Síða 1 af 1

Einhver munur á þessum X-Fi kortum?

Sent: Fös 02. Mar 2007 14:11
af Tappi
Sælir vaktarar.

Er einhver hljóðsnillingur sem getur sagt mér hvort ég finni einhvern mun á gæðum á þessum hljóðkortum eða á ég bara að velja það sem er ódýrast?

X-Fi Xtreme Music
X-Fi Xtreme Gamer
X-Fi Xtreme Audio

Á Sennheiser HD 215 heyrnatól og notkunin er aðallega í leiki og bíómyndir.

Sent: Fös 02. Mar 2007 14:26
af Gilmore
Ekki taka Audio, það verður enginn stuðningur fyrir það í Vista.

Held að Gamer og Music séu nánast sama kortið.

Sent: Fös 02. Mar 2007 16:37
af Servo Natura
En hvað um Elite Pro, Fatal1ty og Platinum?

Sent: Fös 16. Mar 2007 00:08
af Harvest
Servo Natura skrifaði:En hvað um Elite Pro, Fatal1ty og Platinum?


Ég tók Fatal1ty kortið eftir miklar pælingar... persónulega verð ég að segja að ég hef sjaldan fundið jafn mikinn mun á hljóði... shitt!

Fyrir utan það að fá mikið betra hljóð fékk ég líka meira power út úr því.

En það spilaði líka inní að ég fékk Fatality kortið fyrir slykk, eða skitinn 8000 kall en það kostaði áður eitthverja tugi.

Held að það sé í eitthverri tölvuversluninni á svona verði... sennilega eitthvað tilboð.

Sent: Fös 16. Mar 2007 13:15
af Alcatraz
Er það ekki í Tölvutek þar sem Fatal1ty kortið er selt svona ódýrt?

Sent: Fös 16. Mar 2007 14:17
af Harvest
Alcatraz skrifaði:Er það ekki í Tölvutek þar sem Fatal1ty kortið er selt svona ódýrt?


Júbb.. ég keypti það þar fyrir 8.000 kr.. veit ekki hvort þetta hafi verið eitthvað tímabunið opnunartilboð.. en sakar ekki að tékka.

Mæli með þessu korti!

Sent: Lau 17. Mar 2007 15:47
af Alcatraz
En er einhver munur á þessu Fatal1ty korti og Xtreme Music? Miðað við það sem ég hef lesið þá er þetta nánast það sama, ásamt hinum ódýrari kortunum.

Sent: Lau 17. Mar 2007 16:14
af SolidFeather
Fylgir audio bay með fatality og það er með X-RAM

Sent: Lau 17. Mar 2007 16:38
af ManiO
SolidFeather skrifaði:Fylgir audio bay með fatality og það er með X-RAM


En svo er X-Fi XtremeGamer Fatal1ty Pro sem er sama kort bara án audio bay (að minni bestu vitund).

Sent: Lau 17. Mar 2007 18:21
af ÓmarSmith
SolidFeather skrifaði:Fylgir audio bay með fatality og það er með X-RAM


Mér skilst að það sé líka Xram á t.d Extreme music kortinu þó það sé ekki auglýst. það er víst 8 eða 16mb en 64 á hinu.

Svo komust Anandtech að því að þetta Xram gefur þér ekkert aukalega sem hin kortin gera ekki þegar. Kölluðu þetta snobb fídus ;)

Hvort að þú áttir fræðilega að ná 1-3 fleiri FPS í leik eða álíka, ég man það ekki alveg.

Anyways þá eru þessi Xfi kort bara tær snilld alveg sama hvaða tegund þú kaupir.

SSDD ( same shit diffrent day )

Sent: Lau 17. Mar 2007 18:23
af ManiO
ÓmarSmith skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Fylgir audio bay með fatality og það er með X-RAM


Mér skilst að það sé líka Xram á t.d Extreme music kortinu þó það sé ekki auglýst. það er víst 8 eða 16mb en 64 á hinu.

Svo komust Anandtech að því að þetta Xram gefur þér ekkert aukalega sem hin kortin gera ekki þegar. Kölluðu þetta snobb fídus ;)

Hvort að þú áttir fræðilega að ná 1-3 fleiri FPS í leik eða álíka, ég man það ekki alveg.

Anyways þá eru þessi Xfi kort bara tær snilld alveg sama hvaða tegund þú kaupir.

SSDD ( same shit diffrent day )


Nema ódýrasta týpan, sú útgáfa er víst alger saur. Þ.e.a.s. Xtreme Audio og Digital Audio.

Sent: Lau 17. Mar 2007 23:32
af ICM
þetta minni nýtist í nokkra leiki, t.d. Battlefield 2 þá færðu t.d. helmingi fleiri hljóðrásir heldur en annars án þess að fá performance hit.

Sent: Sun 18. Mar 2007 01:13
af ÓmarSmith
Með vélina mína er ekki sjéns að ég fái performance hit with or without this Xram or not ;)

Er alltaf langt yfir 100 FPS þannig að well .... no gain there :wink:

Sent: Mán 19. Mar 2007 22:06
af elgringo
Útaf þessum skemmtilega þræði þá stormaði ég útí Tölvutek að kaupa mér Fatal1ty korta á 8.000 en nei. ég kom þaðan út 14900 kr fátækari.
Þetta var ódýrasta fatal1ty kortið sem þeir eru að selja

X-Fi Fatal1ty Xtreme Gamer Pro Series. Mikill titill fyrir dýrt kort. Það var hægt að fá Xtreme Gamer kort á 8000 og eitthvað en ekki fatal1ty.

Ég helf að ég bara geti varla farið að eyða meiru í þessa tölvu hjá mér nema að fá mér Quad og SLI 8800 GTX. Það verður ekki strax. en allavega Fatal1ty kostar 14.900 en ekki 8.000 hjá Tölvutek.

Sent: Mán 19. Mar 2007 22:11
af Harvest
elgringo skrifaði:Útaf þessum skemmtilega þræði þá stormaði ég útí Tölvutek að kaupa mér Fital1ty korta á 8.000 en nei. ég kom þaðan út 14900 kr fátækari.
Þetta var ódýrasta fital1ty kortið sem þeir eru að selja

X-Fi Fital1ty Xtreme Gamer Pro Series. Mikill titill fyrir dýrt kort. Það var hægt að fá Xtreme Gamer kort á 8000 og eitthvað en ekki fital1ty.

Ég helf að ég bara geti varla farið að eyða meiru í þessa tölvu hjá mér nema að fá mér Quad og SLI 8800 GTX. Það verður ekki strax. en allavega Fital1ty kostar 14.900 en ekki 8.000 hjá Tölvutek.
+

Þetta hefur þá bara verið eitthvað opnunartilboð hjá þeim. Allavega er ég með fatal1ty kort, og ég keypti það ekki út af nafninu. Bara hreynlega vegna þess að þetta var drullu ódýrt en gott kort.

Sent: Mán 19. Mar 2007 22:12
af elgringo
Það voru komnir 2 sölumenn í málið oig þeir könnuðust ekki við þetta verð. ég myndi aldrei selja það dýrara en ég keypti það :D

Sent: Mán 19. Mar 2007 22:16
af Harvest
elgringo skrifaði:Það voru komnir 2 sölumenn í málið oig þeir könnuðust ekki við þetta verð. ég myndi aldrei selja það dýrara en ég keypti það :D


Vó.. annaðhvort er ég mjög gleyminn eða þeir eitthvað... eitthvað, já. :)

Já.. ég þyrfti eiginlega að tékka á bókhaldinu bara...fá þetta á hreynt. En ég held alveg örugglega að það hafi verið 8.000 kr.

Sent: Þri 20. Mar 2007 12:09
af wICE_man
Harvest, þeir hafa örugglega látið þig fá vitlaust kort haha :D

Þeir hafa aldrei auglýst Fatal1ty á 8.000kr (þeir hafa reyndar ekkert auglýst það) og ef þeir eru með einhver súpertilboð þá máttu bóka að þeir auglýsa það óspart.

En semsagt, gott fyrir þig en slæmt fyrir elgringo.

Sent: Þri 20. Mar 2007 14:37
af Harvest
wICE_man skrifaði:Harvest, þeir hafa örugglega látið þig fá vitlaust kort haha :D

Þeir hafa aldrei auglýst Fatal1ty á 8.000kr (þeir hafa reyndar ekkert auglýst það) og ef þeir eru með einhver súpertilboð þá máttu bóka að þeir auglýsa það óspart.

En semsagt, gott fyrir þig en slæmt fyrir elgringo.



Ég fór bara í bókhaldið og þú virðist hafa rétt fyrir þér... þetta er 14.990kr. sem ég hef greitt fyrir þetta kort. Get ekki sagt að ég hafi verið svikinn með það, því að ég er mjög ánægður með það.

En ss. 15.000kr. fyrir Fatal1ty

Sent: Þri 20. Mar 2007 14:51
af ÓmarSmith
hefði frekar tekið bara Extreme Music ;)

Ekki verra í neinn stað og kostar 8900 ódýrast ( oem útg. )

Sent: Þri 20. Mar 2007 15:04
af Tjobbi
ÓmarSmith skrifaði:hefði frekar tekið bara Extreme Music ;)

Ekki verra í neinn stað og kostar 8900 ódýrast ( oem útg. )


Hvar sást þú x-fi xtreme music á 8.900?

Endilega pósta link.