Síða 1 af 1

MSI 7950GT Zero Edition Review

Sent: Fös 23. Mar 2007 17:22
af Yank
Setti inn nýja umfjöllun. Að þessu sinni MSI 7950GT kort.

Óska eftir umræðu um þetta. http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=13736

Það er meira tilviljun en hitt að þarna eru komin 2 MSI kort. Það lítur bara betur út ef fleira en eitt eru komin ef þegar ég er að tala við þessa kalla og bjóða fram.....

Á leiðinni er umfjöllun um E4300, Gigabyte 965DS3 móðurborð og svo á ég von á sendingu frá Corsair þar sem tekin verður til umfjöllunar væntanlega Aflgjafi og USB minni. Þ.e.a.s. ef tollurinn tekur þetta ekki allt föstum höndum og neitar að þetta sé sent mér að kostnaðarlausu.

Góða helgi
Yank

Sent: Fös 23. Mar 2007 18:20
af Pandemic
Flottur gaman af þessu hjá þér,

Haha tollurinn á pottþétt eftir að læsa þig inni fyrir þetta.

Sent: Fös 23. Mar 2007 19:28
af MuGGz
er með þetta kort :8)

Sent: Fös 23. Mar 2007 19:53
af Tjobbi
Frábært Yank, ánægður með þetta framlag :)

Hressir aldeilis uppá vaktina, spurning hvort það verði hægt að koma með "óskavélbúnað" með komandi framtíð.

Þar notendur geta kosið um hvaða vélbúnaður verði fyrir valinu og gæti þá einhver jafnvel lánað þér gripinn sem yrði fyrir valinu. :wink:

Smá hugdetta.

Sent: Lau 24. Mar 2007 13:11
af Yank
Tjobbi skrifaði:Frábært Yank, ánægður með þetta framlag :)

Hressir aldeilis uppá vaktina, spurning hvort það verði hægt að koma með "óskavélbúnað" með komandi framtíð.

Þar notendur geta kosið um hvaða vélbúnaður verði fyrir valinu og gæti þá einhver jafnvel lánað þér gripinn sem yrði fyrir valinu. :wink:

Smá hugdetta.


Þetta er fín hugmynd. Þetta er hugsað til gagns og gamnas fyrir mig og aðra. Þannig ef hugmyndir um eitthvað spennandi til að skoða koma upp er ég til. Reyndar er von á ýmsum hlutum eins og conroe línan verður öll með 4MB cache og síðan budget DX10 Nvidia 8600 lína.

Einnig ef einhver lummar á Highend ATI korti X1900XT XTX eða jafnvel X1950XTX. Þá væri ég til í að koma höndum yfir slíkt, þó ekki væri nema til að bæta því við það data sem ég á í dag, sem er frekar einhlítt Nvidia kort. Sá gæti jafnvel fengið að prufa 8800GTS á meðan.

Sent: Lau 24. Mar 2007 13:52
af ÓmarSmith
Yank, ég er með 8800GTS BFG o.c týpuna ( 320mb ) og það er alveg dead silent. Heyrist akkúrat ekkert í þessari viftu. hvorki í idle né load.

Hef aldrei kynnst annari eins snilldar viftu :)

Sent: Lau 24. Mar 2007 15:09
af Tjobbi
Ég er líka með sparkle 7800gtx sem ég væri meira en til að fá að sjá hvernig það keyrir með conroe. :)