Síða 1 af 1

MSI 8800GTS 320Mb O.C Review

Sent: Fös 16. Mar 2007 01:38
af Yank
MSI 8800GTS 320 mb O.C Edition Review

MSI þarf ekki að kynna mikið. MSI framleiðir allt frá fartölvum, íhlutum eins og móðurborðum og skjákortum, niður í MP3 spilara og flest þar á milli. MSI hefur í gegnum árin ekki verið þekkt fyrir að setja mikið af yfirklukkuðum skjákortum á markað. Á þessu virðist hafa orðið breyting. MSI bíður upp á fimm gerðir í línu sinni af 8800 kortum og af þeim koma þrjú yfirklukkuð beint frá verksmiðju.

MSI Nvidia 8800 línan
Mynd

Ef hefur verið sömu skoðunar og ég þ.e. að borga 60-70 þúsund fyrir skjákort sé fjárfesting sem erfitt sé að réttlæta. Jafnvel fyrir nýjustu tækni og afl. Þá er ekki lengur ástæða til að örvænta því í Nvidia 8800 línunni er komið kort sem kostar í þessum skrifuðu orðum ekki nema rúmlega 30 þúsund.

Mynd

Nvidia 8800 skjákortshraðallinn

Það sem vegur mest er fullur stuðningur við Microsoft DirectX 10 og Shader model 4.0 en nvidia 8800 skjákort eru einu skjákortinn á markaði sem styðja þennan komandi staðal í grafík. Á meðan ekki berast aðrar fréttir frá AMD/ATI en tafir á svari frá þeim lítur út fyrir að þannig verði þetta í nánustu framtíð.
Frekari upplýsingar um chipset er hægt að nálgast á heimasíðu MSI. http://www.msi.com.tw/program/products/ ... hp?UID=807

Kassi og fylgihlutir

Mynd
Mynd

Meðfylgjandi er allt sem tölvunörd þarf til ísetningar og uppsetningar á kortinu og að auki leikurinn Company of Heroes. Þar hefur MSI valið leik vel að mínu mati en oft fylgja frekar gamlir leikir með í skjákortskaupum. Þessi leikur gerir miklar kröfur á vélbúnað og ætti því að sýna aflið í þessu korti.

Test Setup

CPU: Intel Core 2 E6600 2.4Ghz@2,89Ghz (320FSBx9)
Video drivers: NVIDIA ForceWare 91.47, Catalyst 7,2, NVIDIA Force Ware 97,92 (8800GTS)
Motherboard: MSI 975X Platinum Power up edition
HD: 2 x WD36GB raid 0
Memory: Corsair XMS DDR2 6400, @800MHz, timings 5 5 5 12
Hljóðkort: Creative Audigy
Skjákort: MSI 8800GTS O.C Edition, MSI 7900GTO, EVGA 7800GT@470/1100, MSI X1600XT, MSI 7600GS, Gainward 6600GT
OS: Win XP SP2

Hluti þeirra skjákorta sem prófuð voru MSI 8800GTS, 7900GTO, X1600XT

Mynd

Tests

http://WWW.3Dmark.com
3DMark03
3DMark05
3DMark06

Game Tests

Far Cry með hjálp: HardwareOC http://www.hocbench.com/
Counter-Strike Source stress test
Company of Heroes innbyggt performance test

Öll test eru keyrð í 1280x1024. Það má að sjálfsögðu gagnrýna það enda líklegt að við hærri upplausn komi afl 8800GTS enn frekar í ljós. En á móti má segja að stór hluti leikjaspilar á landinu er enn að notast við 19“ LCD skjái. Þannig einhverjum ættu þessar niðurstöður að gagnast.

Results

Mynd
Mynd
Mynd

Game Tests

Counter-Strike Source Stress test
Mynd
Mynd

Far Cry. Max quality

Mynd

Company of Heroes

Settings
Mynd

8800GTS
Mynd

7900GTO
Mynd

X1600XT
Mynd

Samantekt

MSI 8800GTS O.C 320 Mb vinnur 7900GTO 512 Mb kort örugglega í öllum testum. Það gerir það þrátt fyrir að hafa einungis 320Mb af minni.

MSI 8800GTS 320Mb O.C er ekki bara mun öflugra en 7900 línan heldur styður það nýjustu tækni. Tækni sem við höfum þó ekki enn séð í dag.

Á meðan 7900GTX og X1900XT kort eru á verðbilinu 30 þúsund er engin samkeppni um þetta lengur 8800GTS hefur vinninginn.

Þó ekki hafi verið sýnt fram á það hér þá aukast afköst 8800 línunar með auknu minni. Ef þú spilar leiki í hærri upplausn en 1600x1200 þá er hægt að réttlæta kaup á 8800GTS 640Mb eða 8800GTX.

Fyrir lærri upplausnir er mjög erfitt að réttlæta kaup á 8800GTX. Ekki nema þú viljir geta montað þig á því að eiga öflugasta skjákort sem framleitt er sama hvað það kostar. Það verður þó ekki í langan tíma sem þú gætir montað þig því þróun í þessum geira er gríðarlega hröð.

Kælingin á 8800GTS er örlítið háværari en 7900GTO. Það er þó einungis greinanlegt þegar það er undir miklu álagi, en við þær aðstæður yfirgnæfir hljóð í leikjum það. Kælingin á 7900GTO/GTX var mjög vel heppnuð.

MSI 8800GTS 320Mb er ekki bara að virka vel í núverandi DX9 umhverfi heldur er það "góð" fjárfesting fyrir framtíðina. Hversu vel það mun virka í DX10 og PS 4.0 umhverfi verður framtíðin að leiða í ljós.

Ef þú hefur verið að velta því fyrir þér að uppfæra skjákort og ert tilbúin að eyða rúmlega 30 þúsund í það þá er MSI 8800GTS 320Mb O.C kortið fyrir þig.

Kostir:
Nýjasta tækni á viðráðanlegu verði
Afl

© Copyright Yank 2007