Síða 1 af 1

Varðandi Sparkle 7600gt pci-e kort

Sent: Lau 11. Nóv 2006 00:05
af thalez
Sæl/ir.

Ég fjárfesti í þessu kortið í dag: http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view&flo=product&id_top=1651&id_sub=2055&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=VGA_SP_7600GT

Málið er það að ég á Neovo lcd skjá (F-417). Ég rak augun í það á heimasíðu framleiðenda (eftir að hafa reynt að fá tölvuna til að ræsa WinXp) að skjárinn sé analog. Nú fylgdi með breytistykki fyrir DVI yfir í Analog og setti ég það á og reyndi að fá skjáinn til að virka.
Það hefur ekki skilað árangri og því er ég að velta fyrir mér hvort að ég geti lagað þetta með millistykki (ólíklega) eða hvort að ég þurfi að skipta yfir í 7600gs kortið sem styður bæði DVI og Analog?

Sent: Lau 11. Nóv 2006 12:35
af Bassi6
Breitistykkið DVI í Analog á að virka

Sent: Lau 11. Nóv 2006 18:11
af thalez
Bassi6 skrifaði:Breitistykkið DVI í Analog á að virka

Ég prófaði það... vandamálið virðist vera að skjárinn styður ekki DVI signal, heldur aðeins Analog. Ég skipti kortinu í dag... fór úr 7600 GT yfir í 7600 Gs (ultra2). Ghost recon virkar eins og í sögu :D

Takk samt fyrir skjót svör. :wink:

Sent: Lau 11. Nóv 2006 18:31
af Pandemic
DVI signal? Breytistykkið breytir Úr digital signali yfir í Analog.

Sent: Sun 12. Nóv 2006 01:01
af thalez
Pandemic skrifaði:DVI signal? Breytistykkið breytir Úr digital signali yfir í Analog.

Vissulega, en málið er að það kemur ekkert signal í skjáinn (ég prófaði 3 breytistykki [dvi->analog=blank screen]. Ég skoðaði allnokkur forum og fleiri einstaklingar með Neovo F-417 skjáinn voru í sömu vandræðum: Ekkert signal.

:roll: