Síða 1 af 1

Samsung HD

Sent: Mán 11. Ágú 2003 01:41
af GuðjónR
Hefur einhver reynslu af Samsung HD ???
Hérna er síða um þennan 160gb disk sem á víst að vera mjög silent.
Svo er það spurning hvort það sé ekki sniðugt að vera með 5400 snúninga disk í gagnageymslu.
Minni snúningur=minni víbringur=minni hávaði.

Sent: Mán 11. Ágú 2003 04:18
af gumol
Góð hugmynd að hafa DC diskinn hægari, því maður notar hann hvorteðer minna en os diskinn.

Sent: Mán 11. Ágú 2003 07:25
af Pandemic
Tölvuvirkni hætti með 5400rpm diskana vegna þess að þeir voru alltaf að bila og ég meina alltaf ég var líka með einn þannig helvítis rusl.

Sent: Mið 13. Ágú 2003 15:11
af °°gummi°°
já ég er líka svolítið forvitinn um samsung HD en þá sérstaklega þennan hér, er enginn hérna sem á svoleiðis???

Sent: Sun 31. Ágú 2003 00:14
af gnarr
skrítið að þú skulir segja það, því að því hægari sem harðir diskar snúast á að vera minni bilanatíðni. það er einmit eina ástæðan fyrir að þeir eru enþá í notkun. mjög góð gagnageymsla ;)

Sent: Sun 31. Ágú 2003 01:05
af Fletch
ég var með 80 GB WD 7200 rpm disk í xboxinu mínu... var að verða geðveikur á hávaðanum í honum (passaði ekki alveg í stofuna some noise box) svo ég fór nirrí tölvulista og keypti mér Samsung 120GB 5400 rpm disk...

Ekki eins hraðvirkur of cauz, en MJÖG hljóðlátur...

mjög ánægður með hann, mæli með þeim fyrir storage og sem hljóðlát græja...

Fletch

g

Sent: Sun 31. Ágú 2003 10:53
af ICM
flech ertu búin að skipta um viftu í xboxinu þínu líka?
hefurðu íhugað stærri kassa og bæta við venjulegu DVD drifi og auka HDD?

ég þori eiginlega ekki að modda boxið fyrr en næsta uppfærsla kemur fyrir jól á xbox dashboard, þeir munu öruglega reyna að gera modchips óvirk þá.

Sent: Sun 31. Ágú 2003 11:20
af Voffinn
Þegar þið eruð að gera svona mikið fyrir xboxið.... er það ekki komið útí að það hefði bara borgað sig að byggja bara pc tölvu ?

Re: g

Sent: Sun 31. Ágú 2003 12:17
af Fletch
IceCaveman skrifaði:flech ertu búin að skipta um viftu í xboxinu þínu líka?
hefurðu íhugað stærri kassa og bæta við venjulegu DVD drifi og auka HDD?

ég þori eiginlega ekki að modda boxið fyrr en næsta uppfærsla kemur fyrir jól á xbox dashboard, þeir munu öruglega reyna að gera modchips óvirk þá.


nei, ekki skipt um viftu og ekki hugsað mér að breyta henni meira.. Mjög hljóðlát núna...

Ég hef engar áhyggjur af þessu dashboardi, nota ekki M$ dashboardið... enda mun vélin alltaf nýtast sem einn besti mediaplayerinn eins og hún er....

Fletch

Sent: Sun 31. Ágú 2003 12:18
af Fletch
Voffinn skrifaði:Þegar þið eruð að gera svona mikið fyrir xboxið.... er það ekki komið útí að það hefði bara borgað sig að byggja bara pc tölvu ?


Þú hefur greinilega ekki séð mod'að xbox í action ;)

Fletch

Sent: Sun 31. Ágú 2003 14:29
af Tesli
Ég er með 160gb 7200 samsung disk í Xboxinu mínu og hann er mjög hljóðlátur :8)

Lengi lifi XBOXIÐ :!:

d

Sent: Sun 31. Ágú 2003 15:14
af ICM
þeir segja að 7200 sé algjör óþarfi á xbox 5400 sé mesti hraðin sem maður finni fyrir á því, ata 33