Síða 1 af 1

Skjákort fyrir 15k

Sent: Fim 09. Nóv 2006 14:32
af dos
Hvað mynduð þið segja að væri besta PCIe skjákortið sem ég get fengið í dag fyrir um 15.000 kall.

Sent: Fim 09. Nóv 2006 14:41
af Viktor
[url=http://kisildalur.is/?p=2&id=181]Sapphire Radeon X850XT PE
256MB 256-bita GDDR3 PCI-Express[/url] 17,000 kr.

Sent: Fim 09. Nóv 2006 14:41
af Tappi
Ég mundi segja að þetta væri ágætur díll, GF 7600GT á 15.490kr:
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... _SP_7600GT

Sent: Fim 09. Nóv 2006 15:04
af Holy Smoke
Gleymdu þessu x850 korti strax. Tæknin sem þau styðja er svo gott sem úreld, og það eru þegar byrjaðir að koma leikir sem styðja þau ekki, t.d. nýji Splinter Cell.

Taktu annað hvort þetta 7600GT kort að ofan eða eyddu 6000 kalli meira í 7900GS. Sjálfur myndi ég segja að hraðamunurinn sé vel þess virði, en þú verður að ákveða það sjálfur.

Sent: Fös 10. Nóv 2006 01:09
af dos
Ég á ekki eftir að nota þetta neitt í leiki að ráði, nota þessa vél mest í netta videovinnslu (DV) og annað dúllerí, með tveim skjám. Aðalega að hugsa fyrir WinVista, Sem X300 :oops: kortið sem ég fékk gefins einhvertíman er ekki alveg að höndla.
Það er stór kostur að það sé hljóðlátt helst viftulaust.

Síðan er spurning um hvort að maður eigi að bíða aðeins eftir að DX10 kortin fara að rúlla inn á klakan, þá hljóta leikjasjúklingarnir :Dað fara að losa sig við sín "gömlu" kort :lol:.

Sent: Sun 12. Nóv 2006 11:22
af TechHead
7600GS for the win

Viftulaust, alveg þokkalegt í leiki sem eru meira en ársgamlir og með
dual DVI

Sent: Fim 16. Nóv 2006 13:53
af wICE_man
Holy Smoke skrifaði:Gleymdu þessu x850 korti strax. Tæknin sem þau styðja er svo gott sem úreld, og það eru þegar byrjaðir að koma leikir sem styðja þau ekki, t.d. nýji Splinter Cell.

Taktu annað hvort þetta 7600GT kort að ofan eða eyddu 6000 kalli meira í 7900GS. Sjálfur myndi ég segja að hraðamunurinn sé vel þess virði, en þú verður að ákveða það sjálfur.

X850XT PE er DX9.0B, 7600GT er DX9.0C svo munurinn er svo til enginn. PS2.2 með ýmsa fídusa sem eru ekki í PS3.0 og öfugt, en ekkert sem kemur í veg fyrir að leikur geti spilast á öðru kortinu en ekki hinu. Ef einhver leikjaframleiðandi gerist svo heimskur að styðja ekki bæði PS2.2 og PS3.0 þá er hann bara að biðja um lægri tekjur.

DX10 er aftur allt annað mál en ekki kalla DX9.0B úrelda tækni í samanburði við DX9.0C, það er bara of fyndið :)

Sent: Fös 24. Nóv 2006 15:24
af Holy Smoke
Ýtti á vitlausan takka.

Sent: Fös 24. Nóv 2006 15:34
af Holy Smoke
wICE_man skrifaði:
Holy Smoke skrifaði:Gleymdu þessu x850 korti strax. Tæknin sem þau styðja er svo gott sem úreld, og það eru þegar byrjaðir að koma leikir sem styðja þau ekki, t.d. nýji Splinter Cell.

Taktu annað hvort þetta 7600GT kort að ofan eða eyddu 6000 kalli meira í 7900GS. Sjálfur myndi ég segja að hraðamunurinn sé vel þess virði, en þú verður að ákveða það sjálfur.

X850XT PE er DX9.0B, 7600GT er DX9.0C svo munurinn er svo til enginn. PS2.2 með ýmsa fídusa sem eru ekki í PS3.0 og öfugt, en ekkert sem kemur í veg fyrir að leikur geti spilast á öðru kortinu en ekki hinu.

Öh, jú... það er sem skiptir máli að það notar enginn 2.0b. Þaðan af síður héðan af. Þeir framleiðendur sem notuðu SM2.0 fóru beint í 3.0. T.d. eiga allir leikir sem koma út á Xbox360 að eftir að nota SM3.0.

Ef einhver leikjaframleiðandi gerist svo heimskur að styðja ekki bæði PS2.2 og PS3.0 þá er hann bara að biðja um lægri tekjur.
Sjá að ofan. Það sem skiptir máli er hvað þeir raunverulega gera, ekki hvað þér finnst þeir ættu að gera.

DX10 er aftur allt annað mál en ekki kalla DX9.0B úrelda tækni í samanburði við DX9.0C, það er bara of fyndið :)
Ekki rétt. Þó að B sé hliðina á C í stafrófinu er ekki þar með sagt að 2.0b og 3.0 séu það sama. Í besta falli getur 2.0b apað eftir sumum effektum úr 3.0 með loopum og stærri registrum (en í 2.0), en það nær heldur ekki lengra en það. Það sem skiptir máli er staðalinn. Og staðallinn er 3.0, ekki 2.0b.

Bara svo dæmi sé nefnt, þá ræður SM2.0b ekki við OpenEXR HDR, sem helmingur allra útgefinna leikja verður farinn að nota innan árs.

Sent: Mán 27. Nóv 2006 11:34
af wICE_man
Holy Smoke skrifaði:Öh, jú... það er sem skiptir máli að það notar enginn 2.0b. Þaðan af síður héðan af. Þeir framleiðendur sem notuðu SM2.0 fóru beint í 3.0. T.d. eiga allir leikir sem koma út á Xbox360 að eftir að nota SM3.0.

Fyrir það fyrsta þá þýðir það að leikur styðji eða noti ákveðna hluti ekki það að hann geti ekki keyrt á eldri staðal. Backwards compatability er og hefur alltaf verið viðurkennd staðreynd í PC leikjum, t.d. er hægt að spila Half life 2 á DX7.0 korti, það er að vísu með því að slökkva á mestu af augnakonfektinu.

Lets face it, 7600GT er ekki að fara að keyra mikið af SM3.0 leikjum með allt í maxi, og hvað þá HDR ekki nema þú sættir þig við lágmarks upplausn eða flettiskilti. Ég held að þú sért nær því með að eyða meiri pening á 7900GS en niðurstaðan er samt sú sama, öll þessi kort eru raunverulega úreld eins og staðan er í dag.

Ef þú ætlar að eyða litlum pening í skjákort þá verðuru bara að færa ákveðnar fórnir, X850XT mun keyra flesta leiki hraðar en 7600GT þ.e. nema þú keyrir með allar details settings í botni en þá ertu líka að horfa upp á 10-15fps í nýjustu leikjunum.

Vá hvað það er langt síðan ég skemmti mér svona mikið á vaktinni, það jafnast ekkert á við smá rökræður í morgunsárið :)

Sent: Mán 27. Nóv 2006 12:22
af Tjobbi
Ég mæli með X850XT hjá kísildal, á eimmitt eitt stykki frá þeim og hef aldrei verið ánægðari :) þakka góð viðskipti :8)

Sent: Mán 27. Nóv 2006 16:13
af Yank

Allt gott og blessað svo sem. En gleymist að það þarf öflugir aflgjafa fyrir X850XT heldur en 7600GT. Þannig ef uppfæra á einhvern midrange eldri vélbúnað er ekki endilega sniðugt að fara í eldri highend tækni sér í lagi ef það veldur of miklu álagi á gamlan Aflgjafa sem getur síðan þýtt ósöðugt kerfi.

Sent: Þri 28. Nóv 2006 12:49
af wICE_man
Það er reyndar góður punktur.

En ef maður er með gott 350-400W PSU og ekki með prescott þá er maður í fínum málum með X850XTPE og ef maður er með slappara þá er bara kominn tími á að uppfæra það.

Á móti er viftan á 7600GT kortunum ein sú versta á markaðnum og eina viftan sem er háværari er sama viftan á 7900 korti :)