Mp3 spilarar tengja í bílaspilara


Höfundur
Ragnar
Staða: Ótengdur

Mp3 spilarar tengja í bílaspilara

Pósturaf Ragnar » Fim 14. Des 2006 22:51

Góðan ég er að leita mér að spilara til að tengja við spilarann sem er í bílnum mínum. Það er Alipne CDE9848RB það er ekki plögg fyrir Ipod bara til að tengja í þar sem headset á að fara. Ég er búinn að vera að leita lengi og hef ekkert fundið við mitt hæfi.

Ég hef heyrt að það sé hægt að tengja harðadiska við spilara en það kosti hönd og fót.

Það sem ég er að leita að er þetta.

Þarf að vera stór minnst 5gb. þarf ekki að getað skoðað myndir eða video.

spilarainn verður bara notaður í að geyma tónlist í staðinn fyrir að vera með 70diska eða því umlíkt.

Ef einhver getur bent mér á ekki svo dýran spilara með fáum ....fítusum... og nógu stóran þá verð ég mikið glaður.




dos
Nörd
Póstar: 132
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 13:05
Reputation: 0
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Pósturaf dos » Fim 14. Des 2006 23:16

Það er Aux (RCA) tengi á þessum spilara, þannig að þú getur tengt hvaða mp3 spilara sem er við hann, líka Ipod




Höfundur
Ragnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Ragnar » Fös 15. Des 2006 16:45

Nú? ok mér var sagt í Nesradíó að ipod virkaði ekki með þessum spilara.




dos
Nörd
Póstar: 132
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 13:05
Reputation: 0
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Pósturaf dos » Fös 15. Des 2006 17:09

Er þetta ekki örugglega spilarinn, http://www.dvbcaraudio.co.uk/product/Alpine_CDE9848RB.html
Þú þarft bara snúru með headphones tengi á öðrum endanum og RCA tengi á hinum og tengja hana við RCA tengin aftan á spilaranum, hinn endan stinguru síðan í headphone tengið á mp3 spilaranum.
Hef reyndar ekki gert þetta á Alpine spilara, en þetta gekk á Kenwood.




Höfundur
Ragnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Ragnar » Fös 15. Des 2006 19:02

dos skrifaði:Er þetta ekki örugglega spilarinn, http://www.dvbcaraudio.co.uk/product/Alpine_CDE9848RB.html
Þú þarft bara snúru með headphones tengi á öðrum endanum og RCA tengi á hinum og tengja hana við RCA tengin aftan á spilaranum, hinn endan stinguru síðan í headphone tengið á mp3 spilaranum.
Hef reyndar ekki gert þetta á Alpine spilara, en þetta gekk á Kenwood.


ég veit það að það er rca tengi og tengist í headset í mp3 spilara en þessi virkar ekki með ipod (enda er það drasl og okur dýrt). Ég er bara að leita mér að stórum spilara. Bara allir spilarar eru með hlutum sem ég hef ekkert að gera við. Kannski verð ég bara að sætta mig við það.