Síða 1 af 2

Hljóðkort og arðsemi þess

Sent: Þri 02. Jan 2007 02:38
af Harvest
Góðan dag/kvöld/nótt

Mig langaði að forvitnast um hvaða gagn ég hefði af hljóðkorti og hvort það bætti eitthvað hjá mér. Ég er með nýlegt ASUS móðurborð með innbyggðu 7.1 hjóðkorti (8 mánaða). Mundi þetta breyta eitthverju fyrir mig að fá mér hljóðkort?

Og hvaða hljóðkort ætti ég að fá mér (er í leikjum og hlusta mikið á tónlist).

ps. er með 5.1 heimabíó tengt (þó að vísu bara í svona rautt og hvítt tengi) og svo er ég líka með tengda 2.1 tölvuhátalara (nokkuð öflugir, 300 rms w)

Sent: Þri 02. Jan 2007 04:59
af The Flying Dutchman
X-Fi Xtreme Gamer hjá Tölvutek...

Sent: Þri 02. Jan 2007 05:24
af mjamja
ég er með þetta http://start.is/product_info.php?cPath=80_63&products_id=1207 og gæti ekki verið ánægðari

Sent: Þri 02. Jan 2007 05:56
af fallen
mjamja skrifaði:ég er með þetta http://start.is/product_info.php?cPath=80_63&products_id=1207 og gæti ekki verið ánægðari


ertu virkilega ánægður með bloated hugbúnað og lélegasta driversupport sögunar?
FUSS.

Sent: Þri 02. Jan 2007 16:32
af Harvest
Takk fyrir svörin...en hvað er ég að græða á að kaupa mér svona...þetta kostar helvíti mikinn pening en ég er alveg til í að eyða aðeins í þetta ef að maður er að græða eitthvað á þessu.

Sent: Þri 02. Jan 2007 18:29
af Tappi
Persónulega þá finnst mér þetta vera stundum svoldið ofmetið. Reyndar er þetta bölvað drasl á sumum móðurborðum. En ég er að nota creative X-Fi XtremeMusic á aðal tölvunni minni, en ég er með aðra vél sem ég er með sirka 6 ára creative hljóðkorti og var bara meðalkort á sínum tíma og ég finn nánast engan mun.

Sent: Þri 02. Jan 2007 20:51
af The Flying Dutchman
Fádu thér betri hátalara eda Sennheiser thad er gífurlegur munur, annars ertu med ódýrasta kortid í X-Fi línunni thad eru dýrari kort med hágaeda vélbúnadi. Prófadu leiki eins og Prey med X-Fi og án...

Sent: Þri 02. Jan 2007 22:14
af Harvest
Þessir tölvuhátalarar sem ég er með eru ótrúlega góðir. Kostar alveg 20k þetta 2.1 kerfi (hef ekki pláss fyrir stærra en 2.1 þar sem tölvan er). Svo til að hafa smá fun í þessu tengdi ég líka heimabíóið mitt við þannig ég er að blasta 1300 RMS wött (heimabíóið 1000).

Svo á ég mjög góða Senheisera og það er náttúrulega bara snilld að spila með þá. En ég er alveg sáttur með hljóðið sem ég er að fá... veit samt ekki hvort það getur orðið betra :P (hef ekki samanburðinn) þessvegna er ég að spurja ykkur vaktarana :D

Móðurborðið mitt er Asus A8R32-MVP Deluxe

Sent: Þri 02. Jan 2007 23:28
af Yank
Þú færð betri hljóm með þessu

http://www.tolvulistinn.is/vara/3100

heldur en 8 Channel Realtek ALC882 Audio

Sent: Mið 03. Jan 2007 02:06
af Harvest
En er þetta nógu gott??? er ekki betra fyrir mig að fá aðeins betra?

Og segirðu að ég fái meira út úr þessu korti en úr innbyggða dótinu í móðurborðinu?

Sent: Mið 03. Jan 2007 02:11
af The Flying Dutchman
Thad er ekki ''mjög'' langt sídan thetta kort kostadi 30thús :lol:

Veit ekki um driver support thar sem ég held alveg öruglega ad thad sé haett ad framleida thad, thad er heldur ekki med X-Fi kubbin svo thad er ekki eins future proof í leikina og ekki med Crystalizer. En thetta kort var auglýst PRO svo thad aetti ad vera nokkud betra en innbyggda kortid thitt.

Sent: Mið 03. Jan 2007 05:37
af Vilezhout
Ef að þú ert til í að hósta upp aurunum fyrir betri hljómgæðum og með endabúnað til þess að finna muninn.

Ég finn helst mun á ac hljóðstýringunni og x-fi fatal1ty fps kortinu í dvd myndum og 320+ kbs mp3 skrám.

Tölvuleikir eru örlítið betri enn fáir nýta sér það almennilega helst bf2 og 2142 sem að ég finn einhvern merkjanlegan mun í.

Sent: Mið 03. Jan 2007 12:25
af Harvest
ég held að ég geti þá sparað mér peninginn og slept þessu :)

ég horfi á dvd myndir í dvd spialara og fyrst að tölvuleikirnir eru ekki farunir að nýta sér þetta almennilega og ég er hættur að spila bf leikina þá finnst mér ekki nóg að hafa þetta bara í tónlistina :P

Sent: Mið 03. Jan 2007 12:26
af Jellyman
Ég er að spá í að fá mér svona kort, ætlaði fyrst að fá mér http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1207
svo sá ég X-Fi Xtreme Gamer kortið á sama verði í tölvutek :? hvort er betra?

Sent: Mið 03. Jan 2007 12:29
af Harvest
Ég er að spá í að fá mér svona kort, ætlaði fyrst að fá mér http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1207
svo sá ég X-Fi Xtreme Gamer kortið á sama verði í tölvutek Confused hvort er betra?


Hvar sástu gamer kortið á því verði???

held nefnilega að það sé betra.

Sent: Mið 03. Jan 2007 13:12
af Jellyman
í vörulistanum hjá tölvutek
Creative SB X-Fi XtremeGamer Fatal1ty hljóðkort PCI á 14900kr.
Reyndar aðeins dýrara en þetta í start.
Síðan Creative SB X-Fi XtremeGamer hljóðkort PCI sem kostar 8990kr.
hvernig er þetta meðað við Creative Sound Blaster X-Fi XtremeMusic?

Sent: Mið 03. Jan 2007 23:10
af Vilezhout
minnir að með fatal1ty nafninu komi 64mb xram sem að nýtist einhvernveginn annars er þetta sama kort og xtrememusic held ég

Sent: Fim 04. Jan 2007 14:29
af Jellyman
fór útí tölvutek í gær og fékk mér X-Fi XtremeGamer Fatal1ty. Þetta er allgjör snilld sko! var með eitthvað helvítis suð í hinu draslinu og núna er allt bara miklu betra :D

Sent: Fim 04. Jan 2007 15:08
af The Flying Dutchman
Til hamingju... profadu nu ad slokkva a ollu thessu CMMS 3D og thvi og kveikja a 24bit crystalizer tha verduru anaegdur.

Sent: Fim 04. Jan 2007 15:55
af ÓmarSmith
Bloated hugbúnað og hvað ?

Er einhver munur á þessum X-fi kortum annar en eitthvað BAY og fjarstýring sem 1/100 þarf að nota ;)

þetta er sami hljóðkubbur á öllum kortunum nema að dýrasta týpan er með 64mb minni sem þú nýtir aldrei skv. THG og Anandtech.

á Extreme music er 8 eða 16mb ram sem aldrei var gefið upp ;)

En ég get ekki séð að það skipti neinu einasta máli.

Sjálfur er ég með Xtreme Music kortið enda hvarflaði ekki að mér að eyða 15.000 meira til að fá remote eða Bay sem ég hef ekkkkkert með að gera.

Soundið er stórkostlegt úr þessu miðað við SB Live eða innbyggðu kortin.

Sent: Fim 04. Jan 2007 17:22
af SolidFeather
Ég er að nota X-Fi Fatal1ty og er helvíti ánægður. Ég nota front panelinn mjög oft.

Sent: Fim 04. Jan 2007 19:05
af Harvest
Ómar, á maður þá að fá sér music eða ? fyrst að þetta er sama dótið?

Heldurðu að ég sé að græða mikið á þessu? - er þetta peningana virði fyrir mig miðað við hvað ég er með innbyggt í móðurborði?

Sent: Fim 04. Jan 2007 22:49
af Harvest
Solid.. finnurðu mikinn mun á hljóði úr kortinu þínu og t.d. bara úr móðurborðinu?

Sent: Fim 04. Jan 2007 22:58
af SolidFeather
Ég heyrði mun bara á því að fara úr Audigy 2 yfir í X-Fi, þannig að já.

Sent: Fim 04. Jan 2007 23:05
af Harvest
Ég heyrði mun bara á því að fara úr Audigy 2 yfir í X-Fi, þannig að já.


I'm getting myself a new soundcard tomorrow :P

Nema eitthver grípi inní og segi mér að bíða af því að þau verði ódýrari eftir smá tíma eða að það séu að koma eitthver betri :)