Síða 1 af 1

"fermingar"tölva vantar álit

Sent: Fös 09. Mar 2007 23:00
af urban
Góða kvöldið

núna er komið að því að litla dýrið hann bróðir minn er að fara fermast og stendur til að kaupa handa honum aðra tölvu

budget er ca 150 þús og það sem að þarf er LCD skjár (vegna plássleysis) og síðan tölvukassi (lyklaborð, mús og hátalarar eru óþarfir og einnig þá eru víst til 2 win xp leyfi hérna á heimilinu þannig að ég tel óþarfi að fá það með líka)

þá vantar mig álit á þessari tölvu og þessum skjá

lýst ykkur ekki þokkalega á þetta

já tölvan kæmi til með að vera notuð í þetta helsta sem að fermingardrengir nota sína tölvu í

wow og cs:s spilun og síðan þátta og sjálfsagt klámmyndagláp (þó svo að mig langi ekki að grípa hann við það)

Re: "fermingar"tölva vantar álit

Sent: Fös 09. Mar 2007 23:30
af GuðjónR
urban- skrifaði:stendur til að kaupa handa honum aðra tölvu, budget er ca 150 þús

...litli dekurgrís

Re: "fermingar"tölva vantar álit

Sent: Fös 09. Mar 2007 23:57
af ManiO
urban- skrifaði:sjálfsagt klámmyndagláp (þó svo að mig langi ekki að grípa hann við það)


:lol: Getur alltaf sett upp góðan ad blocker fyrir FF :wink:


En ég held að þetta sé fínt fyrir fermingardreng, ætti ekki að eiga í basli við CS:S og World of Warcrack.

Re: "fermingar"tölva vantar álit

Sent: Lau 10. Mar 2007 00:16
af urban
GuðjónR skrifaði:
urban- skrifaði:stendur til að kaupa handa honum aðra tölvu, budget er ca 150 þús

...litli dekurgrís


jamm... ekki fékk ág svona fína tölvu þegar að ég fermdist... þá var budget mun lægra... en reyndar mörg mörg ár síðan að það var

Sent: Lau 10. Mar 2007 00:34
af Mazi!

Sent: Lau 10. Mar 2007 00:58
af urban
ég var nú búinn að skoða svipaðann pakka þarna hjá kísildal

en ég hef t.d. ekkert við þetta lyklaborð og þessa mús að gera

þessa skjátegund bara þekki ég ekkert og hef lítið séð um þá á review síðum, þarna er verri örri og það sem að skiptir miklu

alveg fokk ljótur kassi

þar að auki vantar harðan disk, power supply og dvd skrifara

Sent: Lau 10. Mar 2007 01:09
af Birkir
Mér lýst mjög vel á þann pakka sem þú varst með, urban-..

Sjálfur get ég mælt með skjánum, hann er ótrúlega flottur.

Sent: Lau 10. Mar 2007 12:19
af BrynjarDreaMeR
Ég mundi mæla með þessu. Svo er bara að finna einhvern flottann kassa :D

Þessi skjár er með MVA panel og það er draumur að horfa á svona skjá :D

Gríðarlega vandaður skjár á frábæru verði. Nú getur venjulegt fólk loksins haft efni á hágæða skjátækni. Skjár þessi notar MVA panel sem gefur honum frábæra litadýpt og eindæma skerpu auk þess sem sjónvinkillin er nær fullkominn. Í skjástandinum er innbyggður 3 porta USB hub sem gerir manni þægilegt að skipuleggja vinnuplássið án þess að auka á snúruflækjuna.

Sent: Lau 10. Mar 2007 13:53
af ÓmarSmith
Ég myndi frekar taka Samsung skjá. Færð hann á http://www.tolvutaekni.is

Þessir syncmaster skjáir eru alveg frábærir í alla staði og er vissulega þekktara merki en Bellinea eða hvað sem það heitir ;)

Annars treysti ég Guðbjarti í Kísildal svosem ágætlega fyrir fínum merkjum. Bara spurning hvað manni liður betur með.

Sent: Lau 10. Mar 2007 13:59
af Birkir
Brynjar kominn aftur, það er aldeilis.

En já, þú gleymdir að taka harðan disk með í reikninginn.

Sent: Lau 10. Mar 2007 14:58
af BrynjarDreaMeR
Já ég er kominn aftur..... GuðjónR gaf mér annann séns

ég held nú að þessi Belinea með MVA panelinum sé betri.... farið í Kísildal og sjáið einstök upplifun

já maður gleymir oftast aðal hlutunum :oops:

Sent: Lau 10. Mar 2007 15:11
af Birkir
BrynjarDreaMeR skrifaði:Já ég er kominn aftur..... GuðjónR gaf mér annann séns

ég held nú að þessi Belinea með MVA panelinum sé betri.... farið í Kísildal og sjáið einstök upplifun

já maður gleymir oftast aðal hlutunum :oops:


Hefurðu séð Samsunginn „in action“?

Sent: Lau 10. Mar 2007 15:15
af BrynjarDreaMeR
Ekki ,, in action '' en hef séð belinea skjáinn in action

Sent: Lau 10. Mar 2007 16:15
af urban
BrynjarDreaMeR

þarna vantar enn og aftur dvd skrifara og harðan disk, já og kassa, svosem alveg hægt að fá þetta og græja það saman


en málið er að þarna er ég líka að fá þetta tilbúið, uppsett og get látið senda þetta, ekkert vesen við að kaupa hlutina á hinum og eþssums tað og þurfa að vesenast við að fá það á mismunandi tímum (bý í eyjum þannig að ég get ekki sótt hlutina)


en með skjáinn, ég er svo sem meira en tilbúinn í að skoða þessa skjái frekar, kem til með að koma í bæjinn sjálfur og skoða þá í action uppá að geta borið þá saman

Sent: Lau 10. Mar 2007 16:19
af BrynjarDreaMeR
já um að gera sjá þá í Action :wink:

Sent: Lau 10. Mar 2007 16:37
af zedro
Já hver ansk. :? so much for the "Lífstíðar bann".

Ég vona að þú kunnir að meta þessa góðvild hans Guðjóns.

Annars í sambandi við þessa fermingavél. Ég persónulega myndi taka þennan 150.000 kr og leggja í langtíma sparnað sem hann fær svo þegar hann er 18 eða 20 ára. Held að það sé betri eyðsla á þessum pening fyrst hann á tölvu fyrir.

Hinsvegar ef þið eruð staðráðnir í að gefa honum rándýra tölvu (þrettán ára a krakkar eiga ekki að eyða öllum deginum fyrir framan tölvuskjá) mæli ég með Kísildal. Senda Guðbjarti línu á kisildalur@kisildalur.is og fá tilboð í vél sem inniheldur 19 tommu flatskjá, ræður við helstu leiki (mínus lyklb mús hátalarar og Win) og budget uppá 150 þúsund. Þú ættir að fá þrusu díl. :wink:

Sent: Lau 10. Mar 2007 17:11
af urban
Zedro skrifaði:Annars í sambandi við þessa fermingavél. Ég persónulega myndi taka þennan 150.000 kr og leggja í langtíma sparnað sem hann fær svo þegar hann er 18 eða 20 ára. Held að það sé betri eyðsla á þessum pening fyrst hann á tölvu fyrir.


reyndar þessi svo kallað tölva sem að hann hefur aðgang að er algert heap of junk

Sent: Sun 11. Mar 2007 01:57
af gnarr
Ég hef séð Belenia 20" MVA og Samsung 20" hlið við hlið á sama borði. Belinia var með talsvert fallegri mynd. Mun dýpri liti og meira vibrant.

Sent: Mán 12. Mar 2007 11:07
af wICE_man
Hér eru review um Belinea skjáina af tveim virtum síðum:

Behardware.com

Prad.de

Panellinn sem er notaður í Samsung skjáinn er af ódýrari gerð (TN) og hefur smávægileg vandamál með backlight bleeding og viewing angle en er samt ágætis skjár fyrir peninginn, ég hef selt báða þessa skjái og tæki Belinea skjáinn fram yfir á hverjum degi.

Belinea er mest seldi skjáframleiðandinn í Þýskalandi síðustu 12 árin og hafa einnig verið söluhæðstir í öðrum 8 Evrópulöndum. Þeir eru með eina lægstu bilanatíðni í bransanum og ef ég ber saman reynslu okkar af samsung skjáunum sem við seldum í fyrra og belinea skjánum sem við höfum selt síðasta hálfa árið þá er hún heldur í hag Belinea hvað áræðanleika snertir.

Ástæðan fyrir því að það er lítið um reviews fyrir þá er að þeir eru enn sem komið er eingöngu seldir í Evrópu, reyndar erum við eina landið utan Evrópusambandsins sem hefur aðgang að þessum skjám.