Síða 1 af 1

HDD víbrandi

Sent: Fös 16. Mar 2007 00:52
af zedro
Jæja harðidiskurinn minn er víbrandi.
Bruuuuum.....bruuum....bruuum....

Ég er mjög athugull á svona látíðni hljóð, ekki er það verra að kassinn er uppá borði og fínt aðgengi í hann :lol:

Þetta er tómur diskur og ekkert að keyra á honum :shock:

Sent: Fös 16. Mar 2007 01:14
af Heliowin
Er hann nægilega fastur?

Sent: Fös 16. Mar 2007 01:41
af zedro
Hann virðist vera það.

En diskurinn er sjálfur
Vruuuuuuuuum ........vruuuuuuuuuuum......... vruuuuuuuuuum.........
hljóðið er að fara virkilega í mig :x

Sent: Lau 17. Mar 2007 00:35
af zedro
Smá edit þetta er víst Sys diskurinn minn.

80´GB Samsung 7200sn 8mb buffer. (Splúnku nýr)
Sem er að víbra svona ógurlega er það normalt? Hef ekki tekið eftir þessu áður.

Sent: Fös 23. Mar 2007 02:09
af daremo
Ég er að lenda í því sama með nýlegan 80gb Seagate disk, held ég. Gæti verið gamli 200gb Seagate diskurinn.
Mjög lágt bassahljóð, en það heldur endalaust áfram með nákvæmlega sama millibili. bruuuuum...bruuuuum...bruuuuum.
Ég er að ærast á þessu og þegar ég horfi á sjónvarpið heyri ég ekkert annað en þetta helvítis víbringshljóð.

Ég er akkúrat í þessu að skoða tölvuverslunarsíðurnar og er búinn að ákveða að skipta báðum diskunum út fyrir einn 500gb Seagate. Fer í það í fyrramálið.

Sent: Mið 25. Apr 2007 12:37
af Danni V8
Ég lenti í þessu fyrir ári síðan þegar ég keypti nýjan 200gb Western Digital og ég fór með hann þangað sem ég keypti hann (minnir að það var Tæknivík) og þeir sögðu mér að þetta væri gölluð lega eða eitthvað... fékk allavega nýjan og hann var til friðs og er enn til friðs :D