Síða 1 af 2

Hvaða heyrnatól?

Sent: Mið 15. Nóv 2006 14:08
af Jellyman
Var svona helst að pæla í Icemat Siberia eða Sennheiser HD 595 það munar heilmikið í verði en er það þess virði að fá sennheister heyrnatólin?
Heyrnatólin væru s.s. til að þess að vera í leikjum og hlusta á músik.
Ef það eru eitthver betri endilega seigjið.

Sent: Mið 15. Nóv 2006 14:46
af ManiO
Persónuleg get ég ekki sagt neitt um Icemat heyrnatól þar sem ég hef aldrei komið nálægt þeim hvað þá prófað. En Sennheiser er að sjálfsögðu þekkt og virt fyrirtæki í hljómgeiranum. Mjög mikill plús að geta tekið heyrnatólin úr sambandi, þeas tekið snúruna úr heyrnatólunum (veit ekki hvort Icemat bjóða upp á það). En þau eru samt ekki með míkrafón ef að það skiptir miklu máli.

Sent: Mið 15. Nóv 2006 15:15
af Mazi!
Icemat heirnartólin eru svo sem mjög góð...
en ég persónulega mundi safna mér frekar fyrir Sennheiser HD 595

Sent: Mið 15. Nóv 2006 17:45
af Stebbi
Ég á sennheiser 555 og er mjög sáttur við þau, rosalega þæginleg og maður finnur ekki fyrir þeim þótt maður sé búinn að vera með þau lengi á hausnum, en það er ekki hægt að taka snúruna úr eins og var hægt í eldri gerðunum.

Sent: Mið 15. Nóv 2006 18:02
af DoRi-
Stebbi skrifaði:Ég á sennheiser 555 og er mjög sáttur við þau, rosalega þæginleg og maður finnur ekki fyrir þeim þótt maður sé búinn að vera með þau lengi á hausnum, en það er ekki hægt að taka snúruna úr eins og var hægt í eldri gerðunum.

Það er hægt, en bara til þess að skipta um snúru, það er smá vesen ..

sjálfur er ég með HD595 og ég eeeeeelska þau !!
eru MIKIÐ betri en Siberia, átti svoleiðis líka,

595 er peninganna virði

Sent: Mið 15. Nóv 2006 18:04
af axyne
Mæli með nýju heynatólunum frá Bang Olufsen.

kosta minnir mig eh 12þús kall útí búð.

eru uppí síðumúla.

Sent: Fim 16. Nóv 2006 19:40
af Vilezhout
í tölvuleiki að þá eru icemat alveg sambærileg 595 nema að þú sért t.d. að spila bf2/2142 í super high gæðunum enn 595 skara framúr í tónlist og kvikmyndum.

Sent: Fim 16. Nóv 2006 22:32
af ManiO
axyne skrifaði:Mæli með nýju heynatólunum frá Bang Olufsen.

kosta minnir mig eh 12þús kall útí búð.

eru uppí síðumúla.


Ertu að tala um þessi? http://www.bang-olufsen.com/page.asp?id=46

Ef svo er þá eru þau in-ear á meðan hin tvo eru langt frá þvi.

Sent: Fim 16. Nóv 2006 22:35
af elgringo
Sennheiser HD 25 er málið. soldið dýr en frábær bæði, sterk og endingar góð.. BIG BASS

Sent: Fim 16. Nóv 2006 22:55
af axyne
4x0n skrifaði:Ertu að tala um þessi? http://www.bang-olufsen.com/page.asp?id=46

Ef svo er þá eru þau in-ear á meðan hin tvo eru langt frá þvi.


nákvæmlega þessi.

B&O eru samt betri. :D mæli með því þú farir með headphonið þín og gerir samanburð.

Sent: Fös 17. Nóv 2006 03:25
af urban
4x0n skrifaði: Mjög mikill plús að geta tekið heyrnatólin úr sambandi, þeas tekið snúruna úr heyrnatólunum


hver er plúsinn við það ?
er svona erfitt að taka af sér headphonin þegar að maður fer á klóstið ?[/b]

Sent: Fös 17. Nóv 2006 08:02
af gnarr
nei, það er auðvelt að skemma snúruna..

Sent: Fös 17. Nóv 2006 08:22
af ÓmarSmith
Ég hef verið að nota Sennheisier Hde 250 held ég , um 5-7000 kr headphones og alveg frábær í alla staði. Kristal tær hljómur, djúpur bassi go engin eyrnaþreyta.

Ég á líka Sony MDR-CDD280, Sem eru aðeins dýrari headphones og líka mjög þæginleg. Eini mínusinn við þau er samt að það heyrist mjög mikið út úr þeim.

Konann var alltaf að kvarta.

Sent: Fös 17. Nóv 2006 09:40
af Birkir
ÓmarSmith skrifaði:Eini mínusinn við þau er samt að það heyrist mjög mikið út úr þeim.

Þá eru headphonin „opin“.

En já, ég er með Sennheiser HD555 og ég fýla þau alveg í botn.

Sent: Fös 17. Nóv 2006 10:00
af ManiO
urban- skrifaði:
4x0n skrifaði: Mjög mikill plús að geta tekið heyrnatólin úr sambandi, þeas tekið snúruna úr heyrnatólunum


hver er plúsinn við það ?
er svona erfitt að taka af sér headphonin þegar að maður fer á klóstið ?[/b]


gnarr hitti naglann á höfuðið. Þegar maður á kött sem er brjáluð í snúrur er mjög þæginlegt að geta skipt um snúrur.

Sent: Fös 17. Nóv 2006 12:35
af ÓmarSmith
getur líka alltaf stoppað köttin bara upp ;)

Sent: Fös 17. Nóv 2006 12:38
af Mazi!
ÓmarSmith skrifaði:getur líka alltaf stoppað köttin bara upp ;)


Stoppum [ ---Ritskoðað--- ] upp!

Sent: Fös 17. Nóv 2006 13:18
af corflame
Sennheiser, lokasvar

Sent: Fös 17. Nóv 2006 13:24
af The Flying Dutchman
Lokud sennheiser eda dýr in-ear earphones, thad er alltof mikill hávadi í tolvum til ad vera med opin heyrnatól

Sent: Fös 17. Nóv 2006 14:05
af ManiO
ÓmarSmith skrifaði:getur líka alltaf stoppað köttin bara upp ;)


Ég tek því sem þú ert hundamaður :roll:

Sent: Fös 17. Nóv 2006 14:49
af ÓmarSmith
Hver segir að ég sé Hundamaður ?

Sent: Fös 17. Nóv 2006 14:57
af ManiO
ÓmarSmith skrifaði:Hver segir að ég sé Hundamaður ?


Svona komment kæmi ekki frá kattareiganda, og fólki er víst skipt í tvennt, katta eða hunda unnendur. :P

Sent: Fös 17. Nóv 2006 19:44
af kristjanm
4x0n skrifaði:
ÓmarSmith skrifaði:Hver segir að ég sé Hundamaður ?


Svona komment kæmi ekki frá kattareiganda, og fólki er víst skipt í tvennt, katta eða hunda unnendur. :P


Nei ég þekki strák sem hatar bæði.

Sent: Fös 17. Nóv 2006 21:52
af ManiO
kristjanm skrifaði:
4x0n skrifaði:
ÓmarSmith skrifaði:Hver segir að ég sé Hundamaður ?


Svona komment kæmi ekki frá kattareiganda, og fólki er víst skipt í tvennt, katta eða hunda unnendur. :P


Nei ég þekki strák sem hatar bæði.


Nei. :roll:

Sent: Fös 17. Nóv 2006 22:13
af Birkir
Ég þoli ekki ketti en mér líkar svosem ekkert illa við hunda. Ég telst samt varla til „hundaunnenda“. :P