þessu sama frá hvaða framleiðenda það er.
Sent: Sun 03. Jún 2007 00:22
af DoRi-
XFX og Sparkle hafa reynst mér vel
Sent: Sun 03. Jún 2007 05:04
af urban
Yank skrifaði:MSI skjákort hafa reynst mér sérstaklega vel. Annars er yfirleitt sama hjarta- og æðakerfið í þessu sama frá hvaða framleiðenda það er.
MSI hafa einmitt reynst mér alveg ótrúlega illa
það hafa skemmst hjá mér (vegna óútskýranlega hluta (semsagt ekki mín "mistök" inni í því)) 3 skjákort og 1 móðurborð
allt frá MSI, restin sem að þú sagðir er reyndar alveg satt, það er sama dótið í þessu öllu saman
en jám, með því að lesa yfir þessi svör þá sérðu að þetta er algerlega persónubundið
ég mundi, ef að þú hefur ekki slæma reynslu af neinu af þessum nöfnum, bara velja nafnið sem að þér finnst flottast eða með flottasta merkið
Sent: Sun 03. Jún 2007 13:27
af Yank
urban- skrifaði:Yank skrifaði:MSI skjákort hafa reynst mér sérstaklega vel. Annars er yfirleitt sama hjarta- og æðakerfið í þessu sama frá hvaða framleiðenda það er.
MSI hafa einmitt reynst mér alveg ótrúlega illa
það hafa skemmst hjá mér (vegna óútskýranlega hluta (semsagt ekki mín "mistök" inni í því)) 3 skjákort og 1 móðurborð
allt frá MSI, restin sem að þú sagðir er reyndar alveg satt, það er sama dótið í þessu öllu saman
en jám, með því að lesa yfir þessi svör þá sérðu að þetta er algerlega persónubundið
ég mundi, ef að þú hefur ekki slæma reynslu af neinu af þessum nöfnum, bara velja nafnið sem að þér finnst flottast eða með flottasta merkið
Allt sem ég skrifaði var satt. Þú átt við að þú takir undir það sem ég skrifaði síðan um hjarta- og æða...... Annars ertu að gefa í skin að ég sé lygari

Sent: Sun 03. Jún 2007 16:31
af urban
Yank skrifaði:urban- skrifaði:Yank skrifaði:MSI skjákort hafa reynst mér sérstaklega vel. Annars er yfirleitt sama hjarta- og æðakerfið í þessu sama frá hvaða framleiðenda það er.
MSI hafa einmitt reynst mér alveg ótrúlega illa
það hafa skemmst hjá mér (vegna óútskýranlega hluta (semsagt ekki mín "mistök" inni í því)) 3 skjákort og 1 móðurborð
allt frá MSI, restin sem að þú sagðir er reyndar alveg satt, það er sama dótið í þessu öllu saman
en jám, með því að lesa yfir þessi svör þá sérðu að þetta er algerlega persónubundið
ég mundi, ef að þú hefur ekki slæma reynslu af neinu af þessum nöfnum, bara velja nafnið sem að þér finnst flottast eða með flottasta merkið
Allt sem ég skrifaði var satt. Þú átt við að þú takir undir það sem ég skrifaði síðan um hjarta- og æða...... Annars ertu að gefa í skin að ég sé lygari

hehehe ég meinti það nú ekki þannig
hefði kannski frekar átt að vera að ég væri alveg sammála restinni

Sent: Lau 16. Jún 2007 23:07
af Harvest
Ég mundi segja að BFG væri málið, rétt eins og Ómar.
Þá aðallega vegna þess að það kemur yfirklukkað frá framleiðanda.
Með MSI kortunum fylgir held ég Company of heroes eða Ghost recoin: Advanced warfighter...
Annars mundi ég fá mér BFG, næst á eftir því eVga (eða hvernig það er skrifað)
Sent: Sun 17. Jún 2007 23:14
af ÓmarSmith
Ég hef nú ekki heyrt gott af Sparke. Bila oftar en önnur kort. En ég tala ekki af reynslu með það.
Sent: Mán 18. Jún 2007 08:37
af ManiO
Hmm, hef átt Sparkle kort í um 6 ár, og það hefur ekki klikkað enn þá.
Sent: Mán 18. Jún 2007 12:49
af Klemmi
Ég get náttúrulega bara talað af minni eigin reynslu, en ég hef átt 2x Sparkle kort. Það fyrra var Geforce 4 4200Ti og það dó stuttu eftir að það var komið úr ábyrgð ... óheppinn þar, en svo er ég með 7800GTX kort núna og blessuð viftan er orðin skrambi hávær. En sem betur fer er það ennþá í ábyrgð og ég þarf að fara við tækifæri og skila því, ætti ekki að vera vandamál. En að öðru leiti voru þetta bæði skrambi góð kort.
En svo má náttúrulega vel vera að aðrir séu ekki jafn óheppnir og ég og að Sparkle kortin þeirra séu að gera sig.