Síða 1 af 1

Nýtt hljóðkort

Sent: Lau 18. Nóv 2006 20:23
af Alcatraz
Sælir.

Nú er stefnan sett á að kaupa nýtt hljóðkort en ég er ekki viss um hvaða kort skal velja. Ætla ekkert að eyða neinum mörgum tugþúsundum í kortið en það má alveg kosta slatta. Ég er mest að spá í SB Creative X-FI Xtrememusik, er þetta kort ekki öflugt eða er eitthvað annað sem ég ætti að velja?

Sent: Lau 18. Nóv 2006 21:51
af corflame
Er með X-fi extrememusic og er bara alveg sáttur. En ef þú vilt fá tengingar framan á kassann þá þarftu dýrari útgáfu. Enginn hljóðmunur svo ég viti til, bara spurning um aukabúnað.

Fínt hljóðkort með mjög góðu soundi (amk í mínum eyrum).

Sent: Sun 19. Nóv 2006 19:07
af Alcatraz
En hérna, er eitthvað mál að "setja það á" móðurborðið? eða er þetta bara jafn einfalt og að bræða smjör í örbylgjuofni?

Sent: Sun 19. Nóv 2006 21:23
af Yank
1. Uninstall onboard hljóðkorts driver.
2. Fara í bios og disable onboard hljóðkort
3. slökkva á vélinni og taka úr sambandi rafmagn við aflgjafan (Flestir hafa on off rofa.
4. Afrafmagna hendur með því að snerta jörð t.d. í rafmagns innstungu.
5. Smella hljóðkortinu.(PCI raufina) Koma bara við endanna á því.
6. Setja vélina í gang og setja upp nýjan driver fyrir það.

PS. Eitthvað sem ég gleymi ?

Sent: Mán 20. Nóv 2006 18:01
af corflame
Já, gleymdir þessu:

Njóta almennilegra hljómgæða :P

(samanborið við onboard ruslið)

Sent: Mán 20. Nóv 2006 18:55
af Alcatraz

Sent: Mán 20. Nóv 2006 19:07
af ManiO
Alcatraz skrifaði:http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_37&products_id=2030

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2674

Er einhver munur á þessum 2 kortum? :?


Ódýrari er ekki í kassa, og sennilega ekki með allt draslið sem á að fylgja.

Sent: Mán 20. Nóv 2006 19:12
af Mazi!
mæli með þessum kortum! :P

http://kisildalur.is/?p=2&id=228

http://kisildalur.is/?p=2&id=257

ótrúlega gott hljóð frá þeim!

Sent: Mán 20. Nóv 2006 19:27
af Alcatraz
Auzentech X-Plosion 7.1 vs. Auzentech X-Mystique7.1 gold vs. Sound Blaster X-FI XtremeMusic.

Hvað ætti ég að kaupa!? :? Hef verið að lesa mjög góða dóma um XtremeMusic kortið, veit minna um hin 2.

Sent: Mán 20. Nóv 2006 19:35
af ManiO
Bókað betra driver support fyrir Auzentech kortin :roll:

Sent: Mán 20. Nóv 2006 20:11
af Alcatraz
Úff, ég er langt frá því að vera öflugur í að velja eitthvað þegar það kemur að vali sem skiptir einhverju máli... Endar bara með því að ég kasti upp pening :roll:

Sent: Mán 20. Nóv 2006 23:51
af Alcatraz
Núna var ég sniðugur og kom með þessa könnun, nýtið ykkur kostningarréttinn og kjósið það sem þið teljið betra :twisted:

(Bannað að skila inn auðu)

Sent: Mán 20. Nóv 2006 23:53
af Mazi!
Áfram Auzentech!!! :8)

Sent: Þri 21. Nóv 2006 10:56
af ÓmarSmith
SB X-Fi kortið !!!!

Það er ekkert drivera vesen svo ég viti.
Hef amk ekki upplifað það ennþá nema bara með Vista. En það lagaðist alveg.

Sb-Xfi er svo margalt þekktara merki og margir leikjaframleiðendur hanna leikina með einmitt það kort og þeirra fídussa í Huga .

Ekki nokkur spurning um að taka X-Fi kortið !!

Annað væri kjánalegt ( Með fullri virðingu fyrir Kísildal og þessu Auszwitch korti )

Sent: Þri 21. Nóv 2006 13:07
af Birkir
ÓmarSmith skrifaði:Annað væri kjánalegt ( Með fullri virðingu fyrir Kísildal og þessu Auszwitch korti )

Haha.. :lol:

Sent: Þri 21. Nóv 2006 15:19
af Alcatraz
Magnað, þökk sé ÓmarSmith vel ég SB X-Fi kortið án vafa :D

Samt eitthvað við þetta Auzentech kort sem heillar mig :?

Sent: Þri 21. Nóv 2006 15:32
af Stebet
X-Fi virkar brilljant á XP (og é gmæli hiklaust með því ef þú ætlar að keyra XP næsta árið eða svo) en á Vista er það hreinasta helvíti. Creative eru með skítinn gjörsamlega í buxunum hvað varðar driversupport. Það er Beta driverar í gangi eins og er en þeir eru allt annað en næs. Ef maður er að "spóla" í WMP11 til dæmis þá á hljóðið það til að frjósa í dágóðann tíma og jafnar sig svo með skruðningum og látum eftir c.a mínútu. Stundum gerist það ekki og þá þarf maður að reboota. CMMS 3D dæmið virkar ekki heldur og EAX er í tómu tjóni. Digital outputtið hefur ekki verið stöðugt o.s.frv.

Fólk er gjörsamlega trompað á Vista Support forumunum hjá Creative og Creative þora ekkert að segja með tímasetningar um hvenær driver sem virkar og gefur þér alla sömu fítusa og í XP kemur.

Það liggur við að ég myndi frekar kjósa að nota on-board solutionið en X-Fi á Vista, enn sem komið er allavega.

Ekki það að Auzentech séu í betri málum með Vista drivera, þar sem þeir eru ekki einu sinni með beta drivera reddí.

Maður undrar sig eiginlega á því hvað hljóðkortaframleiðendur hafi verið að spá síðustu mánuði. Ekki eru stærstu skjákortsframleiðendurnir í sömu vandræðum allavega.

Sent: Þri 21. Nóv 2006 16:00
af Alcatraz
Hmmm... en væri það ekki aðeins of mikið "panic" að sleppa því að kaupa hljóðkort vegna driveravandamáls hjá Vista? Eða ætti ég að bíða með að kaupa hljóðkort ef ég ætla mér að kaupa Vista fljótlega eftir að það kemur?

Sent: Þri 21. Nóv 2006 16:33
af Birkir
Kauptu það.

Sent: Þri 21. Nóv 2006 18:33
af ÓmarSmith
Like the wise man said " GO GO GO , Storm the front "

Sent: Mið 22. Nóv 2006 00:26
af Stebet
Alcatraz skrifaði:Hmmm... en væri það ekki aðeins of mikið "panic" að sleppa því að kaupa hljóðkort vegna driveravandamáls hjá Vista? Eða ætti ég að bíða með að kaupa hljóðkort ef ég ætla mér að kaupa Vista fljótlega eftir að það kemur?


Þrátt fyrir svartsýnisrausið í mér, þá eins og ég sagði, ef þú stefnir á að að keyra bara XP í nánustu framtíð þá er X-Fi stálið :)