Síða 1 af 2

Styllingar á X-fi

Sent: Mið 21. Mar 2007 19:42
af Alcatraz
Sælir Vaktarar.

Ég var að spá í það hvort einhver gæti hjálpað mér með styllingarnar á X-fi Xtreme Music kortinu mínu. Ég er búinn að prófa mig áfram en mér finnst ég aldrei ná því hljóði sem ég vill... Lumar einhver á góðum styllingum sem ég gæti prófað?

Kv. Alcatraz

Sent: Fös 04. Maí 2007 14:31
af Dr. Cryptic
Game Mode, CMMS 3-D á með Auto, 24 bit Crystal 50%, taka bæði SVM og EAX af og blabla verð bara koma á staðinn ég er líka með Elite Pro sem er aðeins öðruvísi...

Sent: Fös 04. Maí 2007 14:46
af SolidFeather
entertainment mode, EAX og CMSS á off, device volume í 5-7 prikum, crystalizer í 50%


sándar fínt

Sent: Fös 04. Maí 2007 18:19
af ICM
Hef þetta eins og SolidFeather nema ég er með hærri crystalizer en það fer gífurlega mikið eftir því hverskonar tónlist ég er að hlusta á þar sem sum verður betri en önnur verri við of háar stillingar.

Sent: Fös 04. Maí 2007 19:47
af Xyron
fínar stillingar sem solidfeather og icm mæla með.. finnst sjálfum skemmtilegra að hafa bassan stiltan aðeins hærra heldur en treble.. fer samt eftir skapi.. rosalega missmunandi eftir því hvernig tónlist þú ert að hlusta á

annars notast ég aðalega við equalizerinn í winamp til að fá fram þá effecta sem ég vil..

fer líka alveg eftir hátalarakerfinu þínu.. ég varð t.d. að virkja 24 bita output í winamp til að fullnýta kerfið mitt

Sent: Fös 04. Maí 2007 19:53
af ICM
Ég er alltaf með bassan hærri enda ráða heyrantólin vel við það.

Sent: Fös 04. Maí 2007 20:06
af Blackened
Xyron skrifaði:ég varð t.d. að virkja 24 bita output í winamp til að fullnýta kerfið mitt


Afsakaðu fáfræði mína.. en hvernig gerir maður svoleiðis? er með 7.1 creative kerfi.. og ef ég get fengið betra hljóð þá er það snilld

Sent: Fös 04. Maí 2007 20:14
af TechHead
Options -> Preferences:

General Preferences -> Playback og hakar í allow 24bit

Sent: Fös 04. Maí 2007 21:16
af Xyron
Ef þú ert með hátalara sem ráða við 24 bit output þá geturðu nýtt þér tónlist sem tekinn er í 24 bita gæðum..

venjuleg cd tónlist er t.d. í 16 bita gæðum ...

16 bita er 44.100 "sneiðar" samplaðar á hverji sek.
24 bita er 96.000 - || -

getur samt fengið vera hljóð ef þú ert ekki með hátalara sem ráða við þetta, verður líka að virkja þetta á hljóðkortinu

Sent: Fös 04. Maí 2007 21:35
af daremo
Ég nota þessar stillingar:

Við hlustun á tónlist með heyrnartólum:
Audio Creation Mode
SVM Off
EAX Off
Crystallizer: 50%
Bit Matched Off
24 bita output og Kernel Streaming í Foobar2000 :8)



Vídeó, leikir ofl:
Entertainment Mode
SVM On (Mjög þægilegt. Þoli ekki DVD diska með lágt tal og háværar sprengingar)
EAX Off
CMSS 3D 50%
Crystallizer 50%

Sent: Fös 04. Maí 2007 23:26
af gnarr
Xyron skrifaði:Ef þú ert með hátalara sem ráða við 24 bit output þá geturðu nýtt þér tónlist sem tekinn er í 24 bita gæðum..

venjuleg cd tónlist er t.d. í 16 bita gæðum ...

16 bita er 44.100 "sneiðar" samplaðar á hverji sek.
24 bita er 96.000 - || -

getur samt fengið vera hljóð ef þú ert ekki með hátalara sem ráða við þetta, verður líka að virkja þetta á hljóðkortinu


Þetta er nú bara kjaftæði. Samling stærð og sampling tíðni tengjast ekki neitt. 96KHz hljóð getur alveg verið þessvegna 2bit, og 44.1KHz getur verið þessvegna 64bit float.

Það "ráða" allir hátalarar við 24bita hljóð, enda segir það bara hversu dínamískt hljóðið er. 24bita hljóð verður aldrei verra en 16bita, sama hvernig hátalara þú ert með. Sama með tíðnina, 96KHz hljóð mun aldrei hljóma ver en 44.1KHz.

Fyrir utan það, þá er tónlist á CD í dag í circa 20bita "gæðum" þrátt fyrir að diskarnir séu bara með 16bita sample stærð. Dithering algoriþmarnir sem eru notaðir í dag eru orðnir það góðir að það tekst að dithera 24/32 bit niður í 16 þannig að það hljómi eins og 20bit.

Endilega kynntu þér þetta betur, og ekki fullyrða svona um hluti sem þú þekkir ekki nógu vel. Það er hægt að finna fullt af greinum um hljóðvinnslu útum allt.

Sent: Lau 05. Maí 2007 21:31
af Xyron
Já, ég hef sjálfur misskilið þetta.. er frekar nýr öllum hátalara/hljóðvinnslu hugtökum..

Var að fá mér hátalara sem stendur á “DTS 96/24” , og misskildi þannig að það væri missmunandi hversu vel hátalarar myndi ná að vinna bitunum.. ss. Ef þú væri með stillt á 24 bita output þá myndi hátalari sem myndi ráða við 16 bit ekki ná þessum bitum sem vantaði upp.. eða ss. slepptu toppunum og botnunum í “hljóðgrafinu” ..

Hélt samt að dithering væri alltaf hardware/software implemnt... er ekki alveg að ná hvernig er hægt að láta 16 bita hljóð hljóma sem “20” .. svipað og með stillinguna á xfi kortunum sem notar þennan “reverse algorithm” til að fá meira dynamic hljóð.. en það er náttúrulega software implent.. hvernig er hægt að ná þessum áhrifum án þess að nota hardware/software implemnt?

...

Sent: Sun 06. Maí 2007 00:12
af Hyper_Pinjata
vill einhver donate-a svona x-fi korti & z5300 eða z5500 til mín :D

ég sit nefnilega uppi með gamalt (en ágætt) Creative SB Live 5.1 hljóðkort
og Creative Inspire 5100 kerfi...

nota það ennþá en...maður er farinn að dragast töluvert aftur úr núverandi græjum....

ég var samt að kaupa mér um daginn
2* 120w pioneer hátalara
og 2* 80w subwoofera sem ég ætla að tengja við 5.1 magnara og hafa á "4 rásum"....

Sent: Sun 06. Maí 2007 00:53
af gnarr

Sent: Sun 06. Maí 2007 02:04
af ICM
X-Fi breytir öllu hljóði í 24-bit með crystalizer, skiptir þá nokkru máli þótt þú kveikir á 24-bit í Winamp ef þú ert bara að spila 16-bit tónlist? Hljóðkortið sér um að blanda hljóðið 24-bit á ný right? Efast um að þú sért með mikið af 24-bit hljóðskrám sem þú ert að spila í Winamp?

Sent: Sun 06. Maí 2007 18:49
af Harvest
daremo skrifaði:Ég nota þessar stillingar:

Við hlustun á tónlist með heyrnartólum:
Audio Creation Mode
SVM Off
EAX Off
Crystallizer: 50%
Bit Matched Off
24 bita output og Kernel Streaming í Foobar2000 :8)



Vídeó, leikir ofl:
Entertainment Mode
SVM On (Mjög þægilegt. Þoli ekki DVD diska með lágt tal og háværar sprengingar)
EAX Off
CMSS 3D 50%
Crystallizer 50%




Úúúúú... þetta eru góðar stillingar. Fæ skýrara hljóð (ekki eins mikið suð í hátölurum með Creation mode...

Og ég hafði ekki hugmynd hvað þetta SVM væri og ég HATA þetta líka.

Svo takk kærlega!!!

Sent: Sun 06. Maí 2007 18:53
af Harvest
En hvernig er EQ-ið ykkar stillt?

Sent: Sun 06. Maí 2007 22:45
af gnarr
daremo skrifaði:Vídeó, leikir ofl:
Entertainment Mode
SVM On (Mjög þægilegt. Þoli ekki DVD diska með lágt tal og háværar sprengingar)
EAX Off
CMSS 3D 50%
Crystallizer 50%


Það meikar ekki sens að vera með SVM ("compressor") og Crystalizer ("expander") bæði í gangi á sama tíma...

Sent: Mán 07. Maí 2007 09:21
af ÓmarSmith
Hefuru prufað að fikta í þessu korti Gunni ;)


Ég heyri amk alveg mun á þessu þegar ég stilli þetta saman eða í sundur.

Sent: Mán 07. Maí 2007 11:32
af Harvest
ÓmarSmith skrifaði:Hefuru prufað að fikta í þessu korti Gunni ;)


Ég heyri amk alveg mun á þessu þegar ég stilli þetta saman eða í sundur.


Skemmtilega við að fikta í því að maður heyrir alltaf mun....

Nema kannski í eitthverju Trust hljóðkerfi úr ágætri búð..

Sent: Mán 07. Maí 2007 13:39
af gnarr
ÓmarSmith skrifaði:Hefuru prufað að fikta í þessu korti Gunni ;)


Ég heyri amk alveg mun á þessu þegar ég stilli þetta saman eða í sundur.


Nei, ég hef ekki prófað að fikta í þessu korti, en mér þykir ekki meika sens að hafa kveikt á crystalizer (sem á að auka dínamíkina) og SVM (sem á að minka dínamíkina) á sama tíma. Það lítur bara heimskulega út fyrir mér.

Sent: Mán 07. Maí 2007 13:50
af ÓmarSmith
SVM er Held ég bara e-r fídus á þessu korti sem lækkar og hækkar tóna eftir því hvað þeir eru háir ... Brúar bilið milli háværa og lágværa hljóða.

Gott dæmi er lélegur DVD diskur eða illa kóðuð mynd þar sem tal er of hátt miðað við umhverfishljóð eða öfugt..

Þetta fiffar það til í eðlilega tónhæð

Sent: Mán 07. Maí 2007 14:04
af gnarr
haha :lol: þú hefur semsagt ekki hugmynd um hvað dínamík er?

það er einmit munurinn á hæsta hljóði og lægsta.

Crystalizerinn á að auka muninn á hæsta og lægsta hljóði, á meðan SVM á að minka muninn á hæsta og lægsta hljóði.

Audio
Audio engineers often use dynamic range to describe the ratio of the loudest possible undistorted sound to the quietest or to the noise level, say of a microphone or loudspeaker. In digital audio, the maximum possible dynamic range is given by the bit resolution (see signal-to-noise ratio). Dynamic range of an audio device is also sometimes referred to as the dynamic window.

To mathematically determine a dynamic range you must add the headroom to the signal to noise ratio OR take the difference between the ceiling and noise floor of an audio device. For example, if the ceiling of a device is 10 dB and the floor is 3 dB then the dynamic range is 7 dB, since 10-3 = 7.

Since the early 1990s it has been recommended by several authorities including the Audio Engineering Society that measurements of dynamic range be made with an audio signal present. This avoids questionable measurements based on the use of blank media, or muting circuits.




Music
In music, dynamic range is the difference between the quietest and loudest volume of an instrument, part or piece of music.

It is also the range of amplitudes an audio device can reproduce. Dynamic range is the headroom plus the signal to noise ratio ranges added together. It can be calculated by taking the difference between the ceiling and noise floor of an audio device. In modern recording, this range is often limited through audio level compression, which allows for louder volume, but can make the recording sound less exciting or live[1].

Sent: Mán 07. Maí 2007 14:45
af ÓmarSmith
Hmm, ég vissi ekki að Crystalizer ætti að auka þennan mun . Hélt að hann ætti að gefa meiri dýpt eða hvað það er kallað í soundið og gera það tærara.

ég get ekki alveg útskýrt muninn þegar ég er að hlusta á mp3 og hækk aog lækka Crystalizerinn ..

Þú verður að koma og heyra það bara dúlli ;)

Sent: Mán 07. Maí 2007 14:50
af ICM
gnarr.. Crystalizer gerir miklu meira en að vera bara expander :roll:
Þótt þú sért á móti Creative þá skaltu reyna þetta sjálfur áður, þetta er ekki ALLT marketing BS sem stendur um X-Fi þótt þeir hafi gengið of langt að tala um að breyta MP3 í betri en CD gæði.