Síða 1 af 1

Bassavandræði

Sent: Sun 10. Des 2006 15:54
af END
Sælir, ég er nú ekki með merkilegt hátalarkerfi, Logitech X-230 2.1 kerfi, en mér finnst eins og það sé ekki að skila jafn miklu og það gerði. Það getur verið að það sé vitleysa í mér þar sem ég nota hátalarana ekki reglulega til að hlusta á tónlist en mér finnst bassinn voðalega veikur. Hinir tveir hátalararnir virðast vera í lagi.

Ég reyndi að googla þetta en fólk virtist frekar vera að lenda í því að fá of mikinn bassa og mig minnir að það hafi einmitt verið þannig í upphafi. Er e-ð sem ég get gert eða er bassahátalarinn bara ónýtur? Það vill safnast svoldið ryk þarna undir borðinu hjá tölvunni, kannski er það bara búið að eyðileggja hann? :P

Sent: Mán 11. Des 2006 20:04
af END
Nær ábyrgðin yfir það ef hann er bilaður? Hátalararnir eru keyptir í byrjun árs 2005.

Sent: Mán 11. Des 2006 20:20
af Blackened
2 ára ábyrgð á öllum raftækjum amk nema að annað sé tekið fram

Sent: Mán 11. Des 2006 20:21
af gumol
Ef hann er gallaður já, þe. ef hann á að endast lengur.