Síða 1 af 1

spurning 1: Hiti ? spurning 2: Galli ?

Sent: Fim 17. Maí 2007 03:43
af worghal
Spurning 1
já, spurningin mín að þessu sinni er þessi.

Hvað má hitinn á hörðum diskum vera að meðallagi ?

ég er að keyra 5 diska og hittin lýsisr sér svona

HDD0: 50C°
HDD1: 45C°
HDD2: 53C°
HDD3: 52C°
HDD4: 55C°

-------------------------------------
Spurning 2

Já ég er hérna með 320gb WD disk sem lætur öllum illum látum, en hann á það til að gefa mér frekar óviðeigandi bluescreen þegar ég er að færa dót á hann OG færa dót af honum, nú hann er ekki með neitt stýriskerfi á sér og er bara geymslu diskur, það er hinsvegar í lagi þegar ég downloada á diskinn sjálfan.

gæti þetta verið galli ? eða eitthvað annað ? :?

ó já, svo er best að nefna að stundum þá heyri ég einn diskinn stoppa og svo fara í gang aftur eftir smá, en samt stoppar engin vinnsla hjá mér, og ég held að það sé þessi 320gb diskur sem er að þessu :(

Sent: Fim 17. Maí 2007 13:25
af dadik
Hiti hefur nánast engin áhrif á líftíma diska. Horfðu frekar á SMART parametrana, ef þú ert t.d. að fá scan villur þá er nánast öruggt að diskurinn er að gefa sig.

Sent: Fim 17. Maí 2007 13:40
af gnarr
prófaðu að skipta um rafmagnsnúru í 320GB disknum. Ég hef lent í því að molex snúra hefur verið frekar shaky, og það virkaði að nota aðra snúru.

Síðan gæti líka verið góð hugmynd að gera full format á diskinn. Þá er hann skannaður og allir ónýtir sectorar eru skráðir, svo að tölvan sleppir því að reyna að nota þá í framtíðinni.