Síða 1 af 1

sjónvarpskort?

Sent: Lau 09. Nóv 2002 01:00
af odinnn
Okei, ég veit hvað er hægt að gera með sjónvarpskortum=>afrugla. Svo mig langar að nota tölvuna mína til þess að afrugla vissar stöðvar. En núna veit ég ekki mikið um þetta mál, getur einhver frætt mig um þetta?

með þökk
odinnn

Sent: Lau 09. Nóv 2002 02:35
af halanegri
ég var að kaupa notað sjónvarpskort, og eina vandamálið mitt eru driverar, því með einum driverum fá ég bara mynd og hinum ekkert hljóð. annars er það sáraeinfalt að nota forrit sem heitir ExoTV. það er með margar afruglunaraðferðir innbyggðar, eins og Diskret(Stöð2, Sýn og Bíórásin) og er byrjað að nota Cablecrypt(Breiðbandið), það virkar ekki ennþá, þeir eru bara að prófa það núna. sambandi við gæðin á afruglun þá kom þetta bara nokkuð vel út hjá mér, nema það að það þarf sér forrit til að afrugla hljóðið, allavega fyrir Stöð2, Sýn og Bíórásina. en þá keyrirt maður bara upp forrit í leiðinni sem heitir Wilma, sem afruglar hljóðið.

Sent: Lau 09. Nóv 2002 04:10
af kiddi
Hvaða stillingar notarðu á diskret setupinu? Og hvaða sjónvarpskort ertu að nota?

virkar þetta??

Sent: Lau 09. Nóv 2002 10:59
af GuðjónR
En hvernin virkar þetta BorgTV forrit sem allir eru að slefa yfir á Legolandi.??

Sent: Sun 10. Nóv 2002 20:21
af halanegri
ég notaði bara nýjasta exotv og bara venjulegu diskret stillingarnar og kveikti á diskret. samt virkaði það bara með loftneti, ég náði ekki að afrugla stöð2, sýn og bíórásina gegnum breiðbandið

Sent: Sun 10. Nóv 2002 20:22
af halanegri
en mig langar að vita hvernig maður notar BorgTV

Sent: Sun 10. Nóv 2002 21:24
af kiddi
Hvaða stöðvar gastu þá afruglað eiginlega? :) Hinar fjölvarpsrásirnar?

Sent: Sun 10. Nóv 2002 22:02
af odinnn
mig langar að kaupa mér sjónvarpskort en eins og ég sagði þá veit ég ekkert.

Hvaða gerð mæliði með eða eruð að nota og virka?

PS. er á Akureyri þannig að ég er ekki með breiðbandið

Sent: Sun 10. Nóv 2002 23:12
af halanegri
kiddi, ég næ ekki fjölvarpinu, ég veit ekki af hverju, örugglega léleg útsending, eða þarf maður kannski örbylgjuloftnet til þess?

odinnn, til að geta afruglað stöðvar, þá þarf decoderinn á kortinu að vera annaðhvort Bt848, Bt849, Bt878 eða Bt879.

Sent: Sun 10. Nóv 2002 23:13
af halanegri
ójá, ég er með Mediforte TV-Vision PV951TF sjónvarpskort sem er með 878 decoder

Sent: Mán 11. Nóv 2002 13:35
af odinnn
halanegri skrifaði:ójá, ég er með Mediforte TV-Vision PV951TF sjónvarpskort sem er með 878 decoder


hvar veslaðiru kortið og á hvað?

Sent: Mán 11. Nóv 2002 17:05
af halanegri
einhver gaur á legolandi seldi mér það á 3000kall, en bestu kortin fyrir þetta geturu fengið á computer.is þau heita Hauppage WinTV og ég var að prófa forrit sem heitir K!TV og það er besta forritið sem ég hef prófað til að afrugla, þá þarf heldur ekki annað forrit til að afrugla hljóðið. síðan virkar það líka fullkomlega á windows xp.

það er hægt að fá K!TV á kastortv.com

tvkort vs afruglari

Sent: Mán 11. Nóv 2002 17:08
af GuðjónR
En þegar þú ert kominn með topp kort og topp forrit, eru myndgæðin þá sömu og með gamla afruglaranum ???

Til halanegra

Sent: Þri 19. Nóv 2002 15:22
af Le Drum
Sæll halanegri, ég er með sama tv kort og þú, var að ná í K!TV en er ekki alveg að fatta hvernig ég get afruglað með því forriti. Geturðu leiðbeint mér eitthvað? Er með XP.

Fyrirfram þökk.

Sent: Mið 11. Des 2002 16:51
af Dósaopnari
Það þarf að nota plugins í K!TV. Setja þau í plugins möppuna í K!tv dir.

Sent: Lau 14. Des 2002 21:35
af tetra
:?: Ég hef skoðað þessa umræðu og ætla að prófa svona sjónvarpsdót.
Hvernig eru myndgæðin ? eru þau sæmileg eða léleg eða kannski bara allt í lagi. ps.. mig vantar sjónvarpsk :cry: rt

Audio plugin fyrir K!TV

Sent: Fim 09. Jan 2003 08:33
af Le Drum
Er einhver sem getur sagt mér hvaða plugin ég á að nota til þess að afrugla hljóðið fyrir K!TV ? Og þá hvar ég finn það?

Sent: Fim 09. Jan 2003 15:13
af Hannesinn
SJÓNVARPSKORT - Hauppauge WinTV Go - Retail
http://www.computer.is/vorur/3001

Getur einhver sagt mér hvar maður finnur út hvaða kubbasett er á þessu korti? Það á víst að vera mismunandi eftir "árgangi". Annars er ég að leita eftir BT878 kubbnum.