Síða 1 af 1
Besti hiti
Sent: Fim 14. Ágú 2003 23:55
af Rednex
Ég var að spá, ef maður overclokkar og hitinn hækkar er maður sammt að fá eitthvað meira útúr vélinni?
Ég er með 2500 barton örgjörva, hver er besti hitinn fyrir hann??
Sent: Fös 15. Ágú 2003 00:24
af MezzUp
Hiti skiptir engu um performance, á meðan örrin verður ekki of heitur......
2000Mhz tölva í 80° er hraðvirkari en 1900Mhz tölva í 10°, sömuleiðis er 2000Mhz tölva í 10 er að sama leiti hraðvirkari en 1900Mhz tölva í 80°
Sent: Fös 15. Ágú 2003 07:41
af elv
Ef þú myndir ná 1900 í 10c þá myndi hann vinna betur en 2000 í 80c

Sent: Fös 15. Ágú 2003 14:09
af MezzUp
ha, er það?
Sent: Fös 15. Ágú 2003 14:13
af elv
Örrinn vinnur betur ef hann er vel kaldur.
Sent: Lau 16. Ágú 2003 12:19
af Fletch
elv skrifaði:Ef þú myndir ná 1900 í 10c þá myndi hann vinna betur en 2000 í 80c

ég er nú ekki sammála þessu,
ef hann er að keyra rétt á 2000 þá yrði hann alltaf hraðari en 1900 örgjörvi, sama hve kaldur hann er...
Þegar er talað um að eitthvað keyri betur kalt í tölvum þá er það útafþví að ef það er kalt gætiru klukkað hærra...
Fletch
Sent: Lau 16. Ágú 2003 13:11
af MezzUp
amm, ég hélt það einmitt
Sent: Lau 16. Ágú 2003 13:16
af Voffinn
Ef það hitnar hinsvegar of mikið, þá fer hann að vinna hægar... samanber vídeóið sem ég horfði á tomshardware þegar þeir tóku kælinguna af intel, þá fór tölvuna úr einhverjum himinnháum fps, niðrí eitthvað suddalega lítið.
Auðvitað skiptir það einhverju máli, hvað hitinn er, bara innan ákveðna marka.
Sent: Lau 16. Ágú 2003 13:22
af GuðjónR
Þetta er bara einföld rafmagnsfræði sem snýst um leiðni hluta.
Því minna viðnám því betri leiðni, hiti eykur viðnám og minnkar leiðni.
Þess vegna eru ofurtölvur frystar í fljótandi súrefni.
Hitinn hefur mikið að segja...
Sent: Lau 16. Ágú 2003 13:25
af Voffinn
fljótandi köfnunarefni meinarðu ?
Sent: Lau 16. Ágú 2003 13:29
af GuðjónR
ahh já auðvitað...

Sent: Lau 16. Ágú 2003 13:41
af elv
100mhz og 70c meira, myndi ekki gera neitt meira
Sent: Lau 16. Ágú 2003 15:41
af halanegri
Voffinn skrifaði:Ef það hitnar hinsvegar of mikið, þá fer hann að vinna hægar... samanber vídeóið sem ég horfði á tomshardware þegar þeir tóku kælinguna af intel, þá fór tölvuna úr einhverjum himinnháum fps, niðrí eitthvað suddalega lítið.
Auðvitað skiptir það einhverju máli, hvað hitinn er, bara innan ákveðna marka.
þar var ekki útaf hitanum, heldur hægði örgjörvin á sér til þess að hann yrði kaldari(í stað þess að ofhitna)
Sent: Lau 16. Ágú 2003 15:54
af Voffinn
Hann hægði nú samt á sér

Sent: Lau 16. Ágú 2003 17:41
af halanegri
já, útaf því að kælingin var tekin af

Sent: Lau 16. Ágú 2003 20:14
af Fletch
Voffinn skrifaði:Ef það hitnar hinsvegar of mikið, þá fer hann að vinna hægar... samanber vídeóið sem ég horfði á tomshardware þegar þeir tóku kælinguna af intel, þá fór tölvuna úr einhverjum himinnháum fps, niðrí eitthvað suddalega lítið.
Auðvitað skiptir það einhverju máli, hvað hitinn er, bara innan ákveðna marka.
nei, þið eruð að misskilja, ástæðan fyrir því að það hægði á því er að það er innbyggð hitavörn í intel örrunum sem klukkar tíðnina niður ef hann verður of heitur.....
Annars myndi örgjörvinn bara keyra á sínum hraða þangað til hann brynni yfir
Fletch
Sent: Lau 16. Ágú 2003 20:15
af Fletch
GuðjónR skrifaði:Þetta er bara einföld rafmagnsfræði sem snýst um leiðni hluta.
Því minna viðnám því betri leiðni, hiti eykur viðnám og minnkar leiðni.
Þess vegna eru ofurtölvur frystar í fljótandi súrefni.
Hitinn hefur mikið að segja...
Örgjörvarnir keyra bara á tíðninni sem klukkutíðnin segir til um ... ef hann verður of heitur nær örgjörvinnin einfaldlega ekki að vinna og tölvan frýs... ef þú kælir hann í -200°C þá verður hann ekkert hraðvirkar, hann er ennþá á sömu tíðni.. en á -200°C gætiru sett hann á miklu hærri tíðni....
Fletch
Sent: Lau 16. Ágú 2003 20:32
af GuðjónR
Rétt...
Sent: Lau 16. Ágú 2003 20:46
af halanegri
Fletch skrifaði:Voffinn skrifaði:Ef það hitnar hinsvegar of mikið, þá fer hann að vinna hægar... samanber vídeóið sem ég horfði á tomshardware þegar þeir tóku kælinguna af intel, þá fór tölvuna úr einhverjum himinnháum fps, niðrí eitthvað suddalega lítið.
Auðvitað skiptir það einhverju máli, hvað hitinn er, bara innan ákveðna marka.
nei, þið eruð að misskilja, ástæðan fyrir því að það hægði á því er að það er innbyggð hitavörn í intel örrunum sem klukkar tíðnina niður ef hann verður of heitur.....
Annars myndi örgjörvinn bara keyra á sínum hraða þangað til hann brynni yfir
Fletch
einmitt það sem ég var að segja

Sent: Lau 16. Ágú 2003 20:47
af Fletch
halanegri skrifaði:einmitt það sem ég var að segja

yep, sé það
var smá misskilningur í gangi
Fletch