Síða 1 af 2

minni fer ekki alla leið niður

Sent: Lau 17. Mar 2007 22:53
af hakkarin
ég er með 2x512 mb í duel chanel og er að bæta öðrum við en þegar ég læt
kubbinn/kubbana í rauf þá streitast þeir á móti og ég næ ekki að fá þá til að fara
alla leið niður. Allir kubbanir eru af alveg sömu gerð. Þarf maður að vera alveg hárfín með það að láta kubbana í ég er svo skjálfhenntur.

Sent: Lau 17. Mar 2007 23:00
af Yank
Ertu örugglega að snúa því rétt ?

http://www.ehow.com/how_895_install-ram.html

Sent: Lau 17. Mar 2007 23:13
af hakkarin
Yank skrifaði:Ertu örugglega að snúa því rétt ?

http://www.ehow.com/how_895_install-ram.html


ég sný þeim bara eins og hinnum kubbunum, það eru þessar smellur, ég opnar þær til að láta kubbinn inn en hann kems ekki nóg og langt niður til að ég geti lokað þeim aftur. þarf að gera ehvað sérstakt í sambandi við þessar smellur? Ég hef ekki látið inn minni áður. ég er nokkuð viss að ég sný þeim rétt.

Sent: Lau 17. Mar 2007 23:31
af gnarr
ertu ekki bara að troða DDR2 í DDR1 borð, eða öfugt?

Sent: Lau 17. Mar 2007 23:35
af hakkarin
gnarr skrifaði:ertu ekki bara að troða DDR2 í DDR1 borð, eða öfugt?


hvað meinaru? ég er með 4 raufir, 2 bláar og 2 gular. gömlu kubbanir eru í blá og ég er að reinna að láta hinna 2 í gula. gömlu kubbanir eru af sömu gerð og þeir nýju.

Sent: Lau 17. Mar 2007 23:42
af SolidFeather
DDR eða DDR2 minni?

Sent: Lau 17. Mar 2007 23:44
af hakkarin
SolidFeather skrifaði:DDR eða DDR2 minni?


DDR2

Sent: Sun 18. Mar 2007 00:02
af gnarr
ætli þetta sé ekki asrock boðrin sem eru með 2x DDR og 2x DDR2 raufar

Sent: Sun 18. Mar 2007 00:05
af hakkarin
gnarr skrifaði:ætli þetta sé ekki asrock boðrin sem eru með 2x DDR og 2x DDR2 raufar


ég er með winfast móðurborð

Sent: Sun 18. Mar 2007 00:11
af gnarr
meiri detail kanski?

Sent: Sun 18. Mar 2007 00:15
af ManiO
Taktu minnin úr, þeas upphaflegu minnin, og berðu saman raufarnar...

Sent: Sun 18. Mar 2007 11:03
af Selurinn
Bara að nota smá afl í þetta, það getur stundum verið bögg að troða minni í........ :S

Sent: Sun 18. Mar 2007 22:21
af hakkarin
Selurinn skrifaði:Bara að nota smá afl í þetta, það getur stundum verið bögg að troða minni í........ :S


ýtti mjög fast. Ætla ekki að reyna að ýta fastar til að skemma ekki minnið.

Sent: Sun 18. Mar 2007 22:41
af ManiO
hakkarin skrifaði:
Selurinn skrifaði:Bara að nota smá afl í þetta, það getur stundum verið bögg að troða minni í........ :S


ýtti mjög fast. Ætla ekki að reyna að ýta fastar til að skemma ekki minnið.


Ertu búinn að prófa það sem ég sagði þér að prófa?

Sent: Mán 19. Mar 2007 00:54
af gnarr
segðu okkur hvað þetta móðurborð heitir...

jeez.. :roll:

Sent: Mán 19. Mar 2007 13:56
af beatmaster
Ég er búinn að gúggla svolítið og hef ekki enn fundið winfast mobo sem að supportar bæði DDR og DDR2, en hef rekist á allnokkur með 2 gulum raufum og 2 bláum sem að eru bara DDR.

Annars væri nauðsynlegt að fá að vita fullt nafn á móðurborðinu

Sent: Þri 20. Mar 2007 11:57
af wICE_man
Komdu með þetta í kísildalinn og ég skal persónulega annað hvort koma þessum minnum í fyrir þig eða útskýra fyrir þér afhverju það er ekki hægt ef það er tilfellið.

Og smá ábending, því meiri upplýsingar sem þú gefur, því betri svör færðu hér á vaktinni :)

Sent: Þri 20. Mar 2007 15:59
af hakkarin
Fann það:

AMD - Socket AM2 - Foxconn 570 SLI - N570SM2AA-8EKRS2H

Sent: Þri 20. Mar 2007 16:15
af wICE_man
Ertu alveg viss um að þær snúi rétt? Það er smá bil neðan á minniskubbnum og samsvarandi pinni í raufinni og þessir tveir hlutir þurfa að vera á sama stað.

Er eitthvað í raufinni sem gæti hindrað ísettninguna?

Tékkaðu á þessu tvennu.

Sent: Þri 20. Mar 2007 16:24
af hakkarin
wICE_man skrifaði:Ertu alveg viss um að þær snúi rétt? Það er smá bil neðan á minniskubbnum og samsvarandi pinni í raufinni og þessir tveir hlutir þurfa að vera á sama stað.

Er eitthvað í raufinni sem gæti hindrað ísettninguna?

Tékkaðu á þessu tvennu.


ég tók eftir þessu. Sé ekkert sem er fyrir. ertu ekki annars að meina þetta litla bil nálægt miðju kubbsins og raufarinar í móðurborðinu? Þessar 2 raufar virðast vera á sama stað en samt kemst kuburinn ekki nóg og langt til kubburin komist á botnin, ekki að raufini einu sinni.

Sent: Mið 21. Mar 2007 16:41
af wICE_man
Kíktu bara til okkar í kísildalnum, við erum í Alfheimunum, á gatnamótunum við langholtsveg þar sem ísbúðin er. Reddum þessu fyrir þig frítt.

Sent: Mið 21. Mar 2007 22:38
af hakkarin
wICE_man skrifaði:Kíktu bara til okkar í kísildalnum, við erum í Alfheimunum, á gatnamótunum við langholtsveg þar sem ísbúðin er. Reddum þessu fyrir þig frítt.


gæti orðið soldið erfit. Bý eiglega hinnum megin á landinu! En takk samt :D

Sent: Mið 21. Mar 2007 23:44
af Birkir
Taktu mynd af því sem þú ert að reyna að gera ef þú ert í aðstöðu til þess.

Sent: Fim 22. Mar 2007 01:44
af gnarr
það væri eiginlega nóg að sjá mynd af minniskubbunum.. ég hef sterklega á tilfinningunni að vandinn liggi þar.

Sent: Fim 22. Mar 2007 08:27
af stjanij
prófaðu að snúa minninu og vera alveg viss að raufin snúi rétt fyrir hakið á móðurborðinu. ef ekki, þá myndir annars er ekkert hægt að hjálpa.