Síða 1 af 1
Upplausn í BF2 og BF1942 hjálp!!!!
Sent: Fim 19. Apr 2007 23:01
af Tóti
Ég er með 19 tommu lcd skjá og ég fæ ekki meiri upplausn en 1024 x 768.
Specs eru
Mb: Gigabyte GA-N680SLI-DQ6
Skják: Sparkle Geforce 8800GTX 768 MB GDDR3 PCI-E
Vinnslum: DDR2 Minni 800MHz - MDT Twinpacks 2048MB CL5 2x1024
CPU: Intel Core 2 Duo E6600 2.4GHz 1066FSB 4MB cache
Hefur einhver skýringu á þessu?
Gamla tölvan mín náði betri upplausn en þetta.
1280 x 1024 eða 960 man ekki alveg.
Sent: Fim 19. Apr 2007 23:42
af zedro
Skjárinn styður ekki hærri upplausn.
Sent: Fös 20. Apr 2007 00:18
af Tóti
Jú hann styður 1280 x 1024
Sent: Lau 21. Apr 2007 23:04
af ÓmarSmith
ertu með nýjustu patchin fyrir leikina ?
Ertu með nýjustu driverana fyrir skjákortið ?
Annars geturu breytt config skránni og sett inn hvaða upplausn sem er.
Getur líka prufað að breyta .exe skránni þannig að hún líti svona út :
"C:\Program Files\EA GAMES\Battlefield 2\BF2.exe" +menu 1 +fullscreen 1 +szx 1680 +szy 1050
Nema í þínu tilfelli breytiru 1680 í 1280 og 1050 í 1024.
gangi þér vel.
Sent: Þri 24. Apr 2007 14:25
af Harvest
Athugaðu þetta samt fyrst með skjákorta drivera!
Rosalega oft sem að þeir eru vandamálið.
Prufaðu að sækja þá uppá nýtt og installa aftur.
Sent: Þri 24. Apr 2007 14:36
af ÓmarSmith
Já, ég lennti í því þarna í 1 skiptið að fara úr version 1.3 í 1.41 eða álíka þá bættust við nokkrar stillingar.
En EA eru ennþá svo tregir að þeir bjóða ekki upp á 1680 x 1050 standard. Ekki einu sinni í BF2142 sem er nánast nýr leikur.
Sent: Þri 24. Apr 2007 15:41
af Harvest
ÓmarSmith skrifaði:Já, ég lennti í því þarna í 1 skiptið að fara úr version 1.3 í 1.41 eða álíka þá bættust við nokkrar stillingar.
En EA eru ennþá svo tregir að þeir bjóða ekki upp á 1680 x 1050 standard. Ekki einu sinni í BF2142 sem er nánast nýr leikur.
Já, mér finnst það alveg rosalega súrt.