Síða 1 af 1
Uppfæra AMD64 3000+ í AMD64 3800+?
Sent: Þri 27. Feb 2007 15:35
af END
Sælir, ég var að velta mér hvort það væri ekki vel 8.000 kallsins virði að uppfæra AMD64 3000+ upp í AMD64 3800+. Vegna þess að gamla móðurborðið bilaði er ég með nýtt socket 939 móðurborð,
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view&flo=product&id_top=945&id_sub=2256&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=MOB_ABIT_KN8_SLI. Ég nota tölvuna nánast ekkert í leiki en væri samt til í smá boost fyrir alla þá almennu vinnslu sem ég stunda og finnst það ekki svara kostnaði að taka skrefið yfir í Core 2 duo. Þessi almenna vinnsla felur aðallega í sér videogláp og tónlistarspilun, taka öryggisafrit af DVD myndunum mínum, vafra um og Office, svo eitthvað sé nefnt.
Ég ætti kannski líka/frekar að uppfæra vinnsluminnið? Ég er með 2x512 mb DDR400 minni. Ég vil samt ekki eyða of miklu í minni sem eru af bráðum úreltum staðli og ég vil yfir höfuð ekki eyða of miklu í uppfærslu á þetta gamalli tölvu. Það væri samt æskilegt að vélin entist mér í að minnsta kosti eitt ár í viðbót.
Einhver álit?
Sent: Þri 27. Feb 2007 15:38
af Mazi!
alveg ágæt Uppfærsla svosem, samt væri sniðugt að redda sér 3800+ X2
Sent: Þri 27. Feb 2007 15:45
af END
Mazi! skrifaði:alveg ágæt Uppfærsla svosem, samt væri sniðugt að redda sér 3800+ X2
Þá notuðum? Ef einhver á slíkan/sambærilegan grip og vill selja má viðkomandi láta mig vita.
Sent: Þri 27. Feb 2007 16:03
af Mazi!
END skrifaði:Mazi! skrifaði:alveg ágæt Uppfærsla svosem, samt væri sniðugt að redda sér 3800+ X2
Þá notuðum? Ef einhver á slíkan/sambærilegan grip og vill selja má viðkomandi láta mig vita.
Sennilega notuðum, Skilst að AMD séu hættir að framleiða X2 örgjörva fyrir S939.
Sent: Þri 27. Feb 2007 16:22
af Demon
Miðað við þessa almennu vinnslu sem þú nefnir þá myndi ég ekki segja að þessi uppfærsla ætti rétt á sér.
Sent: Þri 27. Feb 2007 16:41
af END
Demon skrifaði:Miðað við þessa almennu vinnslu sem þú nefnir þá myndi ég ekki segja að þessi uppfærsla ætti rétt á sér.
Ætti ég samt ekki að finna einhvern mun? Kannski ekki 8.000 kr. virði?
Ég get alveg séð fyrir mé svona aðstæður:
http://www23.tomshardware.com/cpu.html?modelx=33&model1=500&model2=492&chart=192
Þar virðist munurinn vera töluverður.
Sent: Mið 28. Feb 2007 09:48
af dadik
Ég myndi ekki gera þetta. Reyndu frekar að spara í smá tíma og fara í X2 útgáfu. X2 örgjörvarnir fara líklega að detta niðurfyrir 10.000 kall á næstu vikum.
Ég er nýbúinn að skipta yfir í dual core örgjörva og get sagt þér að munurinn er alveg fáránlega mikill, jafnvel í svona "venjulegri" vinnslu.
Sent: Fös 02. Mar 2007 15:49
af END
dadik skrifaði:Ég myndi ekki gera þetta. Reyndu frekar að spara í smá tíma og fara í X2 útgáfu. X2 örgjörvarnir fara líklega að detta niðurfyrir 10.000 kall á næstu vikum.
Ég er nýbúinn að skipta yfir í dual core örgjörva og get sagt þér að munurinn er alveg fáránlega mikill, jafnvel í svona "venjulegri" vinnslu.
Hmm já þetta er kannski alveg óþarfi

Eru samt ekki meiri líkur á að X2 fyrir S939 hætti alveg í sölu á næstu mánuðum heldur en að þeir lækki niður fyrir 10.000kr.
Er eitthvað vit í því að vera með 4x512MB minni? Þá gæti ég boðið í þessi hér:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=13075 Er það alveg stable?
Sent: Fös 02. Mar 2007 15:58
af kristjanm
Eg myndi spara peninginn ef ég væri þú og uppfæra almennilega þegar þú átt fyrir því.