Síða 1 af 1

Vesen með minni

Sent: Fös 16. Mar 2007 17:00
af thiwas
nú málið er þannig að ég er með 1 stk Kingston DDR minni 512 333mhz og svo 2 alveg eins Corsair 512 MB 333 mhz minni,

Þau virka öll ein og sér, en ef ég set 2 í vélina þá ræsir hún sig upp og fer í windows en eftir bara kannski 2 mín endurræsir hún sig, það er þegar ég set þessi 2 Corsair,
en ef ég set 1 Corsair og Kingston minnið í þá kviknar á vélinni en kemur ekkert á skjáinn.

Var að spá þið hefðuð lent í einhverju svona eða hvort þið hefðuð einhverjar lausnir ???

Sent: Fös 16. Mar 2007 19:50
af Yank
Ef við gefum okkur að allt sé í lagi með alla kubbanna þá er þetta líklega vegna þess að móðurborðið nær ekki að keyra dual channel á hvort sem er 2 kubba í einu corsair + corsair eða corsair + kingston.

Það er mjög algengt að það að bæta við 3 ja kubb valdi vandamálum. Því það þarf slétttölu fjölda af minniskubbum til að keyra Dual channel.

Það að á skjáinn komi ekkert þýðir að vélin nær ekki að pósta. Þ.e. bios finnur villur sem það nær ekki að leiðrétta. Þessar villur getur verið vegna þess að minninn passa ekki saman. Þ.e. eru ekki pöruð til að keyra í Dual channel.

Veittu betri upplýsingar um hvaða vélbúnað þú ert með til þess að hægt sé að hjálpa þér frekar.

Þú getur prufað að keyra memtest86 á þessa 2x Corsair kubba til þess að sjá hvort það komi villur.

Einnig getur þú prufað að núllstilla bios en það er venjulega gert með jumper á móðurborði eða þá fara no pro leiðina og taka rafhlöðuna úr.

Sent: Fös 16. Mar 2007 20:08
af urban
Yank skrifaði:Það er mjög algengt að það að bæta við 3 ja kubb valdi vandamálum. Því það þarf sléI'm gayölu fjölda af minniskubbum til að keyra Dual channel.


HAHAHAHA gaman að því að gera svona villur

Sent: Fös 16. Mar 2007 20:18
af thiwas
tékka á þessu, en allavega þetta er móbóið

http://www.msi.com.tw/program/products/ ... hp?UID=355

Sent: Lau 17. Mar 2007 00:33
af Yank
urban- skrifaði:
Yank skrifaði:Það er mjög algengt að það að bæta við 3 ja kubb valdi vandamálum. Því það þarf sléI'm gayölu fjölda af minniskubbum til að keyra Dual channel.


HAHAHAHA ég er GAY


Takk fyrir info mofo :lol:

Sent: Lau 17. Mar 2007 01:20
af urban
Yank skrifaði:
urban- skrifaði:
Yank skrifaði:Það er mjög algengt að það að bæta við 3 ja kubb valdi vandamálum. Því það þarf sléI'm gayölu fjölda af minniskubbum til að keyra Dual channel.


HAHAHAHA ég er GAY


Takk fyrir info mofo :lol:


þess má geta að villan sem að þú gerði var 3 x t í staðin fyrir 2 x t

virðist vera að orðabbrenglinu hafi verið breytt nema að þú hefir breytt því sjálfur

en voðalega fyndið hjá þér að breyta mínum orðum :S

Sent: Lau 17. Mar 2007 19:39
af beatmaster
ttt það var komið tími á að þetta væri lagað :?

Sent: Lau 17. Mar 2007 19:40
af gnarr
ég tók þetta út. þreytandi fítus.