Síða 1 af 1
Upplausn - 1600x1200 vs. 1680x1050?
Sent: Þri 27. Feb 2007 13:19
af dadik
Ég sé að flestir 20" - 22" skjáir sem eru til sölu í dag eru komnir í 1680x1050 upplausn. Er þetta ekki bölvað vesen sem menn ætla að spila leiki í fullscreen? Amk minnir mig að stuðningurinn við þessar widescreen upplausnir hafi verið eitthvað takmarkaður fram af.
Hefur einhver reynslu af þessu?
-- dk
Sent: Þri 27. Feb 2007 13:26
af ÓmarSmith
1680x 1050 er æði.
Það er nánast garanterað að allir leikir útgefnir á þessu ári muni styðja þessa upplausn þar sem að þetta er eflaust að verða mest seldi skjárinn á markaðnum í dag ( 20.1" 1680x1050 )
Það er ekkert mál að stilla leiki til þannig að þeir séu í þessari upplausn. ef options sýnir þetta ekki þá er alltaf hægt að breyta config fileunum og setja manual inn hvaða upplausn sem þú vilt.
Ég gerði þetta með BF2 og BF2142 og það svínvirkar.
þurfti að gera þetta líka með FEAR og það virkaði as well.
Sent: Þri 27. Feb 2007 16:18
af Demon
depends...
Hvort spilarðu meira...gamla eða nýja leiki?
Gamlir leikir eru margir hverjir með engan stuðning fyrir widescreen.
Því miður.
Sent: Þri 27. Feb 2007 19:43
af Yank
ég man ekki eftir að hafa séð leik nýlega sem ekki er hægt að spila í 1600x1200 en hitt er sjaldgæfara.