Síða 1 af 1

Kæling á Sparkle 8800GTX

Sent: Sun 06. Maí 2007 00:34
af Tóti
Er til góð kæling á þetta kort sem fæst hérna á Íslandi?

Sent: Sun 06. Maí 2007 19:07
af Harvest
Held að það sé engin kæling komin yfir höfuð á 8800 kortin.

Samt ekki viss (en seinast þegar ég gáði var engin á klakanum).

Sent: Mán 07. Maí 2007 19:41
af Taxi
Hvað er að stock kælingunni.???
Ég er búinn að heyra í nokkrum svona viftum og þær eru mjög hljóðlátar.

Ég veit bara um þessar kælingar
http://www.thermalright.com/a_page/main ... 3_plus.htm

Ertu kannski að fara að yfirklukka skjákortið og vantar meiri kælingu. :?:

Ég veit um vatnskælingar á þessa línu af skjákortum.
http://www.koolance.com/shop/product_in ... cts_id=406

P.S. þetta fæst ekki á Íslandi. :(

Sent: Mán 07. Maí 2007 20:32
af gnarr
DD eru líka með fínar singleslot vatnsblokkir, þær eru samt töluvert dýrari og ef eitthvað er, þá er VID-280 betri þrátt fyrir það.

Sent: Mán 07. Maí 2007 21:48
af Taxi
gnarr skrifaði:DD eru líka með fínar singleslot vatnsblokkir, þær eru samt töluvert dýrari og ef eitthvað er, þá er VID-280 betri þrátt fyrir það.


Ég myndi nú vilja sjá samanburðar-Review á þessum kælingum.

135$ fyrir DangerDen,93$ Koolance og 54$ fyrir loftkælingu Thermalright.

Er til í að sjá performance test í yfirklukkun hjá TH eða Yank.Vaktin.is :lol:

Sent: Mán 07. Maí 2007 21:55
af gnarr
Koolance virðist vera lang best af þessum kælingum. Mæla flestir með henni á XS og fleiri forumum.

Annars er ég alveg til í að prófa muninn á Thermalrightinum og Koolance í enda mánaðarins ef Herra Gurtur kaupir inn Thermalrightinn. Ég fæ mér allavega Koolance kvikindið um næstu mánaðarmót circa.

Sent: Mán 07. Maí 2007 22:41
af Tóti
Það er í 80 gráðu hita idle og fer í 91 í ATITool 0.27 undir álagi og viftan á fullum snúning.
Þess vegna er ég að spá í aðra kælingu.

Er þetta normal hiti fyrir stock viftuna?

Sent: Mið 09. Maí 2007 21:12
af Vectro
Er með Thermalright Hr-03 Plus sjálfur, og hún virkar mjög vel. Heldur kortinu hljóðlátu, með auka 12cm viftu á henni.

Viftan verður fjarlægð þegar ég er búinn að ganga frá hliðarviftunum, hún gerir ekkert sérlega mikið gagn í þessari staðsetningu eins og er.

Sent: Mið 09. Maí 2007 22:13
af gnarr
:shock:

Gaur: "Hey.. ég er geðveikt kúl! ég er sko með 'Dual-slot' skjákort!"
Vectro: "Iss... það er ekkert! Mitt tekur 5 slot!"

Sent: Mið 09. Maí 2007 22:22
af ManiO
Það er reyndar hægt að mounta þessu heatsinki þannig að það tæki bara 3-4 :lol:

Sent: Mið 09. Maí 2007 22:50
af Vectro
gnarr skrifaði::shock:

Gaur: "Hey.. ég er geðveikt kúl! ég er sko með 'Dual-slot' skjákort!"
Vectro: "Iss... það er ekkert! Mitt tekur 5 slot!"


Haha, já.

Næ að nýta eina pci rauf, og það dugir fyrir pci sata controllerinn. Þannig að þetta má taka sitt pláss. Næ kannski annari rauf þegar viftan fer, ef ég er heppinn :)