Síða 1 af 1

Meira pláss [hdd] Hvað eru bestu kaupin ?

Sent: Sun 31. Des 2006 21:06
af Viktor
Er búinn að fylla báða IDE diskana mína (250+80GB) svo ég ætla nú að fara versla mér nýja. Veit ekki alveg hvað ég þarf mikið pláss en miðum við allavega 200GB+ eða um það bil..

Svo ég var að velta því fyrir mér, hvort ég ætti að kaupa mér IDE eða SATA stýringu, hvort er hagstæðara miðað við verð per Gigabyte\hraði ? Vona að einhver hérna geti komið með links á einhver góð kaup..

Það eru engin Sata tengi á móðurborðinu, einungis 2 IDE kapal tengi, og 2 tengi á hverri snúru. Er að nota 3/4 tengjunum. Er þá best að kaupa sér 250GB IDE ?

Veit þetta er svolítið langt og kannski einhverjir útúrsnúningar en ég vona að meginmálið skiljist allavega.

Sent: Þri 02. Jan 2007 12:49
af Fumbler
Hérna er smá tafla sem ég hennti upp af núverandi verði á Hdd á verðvaktinni.
Á þessu sérð að besta verð pr. GB er á 300GB ATA disk eða 31,50kr pr GB svo koma 250GB ATA og SATA diskar mjög nálægt og síðan 400 GB af báðum gerðum með 31,88 kr pr. GB

Kóði: Velja allt

Stærð í GB   Verð   Verð pr. GB
SATA
   750   39.750   53,00
   500   21.950   43,90
   400   12.750   31,88
   320   10.750   33,59
   300   10.990   36,63
   250    7.950   31,80
   200    8.170   40,85
   160    6.850   42,81
   120    7.410   61,75
   150   24.950   166,33
    74   14.742   199,22
   36,7   9.779   266,46
ATA
   500   21.750   43,50
   400   12.750   31,88
   300    9.450   31,50
   250    7.950   31,80
   200    7.690   38,45
   160    6.250   39,06
   120    6.935   57,79

Sent: Þri 02. Jan 2007 13:33
af ManiO
Fyrir nokkrum dögum var LANG hagstæðast að kaupa 250 gig diska SATA. Veit ekkert um IDE.

Sent: Mið 03. Jan 2007 21:15
af Viktor
Hvað er ATA ? Ef ég þarf að nota eitthvað annað en IDE þarf ég að kaupa mér diskaspjald sem hækkar verðið á kr/GB svo þessi tafla segir mér fátt :(

Sent: Mið 03. Jan 2007 23:14
af Fumbler
PATA, ATA og IDE er allt sami hluturinn í minni orðabók.
Advanced Technology Attachment (IDE Interface for IBM-PC/AT & compatible computers)
Parallel Advanced Technology Attachment (hard disk interface)
Intelligent Drive Electronics
Serial Advanced Technology Attachment (hard disk interface)